Gerðir kirkjuþings - 1960, Síða 8
-2. KirkjuÞing.
-7-
9.
12. mál.
IX. Tillaga til þingsályktunar um fyrningarsjóð kirkna.
Flutt af sr. Sigurði Pálssyni.
Tillagan er svohljóðandi:
Kirkjuþing ályktar að leggja til við kirkjustjórn að sett
verði ákvæði í lög um fjárhald kirkna um það, að kirkjur
skuli ár hvert leggja tiltekna upphæð í fyrningarsjóð.
Sjóður þessi ávaxtist í Hinum almenna kirkjusjoði. Stjórn
hans skipi sóknarnefnd að viðbættum prófasti. Yfirstjórn
hans se í höndum stjórnar Hins almenna kirkjusjóðs. Sjóðnum
skal varið til viðhalds og endurbyggingar kirkju.
Allaherjarnefnd hafði málið til meðferðar og lagði til, að
því væri vísað til kirkjuráðs til undirbunings fyrir næsta
Kirkjuþing. Tillaga nefndarinnar sarnþykkt samhljóða.
X. Frumvarp um breyting á lögum um kirkjubyggingasjóð,
lög nr.43, 14.april 1954,
Flutt af biskupi.
1. málsgr. 2. ar. orðist svo:
Ríkissjóður skal greiða i Kirkjubyggingasjóð eigi lægri
upphæð en Kr. 1.000.000CO á ári næstu 20 ár.
Á eftir 1. málsgr. 3. gr. kcmi:
Stjórn sjóðsins er heimilt að hækka lánsupphæðir £>ær, er um
ræðir í 1. málsgr pessarar gr., til samræmis við það, sem
vísitala byggingarkostnaðar hefur hækkað hverju sinni frá
vísitölu tímabilsins 1. október 1953 til 30. september 1954.
Samþykkt samhljóða.
XI. Frumvarp til breytingar á 1. gr. laga
(nr. 24, 17. marz 1954) um sóknargjöld.
Flutt af biskupi og sr. Joni Auðuns, dómprófasti.
Kirkjuþing ályktar að leggja til við hið háa Alþingi, að fyrstu
grein laga nr. 24, 17. marz 1954, verði breytt þannig, að
hámark sóknargjalds verði ákveðið eigi lægra en Kr. 100.00.
Samþy'kt samhljóða.
XII. Þingsályktun, flutt af 9 þingmönnum, um meðferð mála, sem
Kirkjuþing hefur afgreitt, var afgreidd að tillögu allsherjar-
nefndar með svofelldri rÖkstuddri dagskrá, er samþykkt var
samhljóða:
Með því að fram hafa komið fullnæg^andi upplýsingar um meðferð
þeirra mála, sem afgreidd voru á síðasta Kirkjuþingi, og með
tilliti til þess, að framvegis verði só regla viðhöfð, að
forseti kirkjuráðs geri Kirkjuþingi þegar í byrjun þinghalds
grein fyrir gangi mála rnilli þinga, telur Kirkjuþing ekki ástæð
til sérstakrar samþyktar í þessu efni og tekur fyrir næsta
mál á dagskrá.