Nesfréttir - 01.01.2007, Page 5
MYND-MÁL myndlistarskóli
hefur verið starfræktur í 21 ár á
Seltjarnarnesi. Skólann á og rek-
ur Rúna Gísladóttir, myndlista-
maður og kennari, og hún hefur
sjálf annast kennslu og skipulag
öll árin. Rúna útskrifaðist úr mál-
aradeild Myndlista- og handíða-
skólans 1982 og stundaði einnig
myndlistanám um tíma í Noregi.
Hún hefur undanfarin 25 ár rekið
eigin vinnustofu og haldið marg-
ar einkasýningar, m. a. á Kjarvals-
stöðum, Listasafni Kópavogs, Sel-
tjarnarnesi, Blönduósi, Siglufirði
og í Noregi auk þess sem hún hef-
ur tekið þátt í fjölmörgum samsýn-
ingum hérlendis og erlendis.
MYND-MÁL myndlistaskóli er
starfræktur í námskeiðaformi og
kennsla fer fram síðdegis og á
kvöldin. Stundaskráin miðast við
fullorðna nemendur sem skiptast
í byrjendahóp og framhaldshópa.
Verkefni eru mismunandi og fjöl-
breytileg, en þau eru allflest vinna
á tvívíðan flöt með málningu, vatns-
liti, olíu eð akrýl. Í byrjendahópi
er lögð undirstaða sem byggist á
form- og litafræði, sem og undir-
stöðu-atriði í teiknun. Framhalds-
nemendur fá ýmiskonar verkefni
sem auka getu og sjálfstæði í vinnu-
brögðum. Farið er á myndlistasýn-
ingar og ræddir straumar og stefn-
ur í myndlist.
Myndlist auðgar andann
og gefur lífsfyllingu
Algengt er að nemendur lýsi
reynslu sinni eftir nokkra tíma í fag-
inu þannig að athyglin á umhverf-
inu sé orðin önnur og meiri en
áður var og litir og form í nánasta
umhverfi hafi hlotið nýja vídd.
Einn nemenda minna lýsti mynd-
listarnámskeiði sem bestu slökun
sem hún hefði fengið, en sá nem-
andi er reyndur hjúkrunarfræðing-
ur. Tilgangur kennslunnar er fyrst
og fremst sá að kynna fólki mynd-
listina, kenna vinnubrögð við list-
málun, leiðbeina nemendum við
að skoða myndlistina og njóta
hennar. Skemmtilegt er svo að fylgj-
ast með framförum, elju og áhuga
nemendanna í faginu og ekki leið-
inlegt hve margir eru sem sækja
tíma árum saman og halda fast í
pensilinn sinn.
Kennslustaður MYND-MÁLs er
að Látraströnd 7 á Seltjarnarnesi
og stendur nú yfir innritun á síðari
önn vetrarins. Símar 561 1525 og
822 0125.
NES FRÉTTIR 5
MYND-MÁL í 21 ár á Seltjarnarnesi
Dans, dans, dans
DANSSKÓLI BIRNU BJÖRNS KYNNIR:
JASSBALLET-FREESTYLE-STREETJASS-HIP HOP-SÖNGLEIKJADANS
Vorönn dansskólans hefst 15. janúar. Boðið er upp á vandað og markvisst dansnám undir leiðsögn þaulreyndra danskennara,
danshöfunda og atvinnudansara.
–Byrjendur og framhald frá 6 ára aldri –Innritun hafin í síma 564-4050 –Tölvupóstur: birna@dansskolibb.is –
Nánari uppl. á isf.is/dans
–Kennslustaðir;
Reykjavík-Þrekhúsið, Kópavogur-Sporthúsið, Garðabær-Betrunarhúsið
www.isf.is/dans
Lj
ós
m
yn
di
r:
J
óh
an
ne
s
Lo
ng
Rúna Gísladóttir, myndlistamaður
og kennari