Skessuhorn


Skessuhorn - 11.05.2011, Page 32

Skessuhorn - 11.05.2011, Page 32
32 MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ Það er margt í líf inu sem við tök­ um sem sjálf sögð um hlut og met­ um ekki að verð leik um, til dæm­ is get una til þess að ganga, tala og hafa stjórn á eig in lík ama. Það síð­ ast nefnda er eitt hvað sem Guð björg Þor steins dótt ir, átján ára stúlka í Grund ar firði, ræð ur ekki alltaf við. Guð björg er með Tourette syndrome, tauga sjúk dóm sem stafar af ó jafn vægi á boð efnaflæði í heil an um. Helstu ein kenni hans svo kall að ir kæk ir, sem eru til gangs­ laus ar en ó við ráð an leg ar hreyf ing ar eða hljóð. Hún hef ur í gegn um tíð­ ina orð ið fyr ir barð inu á for dóm um í sinn garð og seg ir fólk ekki alltaf skilja af hverju hún sé eins og hún er. Ný lega fór hún að skrifa færsl ur á net ið um sjúk dóm inn, for dómana og líf ið með Tourette. Blaða mað­ ur leit í heim sókn til þess ar ar hug­ rökku stúlku. Full orðn ir engu skárri en börn „Mig lang aði fyrst og fremst til þess að sýna fólki hvern ig sjúk dóm­ ur inn virk ar og hvaða á hrif for dóm­ ar hefðu á okk ur sem þurf um að glíma við sjúk dóm inn. Fólk horf­ ir á mig, bend ir, hvísl ar og hlær að mér og það er mjög sárt. Oft á tíð­ um fannst mér ég gjör sam lega nið­ ur lægð og leið illa and lega,“ seg­ ir Guð björg að spurð um af hverju hún hóf að skrifa um erf ið leika sína. Hún seg ist með al ann ars hafa feng ið hvatn ingu til þess að skrifa á því að lesa pistla Dag fríð ar Ósk­ ar Gunn ars dótt ur, vin konu sinn­ ar í Grund ar firði, sem steig fram og skrif aði op in skátt um sinn sjúk­ dóm, ME­heil kenn ið, en Dag fríð­ ur var einnig í við tali í Skessu horni sl. vet ur. Í nýj ustu færslu sinni seg ir Guð­ björg með al ann ars: „Það sem fer hrika lega í mig er þeg ar ég upp lifi for dóma og sé hvað full orð ið fólk get ur ver ið dóm hart, ekki minna en börn eru. Á full orð ið fólk ekki að hafa næg an þroska til að láta ekki eins og fá vit ar og hætta að gera grín að öðr um? Ég spyr sjálfa mig oft að þessu. [...] Að upp lifa for­ dóma, láta fólk dæma hvern ig þú ert er mjög sær andi. Fólk benti á mig, hló að mér og hvísl aði fyr­ ir fram an mig. Ég missti allt mitt sjálfs traust, sjálfs mynd in breytt ist og ég brotn aði nið ur því ég skildi ekki í fyrstu af hverju þau voru að dæma mig. Ég við ur kenni að þeg ar ég var yngri þá leið mér svo illa, ég vildi bara kom ast burt því for dóm­ arn ir sem ég varð fyr ir voru svo mikl ir. Ég hélt ég væri mik ið öðru­ vísi en aðr ir áður en ég var greind með Tourette sjúk dóm inn. En eft ir að ég varð eldri og átt aði mig á því að ég gæti hrein lega ekki „höndl­ að“ þessa for dóma leng ur á kvað ég að standa á mínu, berj ast á fram og takast á við for dómana og sjúk dóm­ inn.“ Var hrædd og skildi ekki sjúk dóm inn Rétt eft ir fimm ára ald ur fóru for eldr ar Guð bjarg ar að taka eft­ ir kækj um og hljóð um sem hún gaf frá sér. Í fyrstu gerðu þau sér ekki grein fyr ir stöð unni, héldu að þetta væru bara kæk ir sem myndu fara með aldr in um, en eft ir því sem árin liðu fóru kækirn ir og hljóð in að aukast mik ið. „Ég gaf frá mér skrít ið, sker­ andi hljóð sem kom úr háls in um og var með mikla kippi í hönd un um og háls in um. Þá blikka ég einnig stöðugt aug un um. Ég við ur kenni að þeg ar ég var yngri var ég mjög hrædd og skildi ekki af hverju ég var öðru vísi en aðr ir. Það var ekki fyrr en ég var ell efu ára að ég fékk sjúk dóms grein ingu og það tók ekki nema einn læknis tíma til að greina mig með Tourette syndrome.“ Guð björg seg ir ein kenn in hafa far ið minnk andi á síð ustu árum og hún ræð ur orð ið sjálf við sjúk dóm­ inn í dag legu lífi. Hún hef ur aldrei þurft að taka lyf og fyr ir það er hún þakk lát. Hefði ekki get að þetta án bekkj ar fé lag anna „Bekkj ar systk ini mín í Grunn­ skóla Grund ar fjarð ar voru mér mjög góð og gerðu mér auð veld­ ara að sætta mig við sjúk dóm­ inn. Þeim var kom ið í skiln ing um hvers vegna ég væri eins og ég er og hafa þau alltaf tek ið mér vel. Þeg­ ar ég er stressuð, til dæm is í próf­ um, aukast hljóð in og kipp irn ir og þú get ur rétt í mynd að þér hversu vand ræða legt það er að ráða ekki við hljóð in á próf tíma þeg ar jafn­ an er dauða þögn í stof unni,“ sagði Guð björg