Gerðir kirkjuþings - 1960, Síða 2
r'-1-' juþinq.
1. mál.
Frumvarp um veitinqu prestakalla.
Flutt af biskupi.
1. gr.
Þegar prestakall losnar og nýr prestur er eigi kallaður
til embættisins (sjá 5.gr.) auglýsir biskup kallið með hæfilegum
umsóknarfresti.
2. gr.
Þá er umsóknarfrestur er á enda sendir biskup prófasti og
sóknarnefnd(um) prestakallsins skrá yfir þá, er sótt hafa, ásamt
skýrslu um aldur þeirra, nárns- og embættisferil og störf. Jafnframt
felur hann háraðsprófasti að kveðja kjörmenn prestakallsins saman
á fund innan tiltekins tíma til viðræðna um raðstöfun embættisins.
Kjörmenn eru: Sóknarnefndarmenn, safnaðarfulltrúar (aðalmenn) og
meðhjálparar sóknanna í kallinu. Á bessum fundi skulu umsóknir og
umsagnir biskups liggja frammi til athugunar. Prófastur stýrir
fundi. Skal biskup sitja fundinn, ef hann æskir bess, svo og ef
prófastur eður sóknarnefndaroddvitar, einn eða fieiri, óska pess.
Sé héraðsprófastur meðal umsækjenda um kallið, nefnir biskup annan
prófast til í hans stað. Fundurinn er lokaður.
3. gr =
Næsta dag ákveður prófastur kjörfund með kjörmönnum.
Kjörfundur er lokaður og stýrir prófastur honum. Fer^bar fram
leynileg, skrifleg atkvæðagreiðsla um umsælcjendur. Prófastur afhendir
hverjum kjörmanni einn atkvæðaseðil og ritar kjörmaður á seðilinn
nafn þess, er hann kýs. Prófastur skilar atkvæði á sama hátt. Að
lokinni atkvæðagreiðslu eru atkvæði innsigluð og send biskupi í
póstábyrgð ásamt afriti af gjörðabók kjörfundar. Verði ágreiningur
um undirbúning eða framkvæmd kosningar skal skjóta honum til kirkju-
stjórnarinnar.
4. gr.
Þegar biskup hefur fengið gögn kjörfundar í^hendur, kynnir
hann sér niðurstöðu og sendir kirkjumálaráðherra skýrslu um kjörið,
ásamt tillögu sinni um það, hverjum skuli veita embættið. Ef hann
styður með tillögu sinni þann umsækjanda, sem hlotið hefur flest
atkvæði, skal veita embættið samkvæmt því. Falli atkvæði hans á
annan umsækjanda, en þann, sem flest hefur atkvæði kjörmanna veitir
ráðherra embættið þeim þessara tveggja umsækjanda, sem hann telur
hæfastan.
5. gr.
Heimilt er kjörmönnum að kalla prest. Ef kjörmenn einnar
sóknar eða fleiri í prestakallinu eru einhuga um að kalla prest an
umsóknar, gera þeir prófasti viðvart um það begar í stað, en hann
gerir biskupi aðvart. Biskup felur þá prófasti að boða kjörmenn
prestakallsins á sameiginlegan funa innan viku og er þá embættið
eigi auglýst. Ef 2/3 kjörmanna samþykkja að^kalla tiltekinn mann til
embættisins, en um það skal atkvæöa leitað á sama veg og segir í
3.gr., skal leita samþykkis biskups á kölluninni^og honum falið að
birta hana þeim presti eða kandidat, sem £ hlut á. Taki hann köllun
að fengnu samþykki biskups skal veita honum embættið.
6. gr.
Prestsembættin að Skálholti, Hólum og Þingvöllum veitir
forseti að fenginni tillögu biskups.