Gerðir kirkjuþings - 1964, Page 24
4. Kirkjuþinq
13. mál
7. gr •
Prestsembættin að Skálholti, HÓlum og Þingvöllum veitir
forseti samkvæmt tillögu biskups og kirkjuráðs.
8. gr.
Setja má reglugjörð, er kveði nánar á um framkvæmd
þessara laga.
Frumvarp þetta var samþykkt á Kirkjuþingi 1962 (sbr. Gerðir
kirkjuþings 1962). Hafði kirkjumálaráðherra falið menntamála-
nefnd neðri deildar Alþingis frumvarpið til flutnings en jafn-
framt óskað eftir því, að það væri borið undir hið nýkjörna
Kirkjuþing.
Frumvarpinu var vísað til löggjagarnefndar. Álit hennar var á
þessa leið :
Nefndin hefur fjallað um málið en nefndarmenn ekki orðið á eitt
sattir. Leggur meiri hlutinn (Friðjón Þórðarson, Þórarinn
Þorarinsson og Þorbergur Kristjánsson) til, að frumvarpið verði
sanfþykkt, en minni hlutinn (Gunnar Árnason og Þorsteinn B. Gísl
son) er andvígur frumvarpinu, nema hvað snertir ákvæði þess um
köllun.
Hver hluti nefndarmanna fyrir sig mun gera grein fyrir afstöðu
sinni, en allir askilja sér rátt til að fylgja breytingar-
tillögum, sem fram kunna að koma. Framsögumaður meiri hlutans
var kjörinn Þórarinn Þórarinsson, en Gunnar Árnasdn framsögu-
maður minni hlutans.
Við 2. umræðu kom breytingartillaga frá Steingrími Benedikts-
syni svo hljóðandi: