Gerðir kirkjuþings - 1964, Page 22
4. Kirkjuþinq
13. mál
Frumvarp um veitinqu prestakalla.
1. gr.
Þegar prestakall losnar og prestur er eigi kallaður til
embættisins (sbri ó.gr.), auglýsir biskup kallið með hæfilegum
umsoknarfresti.
2. gr.
Að liðnum umsóknarfresti sendir biskup prófasti hlutað-
eigandi prófastsdæmis, só hann eigi umsækjandi, svo og sóknar-
nefndum prestakallsins, skrá yfir þá, er sótt hafa, ásamt skýrslu
um aldur þeirra, náms- og embættisferil og störf. Jafnframt
sendir hann profasti nægilega marga atkvæðaseðla með nöfnum
umsækjenda, og felur honum að boða kjörmenn prestakallsins á
sameiginlegan fund innan tiltekins tíma. Kjörmenn eru: Sóknar-
nefndarmenn og safnaðarfulltruar prestakallsins (aðalmenn).
Fyrsti varamaður tekur sæti aðalmanns, ef forfallaður er. Se
prófastur heraðsins umsækjandi um kallið, nefnir biskup annan
prófast til í hans stað.
3. gr.
Á kjörmannafundi skulu umsóknir ásamt umsögnum biskups
liggja frammi til athugunar. Fundurinn er lokaður og stýrir
prófastur honum. Ef meiri-hluti kjörmanna samþykkir, að kjör
skuli fram fara, skal það framkvæmt með þeim hætti, sem segir
í 4.gr. Að öðrum kosti ráðstafar kirkjumálaráðherra embættinu
samkvæmt tillögu biskups.
4. gr.
Ef samþykkt er, að kjör fari fram, ákveður prófastur
kjörfund kjörmanna þá þegar eða næsta dag hið síðasta. Kjör-
fundur er lokaður og stýrir prófastur honum. Fer þar fram
leynileg, skrifleg atkvæðagreiðsla um umsækjendur. Profastur
afhendir hverjum kjörmanna einn atkvæðaseðil og setur kjcrmaðu.:;