Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 25.08.2003, Síða 1
24. tbl. /03
Ritstjórn
og umsjón útgáfu:
Viktor Arnar
Ingólfsson
Ábyrgðarmaður:
Gunnar Gunnarsson
Prentun: Gutenberg
Vegagerðin gefur út Framkvæmdafréttir til að kynna útboðs-
framkvæmdir fyrir verktökum. Fyrirhuguð útboð eru kynnt,
útboðsauglýsingar eru birtar og greint er frá niðurstöðum og
samningum. Auk þess er í blaðinu annað það fréttaefni sem
verður til hjá stofnuninni og talið er að eigi erindi til verktaka.
Áskrifendur eru m.a. verktakar, verkfræðistofur og fjölmiðlar.
Áskrift er endurgjaldslaus.
Ósk um áskrift sendist til:
Vegagerðin
Framkvæmdafréttir
Borgartúni 7
105 Reykjavík
(bréfsími 522 1109)
eða vai@vegag.is
Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar 24. tbl. 11. árg. nr. 346 25. ág. 2003
Ráðstefna um ferilvöktun
og aðgerðaskráningu
í vetrarþjónustu
Dagana 1. og 2. september nk. heldur þjónustudeild
Vegagerðarinnar ráðstefnu um ferilvöktun og
aðgerðaskráningu í vetrarþjónustu o.fl. Á ráðstefnunni
verða um 10 sérfræðingar frá dönsku vegagerðinni og
munu þeir segja frá þróun hliðstæðra mála í Danmörku.
Allir fyrirlestrar verða haldnir á skandinavískum
tungumálum.
Ráðstefnan verður í Borgartúni 6, 4. hæð.
Ráðstefnugjald er 12.000 kr.
Skráning þátttöku er hjá skiptiborði Vegagerðarinnar
sími 522 1000 eða á netfangið kthj@vegagerdin.is.
Gefið upp nafn, vinnustað, síma og netfang.
Skráningu lýkur 29. ágúst.
Stjórn- og upplýsingakerfi
fyrir þjónustuverkefni
Sjá grein í opnu
Opnun tilboða
framvegis á þriðjudögum
Vegagerðin hefur orðið við óskum frá Samtökum
iðnaðarins um breytingu á opnunardegi tilboða.
Breytingin felst í því að tilboð verði opnuð á
þriðjudögum í stað mánudaga.
Breytingin hefur tekið gildi þannig að í útboðum sem
auglýst verða með opnunardegi eftir 25. ágúst skal miða
við opnun á þriðjudegi. Fyrsta þriðjudagsopnun verður
9. september. Engin breyting verður á opnunartíma að
deginum og áfram skal miða við að afhending gagna
hefjist á mánudegi.
Hringvegur (1) hjá Jökulsá í Lóni.