Nesfréttir - 01.01.2007, Síða 8
Nú er vetrarstarf Kvenfélagsins
að hefjast. Fyrsti fundur var þriðju-
daginn 17. október. kl. 19.30 og að
þessu sinni bauð Erna Kristinsdótt-
ir konum að sækja sig heim. Þar
var haustsúpa á borðum og rætt
var um vetrarstarfið.
Ég vil hvetja allar konur til þess
að sækja kvenfélagsfundi og jafn-
vel ganga í félagið. Þar er hægt að
fá góða æfingu í því að koma fram,
halda ræður og kynna sér fund-
arsköp ásamt því að fræðast um
ýmis mál, fá góðar uppskriftir, fara
í skemmtiferðir, í leikhús, á kvenna-
þing, í utanlandsferðir og sækja
norræn sumarnámskeið sem haldin
eru til skiptis á norðurlöndunum.
Næsta námskeið verður í Danmörk
sumarið 2007 og væri tilvalið að fjöl-
menna á það. Einnig að gefa af sér
í líknarmál og huga að velferð bæj-
arbúa.
Konur í hinum ýmsu hverfum bæj-
arins ættu að hóa saman nágranna-
konum og mæta á einn til tvo fundi
til að kynnast því frábæra starfi sem
er í kvenfélaginu og styrkja tengsla-
netið í leiðinni.
Á næsta starfsári er margt
skemmtilegt framundan t.d er komið
að okkur að halda aðalfund K.S.G.K.
Þá koma konur úr Gullbringu og
Kjósarsýslu til okkar á Seltjarnar-
nes og funda og skemmta sér, skoða
þær perlur sem við eigum hér á Sel-
tjarnarnesi og borða góðan mat sem
við eldum saman og bjóðum uppá í
Seltjörn. Þessi fundur verður laugar-
daginn 3. mars.
Á fundum vetr-
arins sem eru 5
verða flutt ýmis
fræðsluerindi og
svo höfum við
alltaf eitthvað
gott til að næra
okkur á í lok
funda.
Við erum
félagar í Kvenfé-
lagasambandi Íslands, en það eru
stærstu kvennasamtök á Íslandi.
Markmið KÍ eru menningastörf - líkn-
arstörf - fræðslustörf - skemmtun -
vinabönd. Með störfum í kvenfélög-
um og samböndum þá styrkjum við
tengslanet sem eru svo nauðsynleg
ekki síst nú á tímum.
Jólafundurinn okkar var þann 19.
desember og var haldinn á heimili
Sveinbjargar Símonardóttur, gestur
var Séra Arna Grétarsdóttir. Skipst
var á gjöfum og svo fengu allir
súkkulaði með rjóma og nýbakað-
ar smákökur sem konur komu með
með sér. Það var virkilega notalegt
að eiga þessa rólegu og góðu stund
saman svona rétt fyrir jól .
Allar konur eru velkomnar á fundi
hjá okkur. Næsti fundur er aðal-
fundur félagsins og verður haldinn
í Félagsheimilinu þann 20. febrúar
kl. 20.00
Vonast til að sjá sem flestar
konur.
Edda Margrét Jensdóttir
Formaður Seltjarnar
8 NES FRÉTTIR
Auglýsingasími 511 1188
Edda Margrét
Jensdóttir.
Meiri hreyfing
Þá hefur nýtt ár gengið í garð
og eflaust margir strengt ný ára-
mótaheit. Eitt algengasta heitið
er eflaust að hreyfa sig meira.
Það þarf ekki endilega að fara í
líkamsræktina eins og margir
gera. Það er líka hægt að setja
sér markmið að nota bílinn
minna og labba í staðinn. Það
er hægt að labba okkar marg-
rómaða Neshring eða bara út í
búð ef maður er ekki að kaupa
mikið inn og ekki sakar að taka
börnin með sér. Þannig setur
maður gott fordæmi, allir fá smá
hreyfingu og svo maður tali nú
ekki um smá bensín sparnað og
minni mengun. Það er líka voða
ljúft að fá sér smá göngutúr og
enda í okkar góðu sundlaug og
slaka á í pottunum á eftir. Sumir
eru meira að segja svo duglegir
að þeir hjóla í vinnuna en það
hefur oft sýnt sig að það tekur
ekki mikið lengri tíma en að fara
á einkabílnum eða í strætó.
