Fréttablaðið - 19.11.2014, Blaðsíða 23
Jólahlaðborð hlaðið kræsingum á aðeins 1.990 kr. ætti að hljóma vel í eyrum flestra. Mínir menn, veisluþjónusta Magnúsar Inga Magnús-
sonar, veitingamanns á Sjávarbarnum, hefur sett
saman einfalt en einstaklega girnilegt hlaðborð á
þessu verði fyrir hópa og fyrirtæki sem er upplagt í
jólagleðina á vinnustaðnum, í veislusal eða heima.
Þar er byggt á langri reynslu Magnúsar Inga sem
séð hefur um veislur af öllum stærðum og gerðum
af ólíku tilefni í gegnum árin.
„Þetta er klassískt heitt og kalt jólahlaðborð,“
segir Magnús Ingi. „Við vitum hvað fólk er sólgnast
í og veljum réttina eftir því. Þetta hlaðborð var
mjög vinsælt þegar við byrjuðum með það í fyrra
og það er mikið búið að panta fyrir þessi jól, enda
er verðið sanngjarnt.“
Á jólahlaðborðinu er karrísíld og rauðrófusíld,
djúpsteiktar rækjur, kjúklingur, purusteik og hangi-
kjöt. Meðlætið er ríkulegt; heit sósa, brúnaðar kart-
öflur, kartöflujafningur, fjölbreytt grænmeti, ferskt
salat og kaldar sósur. Lágmarksfjöldi er tíu manns
og Magnús Ingi og hans fólk mætir á staðinn með
veisluföngin ef fjöldinn nær þrjátíu eða fleirum.
Ef óskað er eftir annars konar samsetningu á
jólaborðið eða meira úrvali er það lítið mál gegn
aukagjaldi. „Svo er hægt að velja eitthvað allt
annað í jólaveisluna, til dæmis sambland af smá-
réttahlaðborði og pottrétti á 1.990 kr. Við veitum
viðskiptavinum okkur alla nauðsynlega ráðgjöf og
mætum einfaldlega óskum þeirra.“
Nánari upplýsingar er að finna á Facebook og vef
Sjávarbarsins, sjavarbarinn.is.
JÓLAHLAÐBORÐ Á
AÐEINS 1.990 KR.!
MÍNIR MENN KYNNA Veisluþjónusta Magnúsar Inga Magnússonar, Mínir menn,
býður upp á girnilegt heitt og kalt jólahlaðborð heima, í veislusal eða á vinnustað.
GOTT ÚRVAL
„Á jólahlaðborðinu er karrísíld og rauð-
rófusíld, djúpsteiktar rækjur, kjúklingur,
purusteik og hangikjöt. Meðlætið er
ríkulegt; heit sósa, brúnaðar kartöflur,
kartöflujafningur, fjölbreytt grænmeti,
ferskt salat og kaldar sósur.“
MYND/K.MAACK
laxdal.is
Skoðið
Yfirhafnir
Vertu vinur á
Facebook
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Fæst í apótekum og heilsubúðum
P
R
E
N
T
U
N
.IS
P
R
E
N
T
U
N
.IS
Virkar lausnir frá OptiBac
„One Week Flat“
Minnkar þembu og Vindgang
Þú færð Blaðberann þinn í
Skaftahlíð 24 alla virka daga
frá kl. 9-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfið
Blaðberinn...
Blaðberinn
bíður þín
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
SAGA FERÐAÞJÓNUSTU
Í tilefni af afmæli Samtaka ferðaþjónustunnar er kom-
in út bókin „Það er kominn gestur“ – saga ferðaþjón-
ustu á Íslandi. SAF gefa bókina út en höfundar hennar
eru Helga Guðrún Johnson og Sigurveig Jónsdóttir.