Gerðir kirkjuþings - 1964, Side 21
4. Kirkjuþinq
12. mál
11. gr.
Með lögum þessum eru úr gildi numin lög nr. 38 30.júlí 1909
um vígslubiskupa og önnur lög eða lagaákvæði, er fara í bág við
log þessi.
Ákvæði til bráðabirgða.
NÚverandi biskup íslands á rétt á að setjast í hvert biskups-
dæmið, sem hann kýs.
Frumvarp þetta var undirritað af 10 þingmönnum, framsögum. var
sr. Gunnar Árnason. Var því vísað til löggjafarnefndar, er lagði
til, að málið væri afgreitt með svo hljóðandi ályktun:
Kirkjuþing ályktar að fjölga eigi biskupum hinnar íslenzku þjóð-
kirkju í þrjá hið allra fyrsta og kýs milliþinganefnd þriggja
leikmanna til þess að gera tillögur um framtíðarskipan biskups-
dæma þjóðkirkjunnar•
Jafnframt beinir Kirkjuþing þeim tilmælum til næstu prestastefnu
Islands, að hún kjósi þrjá presta í nefndina, sem síðan vinni að
málinu með biskupi og kirkjuráði.
Tillögur þessara aðila leggist fyrir næsta Kirkjuþing í frumvarps-
formi.
Ályktunin var samþykkt.
í nefndina voru kjörnir:
Guðmundur Benediktsson, stjórnarráðsfulltrúi (10 atkv.)
Bjartmar Guðmundsson, alþ.m., (12 atkv.)
Ágúst Þorvaldsson, alþ.m., (12 atkv.)
Til vara:
Hákon Guðmundsson, yfirborgardómari, (9 atkv.)
Skúli Guðmundsson, fyrrv.ráðh., (12 atkv.)
Sigurður Óli Ólafsson, forseti e.d. Alþingis, (12 atkv.)