og um þetta skrif aði hún einnig í sinni fyrstu færslu á net­ inu: „Grunn skól inn var stund um erf ið ur. Mér leið ekki vel vit andi það að krakk arn ir í bekkn um vissu ekki hvað væri að mér. Ég þoldi ekki þessa spennu í mér og fannst ég þurfa að leyna þessu eða ljúga af hverju ég gerði þessi hljóð eða væri með þessa kæki. Ég bað því kennar­ ann minn að hjálpa mér að út skýra þetta fyr ir þeim. Við frædd um þau um Tourette syndrome og leyfð um þeim að spyrja eins og þau vildu. Ég var mjög hepp inn og er enda laust þakk lát fyr ir það hvað ég lenti í góð um bekk í skóla. Þetta er frá bær hóp ur sem hjálp aði mér og studdi mig í gegn um alla for dómana sem fylgdu sjúk dómn um. Eins og ég segi þá hefði ég ekki get að gert þetta án þeirra. All ir ættu að standa við bak ið á vin um sín um sem eiga í erf ið leik um, ef ekki þá eru þess ir vin ir ekki þess virði.“ Hef ur trú á sjálfri sér Guð björg seg ir alltof fáa koma upp að sér og spyrja hvers vegna hún gef ur frá sér þessi hljóð. „Þrátt fyr ir að það geti ver ið vand ræða legt, er alltaf mik ið betra að geta út skýrt fyr ir fólki hvern ig ég er í stað þess að sjá það hvísla og benda út und­ an mér. Þeg ar ég kynnt ist nýju fólki hér áður fyrr reyndi ég að fela sjúk­ dóm inn og lét það ekki vita af hon­ um. Ég hef hins veg ar kom ist að því að það er mun betra að vera hrein­ skil in og gera fólki strax grein fyr ir því að ég er með Tourette.“ Í dag er Guð björg í fjar námi frá Fjöl brauta skóla Snæ fell inga en vinn ur með skóla í fisk vinnslu fyr­ ir tæk inu G.Run í Grund ar firði. Þá stund ar hún einnig fót bolta að kappi. „Það er skrít ið með fót bolt­ ann að ein kenn in virð ast ekki koma þeg ar ég er að spila. Þá er ein beitn­ ing in hund rað pró sent á leikn um. Í dag er Tourette sjúk dóm ur inn hluti af mér, ég er búin að sætta mig við hann og get í raun ekki hugs að mér líf ið án hans. Ég er samt feg in því að ein kenn in hafa minnk að mik­ ið með ár un um. Ég á mína slæmu daga en suma daga finn ég ekki fyr­ ir þessu. Mitt mottó er að hafa trú á sjálfri mér og láta ekki vaða yfir mig. Mað ur á aldrei að gef ast upp,“ sagði Guð björg lífs glöð að lok um. ákj Laug ar dag inn 14. maí klukk an 14­17 munu lista menn af Vest ur­ landi sýna verk sín í Frí stunda mið­ stöð inni Þorp inu á Akra nesi. Sýn­ ing in er lið ur í verk efn inu List án landamæra. Þar taka hönd um sam­ an Lista smiðj an Gam an sam an og Lista smiðj ur úr Borg ar nesi og af Akra nesi. Lista smiðja Gam an­sam an Verk efn ið „Gam an­sam an“ hófst á Akra nesi vor ið 2009. Að því standa Frí stunda mið stöð in Þorp ið, Frí­ stunda klúbb ur inn og Rauði kross­ inn á Akra nesi. Kjarni verk efn is ins er að leiða sam an ó líka hópa barna, þ.e fötl uð og ó fötl uð, af er lend um og inn lend um upp runa með því að bjóða upp á skipu lagt tóm stunda­ starf og leyfa þeim að hafa „gam an­ sam an.“ Þá er mark mið verk efn is­ ins að skynja fjöl breyti leika mann­ lífs ins sem eðli leg an hlut. Sér stök á hersla er lögð á kosti fjöl menn ing­ ar með því að leyfa börn un um að kynn ast ó lík um menn ing ar heim um í gegn um virka þátt töku (dans, leik­ list, mat ar gerð, tónlist, handverk og í þrótt ir). Í ramma Gam an­sam­ an verk efn is ins á vor önn 2011 fór fram lista smiðja í um sjón Ó lafar S. Dav íðs dótt ur gler l ist ar konu í Borg ar nesi. Tutt ugu börn á aldr in­ um 10­14 ára tóku þátt í lista smiðj­ unni. Lista smiðj ur á Akra nesi og í Borga nesi Und an far in 4­5 ár hef ur ver ið starf rækt Lista smiðja fyr ir fólk með fötl un, lengst í Borg ar nesi en vor­ ið 2009 bætt ist Akra nes við. Lista­ smiðj an var hald in með styrk frá Fjöl mennt, fræðslu mið stöð fatl­ aðra. Það er einnig lista kon an Ólöf S. Dav íðs dótt ir sem hef ur haft um­ sjón með hóp un um í margs kon­ ar list sköp un. Þar hafa nem end ur unn ið verk m.a. úr mósaík, gleri, akrýl mál un, leir, járni, tré perl­ um og fleiru. Fimm lista menn frá Akra nesi og átta frá Borga nesi sýna á sýn ing unni. mm List án landamæra og Gam an sam an hóp ur inn halda sýn ingu Í dag get ég ekki hugs að mér líf ið án Tourette Rætt við Guð björgu Þor steins dótt ur um sjúk dóm inn og líf ið Guð björg Þor steins dótt ir 18 ára Grund ar fjarð ar mær.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.