Gleðilegt nýtt ár.
f.h. Umhverfisnefndar
Helga Jónsdóttir
U M H V E R F I S H O R N I Ð
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Geir Harðarson
Jarðvinnu í tengslum við lagn-
ingu ljósleiðarans á Seltjarnarnesi
er lokið. Heimlögn er því komin
að nánast öllum byggingum og er
nokkuð síðan tenging lagna inn-
an húss komst á fullt skrið. Ýmsir
þættir verksins eru nokkuð á eftir
áætlun en í heild miðar vel. Í byrj-
un janúar var gengið frá samningi
milli Gagnaveitu Reykjavíkur og
Vodafone um heimilisþjónustu um
ljósleiðara Gagnaveitunnar.
Gagnaveita Reykjavíkur ehf., tók
við rekstri ljósleiðaranetsins, sem
Orkuveita Reykjavíkur hefur byggt
upp síðustu ár. Gagnaveitan er að
fullu í eigu Orkuveitunnar. Markmið-
ið með stofnun sérstaks fyrirtækis
var að skerpa skilin á milli fjarskipta-
rekstursins og reksturs annarra
veitna. Stærsta verkefni Gagnaveitu
Reykjavíkur er áframhaldandi ljós-
leiðaravæðing heimila. Samkomulag
hefur verið gert við um tug sveitar-
stjórna um ljósleiðaraleiðarateng-
ingu heimila og ná áformin nú til um
helmings þjóðarinnar.
Í samningnum fellst að Vodafone
mun framvegis veita þjónustu fyrir-
tækisins við heimili yfir ljósleiðara-
net Gagnaveitu Reykjavíkur. Voda-
fone er stærsti einstaki aðilinn sem
samið hefur verið við um aðgang
að ljósleiðaranetinu. Vodafone mun
bjóða tengdum heimilum síma, inter-
net og sjónvarpsþjónustu yfir netið
en nú þegar veita Hive, Hringiðan,
Samfélagið og FastTV þjónustu yfir
ljósleiðaranet Gagnaveitu Reykjavík-
ur. Samhliða samningi um aðgang
Vodafone að ljósleiðaranetinu tek-
ur Vodafone við rekstri dreifikerfis
fyrir dreifingu sjónvarpsefnis um
ljósleiðarann. Eftir sem áður stend-
ur þessi dreifileið öðrum efnis- og
þjónustuveitum til boða.
Árni Pétur Jónsson forstjóri Voda-
fone segir samninginn tryggja að fyr-
irtækið sé í fararbroddi þegar kem-
ur að ljósleiðaratækni og geti boðið
síma- og netþjónustu auk sjónvarps-
þjónustu með fjölbreyttari hætti en
áður. Þá felur samningurinn í sér
stækkun á dreifisvæði Vodafone
sem stuðlar að því að enn fleiri geti
notfært sér þjónustu fyrirtækisins.
Birgir Rafn Þráinsson, framkvæmda-
stjóri Gagnaveitu Reykjavíkur, seg-
ir afar mikilvægt að fá svo öflugan
þjónustuaðila inn á ljósleiðaranetið.
„Ljósleiðaratæknin er samskiptaleið
framtíðarinnar og það er mikilvægt
fyrir almenning að öflug fyrirtæki
veðji á hana og veiti þjónustu sína
yfir netið,” segir Birgir. Samhliða
samningi um aðgang Vodafone að
ljósleiðaranetinu tekur Vodafone
við rekstri dreifikerfis fyrir dreifingu
sjónvarpsefnis um ljósleiðarann. Eft-
ir sem áður stendur þessi dreifileið
öðrum efnis- og þjónustuveitum til
boða.
Gagnaveita um
ljósleiðara á Nesinu
Birgir Rafn Þráinsson og Árni Pétur Jónsson.
Kvenfélagið Seltjörn