Nesfréttir - 01.01.2007, Síða 11

Nesfréttir - 01.01.2007, Síða 11
NES FRÉTTIR 11 Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Dolomítarnir á Ítalíu. Hvað metur þú mest í fari annarra? Gott skap og heiðarleika. Hvern vildir þú helst hitta? Jim Carrey. Uppáhalds stjórnmálamaður? Enginn sérstakur. Hvað vildir þú helst fá í afmælis- gjöf? Nýja flotta tölvu. Hvað myndir þú gera ef þú ynnir 5 milljónir í happdrætti? Leggja 4/5 í banka og eyða restinni í eitthvað skemmtilegt. Hvað myndir þú gera ef þú værir bæjarstjóri í einn dag? Fá nýtt mötuneyti í Való. Að hverju stefnir þú í framtíðinni? Mennta mig fyrir lífið. Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Vann í unglingavinnunni og var mest í fótbolta. Seltirningur mánaðarins er Sigurð- ur Kr. Ingimarsson, hann æfir fót- bolta með knattspyrnudeild Gróttu. S.l. sumar vann hann ferð fyrir tvo til Madridar í Pepsi leik Ölgerðarinn- ar og Nóatúns, en megintilgangur ferðarinnar var að hitta í eigin per- sónu David Beckham leikmann Real Madrid. Sigurður fór til Madridar í lok nóvember ásamt föður sínum og hittu þeir Beckham ásamt því að taka þátt í léttri fótboltaæfingu og skoða leikvöll Real Madrid. Fullt nafn? Sigurður Kr. Ingimarsson. Fæðingard. og ár? 6. janúar 1992. Starf? Nemi í Valhúsaskóla. Bifreið? Engin. Helstu kostir? Kurteis, í góðu skapi, hreinskilinn Eftirlætis matur? Nautalundir og pizza. Eftirlætis tónlist? Alternative Roc. Eftirlætis íþróttamaður? Ruud van Nistelroy. Skemmtilegasta sjónvarpsefnið? Grín- og spennuþættir. Besta bók sem þú hefur lesið? Harry Potter. Uppáhalds leikari? Jim Carrey og Ben Stiller. Besta kvikmynd sem þú hefur séð? Lord of the Rings, Two Tower. Hvað gerir þú í frístundum þínum? Er með vinum mínum, æfi fótbolta og skíði og er í tölvuleikjum. SELTIRNINGUR MÁNAÐARINS Nýlega hefur opnað Heilsu- stofa og verslun í Eiðistorgi 13, sem heitir Nýjaland á 2.h. Þar er nýtekin til starfa Nathalie Simon nýútskrifaður hómópati LCPH . Hómópatían er heildræn meðferð sem snýst um að líkt læknast af líku,það er að einkenni manns meðhöndlast af sambærilegu ein- kenni sem koma fram í ákvedinni remedíu(smáskammta af efnum). Val smáskammtsins fer eftir ein- staklingsbundnum viðbrögðum við umhverfinu,líkamlega,andlega og tilfinningalega. Vegna hinnar miklu þynningar eru smáskammt- ar fullkomlega hættulausir og ekki ávanabindandi. Remedíum fylgja engar óæski- legar aukaverkanir og eru öruggir jafnvel fyrir ungabörn,börn,mæð- ur með börn á brjósti og ófrískar konur. Hómópatía nýtist í flest öllum tilfellum áfalla, sjúkdóma, slysa og kvilla. Hægt er að fá ráðgjöf og panta viðtalstíma í síma 5614724 milli kl.18.00 og 20.00 virka daga. Nathalie nam 4 ára nám í hómópatíu við The College of Practical Homoeopathy. Hún er meðlimur í Organon fagfélagi hómópata og Bandalagi íslenskra græðara. Hómópatía getur ekki truflað aðrar aðferðir né lyfjatöku. N‡ hómópatastofa „Okkur langar til þess að breyta dálítið til, auka vöruúrvalið og efla kaffihúsið,” segir Monika Kowalewska en hún keypti rekstur Blómastofunnar og expressóbarsins á Seltjarnarnesi ásamt manni sínum Michel Chiodo í byrjun desember á liðnu ári. Monika er ættuð frá Pól- landi en hefur búið hér á landi um nokkura ára skeið og starfað við blómasölu bæði heima í Póllandi og hér á landi. Michel er veitinga- maður, Íslendingur en af ítölsku bergi í föðurætt sem skýrir erlent nafn hans. Bakgrunnur þeirra hent- ar því vel að þeim rekstri sem þau hafa nú ákveðið að takast á við. Blómastofan og expressbarinn hafa verið rekinn við Eiðstorgið með inngangi frá Nesvegi um nokkura ára skeið. Monika segir að þessi tími, sem þau hafa rekið fyrirtækið hafi fyrst og fremst farið í að sinna jóla- versluninni en nú séu þau að huga að breytingum með það í huga að efla starfsemina og reksturinn. „Ég ætla mér að kanna hvaða vörur henta hér í verslunina auk blómanna,” segir hún og leggur áherslu á að þar muni einkum verða um aukið úrval af gjafa- vöru að ræða. Við þurfum einhvern tíma til þess að vinna þetta og það er líka ágætt að breyta smátt og smátt fremur en að gera allt í einu.” Hluti verslunarrýmisins er á yfirbyggð- um svölum, sem snúa til vesturs og norðurs með góðu útsýni norður yfir Sundin. Þau segjast vera að velta því fyrir sér að nýta þann hluta fyrir kaffihúsið í framtíðinni. Þar sé meira næði og fólk geti verið út af fyrir sig og notið útsýnisins. Expressóbarinn hefur aðeins leyfi til þess að afgreiða drykki og meðlæti en Michel hefur mikinn áhuga á að auka starfsemi hans og þjónustu. „Til þess þurfum við að breyta aðstöðunni og koma okkur upp eldhúsi. Ég hef áhuga á að geta boðið léttar veitingar í hádeg- inu og þá þarf að vera aðstaða til að útbúa þær á staðnum.” Monika vonast einnig til þess að geta boð- ið upp á heimabakaðar kökur eins og einn dag í viku. Spurningin sé ekki um vilja til þess heldur tíma til að sinna þeim þætti. Blómastofna og expressóbarinn er notaleg vin á vesturhorni Eiðstorgsins sem nýir eigendur ætla að leggja alla áherslu á að auka og bæta. Þau eru búsett í bryggjuhverfinu í Grafarvogi en Mon- ika segir þau hafa mikinn áhuga á að flytja á Seltjarnarnesið. „Mér finnst fallegt hér og það yrði einnig þægi- legra þegar við erum komin með rekstur á Nesinu.” Ætlum að auka þjónustuna Michel Chiodo og Monika Kowalewska í Blómastofunni á Seltjarnarnesi. Sigur›ur Kr. Ingimarsson og David Beckham með Gróttutreyjuna á milli sín.

x

Nesfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.