Nesfréttir - 01.01.2007, Page 2

Nesfréttir - 01.01.2007, Page 2
ÚTGEFANDI: Borgarblö›, Vesturgötu 15, 101 RVK. S: 511 1188 • 561 1594 • 895 8298 RITSTJÓRI: Kristján Jóhannsson • ÁBYRG‹ARMA‹UR: Kristján Jóhannsson UMBROT: Valur Kristjánsson • NETFANG: borgarblod@simnet.is • HEIMASÍ‹A: borgarblod.is Nesfréttir koma út mána›arlega og er dreift í hvert hús á Seltjarnarnesi 2 NES FRÉTTIR www.borgarblod.is Í kjölfar umræðu um byggingu nýrra matvöruverslana í miðbæ Seltjarnarness hefur borið á tals- verðum áhuga verslunareigenda og matvörukaupmanna á að byggja og reka verslanir í hjarta bæjarins. Miðað við það virðist ljóst að ýms- ir sem til þekkja í matvörubrans- anum líta á Seltjarnarnes sem vænlegan kost þegar kemur að staðsetningu verslana í vesturhluta höfuðborgarsvæðisins. Óstaðfest tal um dvínandi áhuga Bónuss á að þjónusta Seltirninga með verslun á Eiðistorgi virðist með- al annars hafa orðið þess valdandi að ýmsir aðrir er til þekkja hugsi sér gott til glóðarinnar og því má telja líklegt að Nesbúar munu áfram njóta fjölbreyttrar verslunarþjón- ustu í bænum og í næsta nágrenni hans. Í nýju aðalskipulagi Seltjarnar- ness til ársins 2024 er meðal annars gert ráð fyrir verslunar- og þjónustu- kjarna á svokölluðu miðsvæði sem nær til núverandi miðbæjar á Eiðis- torgi, Austurströnd og gatnamóta Nesvegar og Suðurstrandar. Mikill áhugi á rekstri matvöruverslana á Seltjarnarnesi Nesbúinn Eru Seltirnigar orðnir svona fjörugir? www.borgarblod.is Útsvar á Seltjarnarnesi er það lægsta á höfuðborgarsvæðinu eða 12,35% en stefna bæjaryfirvalda er að lækka það enn frekar á yfirstandandi kjörtímabili. Álagn- ingarhlutföll fasteignagjalda eru einnig ein þau lægstu á landinu og þjónustugjöldum er sem fyrr stillt mjög í hóf. Þær gjaldskrár þjónustu- gjalda sem nú hækka um 6% hafa ekki hækkað í tvö síðastliðin ár og nær hækkunin því ekki hækkun verðlags á tímabilinu. Með álagn- ingarstefnu bæjarins lætur nærri að skattgreiðendum á Seltjarnar- nesi sé hlíft við á þriðja hundruð milljónum króna árlega í álögum og hverju heimili sparast hundruð þúsunda í opinberum gjöldum sam- anborið við það sem annarsstaðar gerist á höfuðborgarsvæðinu. Árið 2007 er annað árið sem álagn- ingarprósenta útsvars á Seltjarn- arnesi er sú lægsta á höfuðborgar- svæðinu. Meðalútsvar á landinu helst óbreytt milli ára eða 12,97% en hámarkið er 13,03% og nýta öll sveitarfélög sér það svigrúm að fullu. Aðeins 18 sveitarfélög í land- inu leggja ekki á hámarksútsvar og er Seltjarnarnesbær þar á meðal. Við skattauppgjör ársins 2006 sem fram fer í sumar munu íbúar á Sel- tjarnarnesi njóta hins lága útsvars enn frekar þegar þeir fá endurgreitt frá ríkisskattstjóra mismun meðalút- svars og útsvars bæjarins. Aðgerð- ir bæjaryfirvalda á Seltjarnarnesi styðja þannig við almenna stefnu ríkisstjórnarinnar um lækkun tekju- skatts og afnám virðisaukaskatts á matvæli. Fjárhagsáætlun Seltjarnarness fyrir árið 2007 var samþykkt við seinni umræðu á fundi bæjarstjórn- ar miðvikudaginn 13. desember síðast liðinn. Í henni kemur meðal annars fram að fjárhagur bæjar- sjóðs er í traustum skorðum og hef- ur farið batnandi ár frá ári. Í henni kemur fram að hagnaður A-hluta bæjarsjóðs mun nema um 222 millj- ónum króna og nemur rekstrarhlut- fall aðalsjóðs 82,6% af skatttekjum sem er um 1% hækkun frá fyrra ári. Engin ný lán verða tekin á árinu frekar en undanfarin ár. Langtíma- skuldir verða áfram greiddar niður en miðað við veltufé frá rekstri og handbært fé getur Seltjarnarnes- bær greitt upp allar sínar skuldir. Ávöxtun handbærs fjár, sem nú nemur um 1.100 milljónum króna, er áætluð um 140 milljónir á árinu. Árangursrík sala á byggingarrétti á Hrólfsskálamel og landi við Bygg- garða hefur þannig tryggt bæjar- sjóði Seltjarnaness einstaka stöðu meðal bæjarfélaga en vaxtatekjur af þessum fjármunum munu tryggja aukið svigrúm fyrir lífsgæðaverkefni í þágu bæjarbúa á komandi árum. Lægsta útsvarið á höfuðborgarsvæðinu Börnum á Seltjarnarnesi fjölg- aði umtalsvert eða um 10% á síðasta ári. Þannig fluttu mun fleiri fjölskyldur með ung börn til Seltjarnarness á árinu en frá bæjarfélaginu. Þetta er ánægjuleg þróun sem kemur í kjölfar nokkurra ára sam- felldrar fækkunar nemenda í skól- um á Seltjarnarnesi. Miðað við bráðabirgðatölur frá Hagstofu Íslands er einnig útlit fyrir að íbú- um á Seltjarnarnesi hafi fjölgað lítilsháttar árið 2006 en það er í fyrsta sinn frá árinu 2000 sem það gerist. Seltirning- um fjölgar á ný

x

Nesfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.