Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar


Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 17.11.2003, Blaðsíða 4

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 17.11.2003, Blaðsíða 4
4 Norðausturvegur um vestanvert Tjörnes Vegsvæðið einkennist af þykkum jarðvegi og djúpum giljum sem krefjast mikillar landmótunar bæði í skeringum og fyllingum. Hönnunin við þessar sérstöku og erfiðu aðstæður hefur tek- ist ágætlega. Frágangur er góður en hnökrar á útfærslu tengjast einkum jöfnun og sáningu í efsta hluta vegfláa. Verktaki: Suðurverk hf., Reykjavík. Borgnesingar taka við viðurkenningarskjali úr hendi veg- amálastjóra. Frá vinstri talið: Ingvi Árnason deildarstjóri framkvæmdakaupa, Auðunn Hálfdanarson deildarstjóri áæt- lana, Jón Rögnvaldsson vegamálastjóri og Magnús Valur Jóhannsson umdæmisstjóri. Dofri Eysteinsson framkvæmdastjóri Suðurverks hf. tók við viðurkenningarskjali fyrir hönd verktaka við Vatnaleið. 1. Dómnefnd vegna viðukenningar Vegagerðarinnar. Frá vinstri: Formaður dómnefndar Ásrún Rúdólfsdóttir gæðastjóri Vegagerðarinnar, Guðmundur Arason fyrrveran- di forstöðumaður umhverfisdeildar og Helgi Hallgrímsson fyrrverandi vegamálastjóri Viðurkenningu Vegagerðarinnar fyrir gerð og frágang að þessu sinni hlýtur Vatnaleið á Sæfellsnesi. Hönnun vegar var í hönudum áætlanadeildar Vegagerðar- innar í Borgarnesi, um eftirlit og umsjón framkvæmdar sá framkvæmdadeild Vegagerðarinnar í Borgarnesi. Frá dómnefnd Dómnefnd sú, sem skipuð var til að annast veitingu fyrstu viðurkenningu Vegagerðarinnar fyrir gerð og frágang mann- virkja, er nú að ljúka störfum. Dómnefndin hefur í störfum sínum tekið mið af orðsendingu nr. 3/2002 um reglur um slíka viðurkenningu. Í tveim atriðum hefur nefndin farið á svig við reglurnar. Þar segir að velja skuli þrjú mannvirki og raða eftir gæðum. Dómnefndin valdi fjögur verkefni og raðaði þeim ekki. Ástæða þessa var sú að þessi fjögur verkefni skáru sig nokk- uð úr að mati nefndarinnar en erfitt að gera upp á milli þeirra og því ekki efni til að raða þeim. Í ljósi þessarar reynslu legg- ur nefndin til að reglunum verði breytt þannig að velja skuli 3-5 verkefni, en þeim ekki raðað að öðru leyti en því að eitt þeirra sé valið til viðurkenningar. Í störfum sínum hefur dómnefndin fundið að áhugi er fyrir þessu máli meðal starfsmanna Vegagerðarinnar. Því er vonast til að veiting viðurkenningarinnar hvetji Vegagerðarfólk til að leggja sig fram við hönnun, gerð og frágang mannvirkja. Með tilliti til þessa er það skoðun nefndarinnnar að halda beri áfram þessu starfi, a.m.k. fyrst um sinn. Leggur hún til að viðurkenning verði veitt annað eða þriðja hvert ár og fari veit- ingin fram í lok næsta árs eftir viðmiðunartímabilið. Að lokum vill dómnefndin þakka yfirstjórn Vegagerðarinn- ar traust það sem henni var sýnt, svo og starfsmönnum fyrir ánægjulegt samstarf. Ásrún Rúdólfsdóttir Helgi Hallgrímsson Guðmundur Arason Magnús Valur Jóhannsson og Dofri Eysteinsson með viðurkenningarskjöl Vegagerðarinnar.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.