Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar


Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 17.11.2003, Blaðsíða 6

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 17.11.2003, Blaðsíða 6
6 Ráðstefna um rannsóknir Vegagerðarinnar Þann 7. nóvember sl. var ráðstefna um rannsóknir Vegagerðar- innar haldin í annað sinn. Ráðstefnugestir voru um 140 talsins. Hreinn Haraldsson framkvæmdastjóri þróunarsviðs Vega- gerðarinnar setti ráðstefnuna. Í máli hans kom fram að fyrir- hugaðar eru nokkrar breytingar varðandi rannsóknir sem fjár- magnaðar eru af Vegagerðinni. Þar er einkum um að ræða breytingar á því hvernig ný verkefni verða til og ákvörðun um þau tekin. Hugmyndin er að hluti þess fjármagns sem er til ráðstöfunar á hverju ári fari til verkefna sem Vegagerðin skil- greinir fyrirfram og fær ráðgjafa til að vinna („top down“) í stað þess að hugmyndir að nýjum rannsóknum verði í flestum tilfellum til hjá þeim sem síðan vinna verkefnin („bottom up“). Þessar breytingar munu sennilega að einhverju leyti taka gildi þegar við næstu úthlutun rannsóknarfjár snemma á næsta ári. Áður en ráðist verður í þessar breytingar er stefnt að því að Vegagerðin skilgreini rannsóknarstefnu. Vinna við þessa stefnumótun er þegar hafin hjá rannsóknardeild. Ásdís Guðmundsdóttir hjá rannsóknadeild Vegagerðarinnar, fjallaði um rannsóknarsjóð Vegagerðarinnar. Mikil fjölgun umsókna og auknar fjármagnsóskir hafa beint sjónum enn frekar að leiðum til að nýta þetta takmarkaða fjármagn betur. Þau atriði sem skoðuð verða vel í nánustu framtíð eru rann- sóknarstefna, nýtt umsóknareyðublað, útgáfa og miðlun, inn- leiðing rannsóknarniðurstaðna og mat á rannsóknum. Jarðtækni og steinefni, burðarlög og slitlög Hafdís Eygló Jónsdóttir og Hersir Gíslason, rannsóknadeild Vegagerðarinnar kynntu þróun námukerfis og námufrágang. Námukerfi Vegagerðarinnar er eini ítarlegi gagnagrunnurinn á Íslandi með almennum upplýsingum um námur. Þetta eru ekki bara vegagerðarnámur heldur allar námur í landinu og margar þeirra eru ekki lengur í notkun. Þau fjölluðu einnig um frágang á gömlum námum en samkvæmt lögum um nátt- úruvernd hvílir sú skilda á hverjum námurétthafa að ganga frá gömlum efnistökusvæðum sem hann hefur nýtt og er hættur að nota. Pétur Pétursson Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins kynnti evrópskar samanburðarransóknir á frostþoli steinefna. Verkefnið felst í samanburði á frostþolsprófum fyrir steinefni í mannvirkjagerð og ræðst það af niðurstöðum verkefnisins hvaða gildi það hefur sem innlegg í staðlagerð Evrópusam- bandsins. Jón Skúlason Almennu verkfræðistofunni hf. kynnti athug- un á fergingu vegsvæðis á mýri. Meðal annars er lagt til að við lagningu vega á mýri verði farg látið standa á fyllingu 3 til 6 sinnum lengri tíma en vatnsþrýstingur er að jafnast út í mýrarlaginu, sem þýðir í flestum tilfellum 3 til 6 mánuði hér á landi. Tæki og búnaður Nicolai Jónasson og Einar Pálsson, þjónustudeild Vegagerð- arinnar kynntu stjórnkerfi í vegaþjónustu. Tilgangur verkefn- isins var að afla þekkingar um lausnir í vegaþjónustu. Verk- efninu var skipt upp í annarsvegar ferilvöktun og aðgerðar- skráningu og verkskráningu hins vegar. Skúli Þórðarson Orion ráðgjöf ehf. kynnti prófun á nýrri gerð vegriða á snjóastöðum en það er unnið í samstarfi við Vegagerðina. Aðalhvatinn að þessu verkefni er sú staðreynd að notkun vissra vegriða eykur vandamál vegna skafrennings á vegum. Sett hafa verið upp röravegrið til prófunar. Brýr og steinsteypa Ólafur Wallevik, Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins flutti erindi um sjálfútleggjandi steypu í brúargerð. Kostir hennar eru margir. Hún er mun einsleitari en hefðbundin steinsteypa, sem minnkar hættu á steypuskemmdum. Steypu- vinnan er mun einfaldari, gengur hraðar fyrir sig, mannþörfin við niðurlögn er minni, yfirborðið betra o.s.frv. Að auki bæt- ast við ýmsir umhverfislegir kostir eins og minni hávaði frá framkvæmdum, betri heilsuskilyrði og meira öryggi. Þá flutti Ólafur Wallevik einnig erindi um nýja gerð burðarþolstrefja í steinsteypu. Trefjarnar eru úr mjög sterku plasti og er hlutverk þeirra bæði að hindra plastíska sprungu- myndun og auka burðarþolseiginleika steypu. Ólafur sýndi fram á það með eftirminnanlegum hætti hvað steinsteypa með burðarþolstrefjum hefur fram yfir hefðbundna steypu. Það gerði hann með því að grýta keilukúlu á steyptar plötur. Hefðbundin steypa brotnaði strax en steypan með burðarþols- trefjunum gaf sig ekki. Vatnafar, snjór, jöklar, jökulhlaup Árni Snorrason Vatnamælingum OS kynnti fyrir ráðstefnugest- um vöktun vatnsfalla. Markmið með rannsóknarverkefninu var að kortleggja náttúrulegar aðstæður í vatnsföllum sem falla frá eldvirkum svæðum Vatnajökuls og Mýrdalsjökuls, að þróa skynjara sem greint gætu jarðhitaáhrif og að gefa viðvörun ef vart yrði við óvanalegt ástand vatna og að lokum að þróa hug- búnað til þess að miðla þessum upplýsingum um vefinn. Helgi Björnsson Raunvísindastofnun HÍ flutti erindi um Grímsvatnahlaup: vatnsgeymi, upphaf og rennsli. Hann greindi frá vinnu við þróun líkana sem lýsa rennsli jökulhlaupa. Umferðaröryggi, upplýsingatækni Auður Þóra Árnadóttir, áætlanadeild Vegagerðarinnar hefur skoðað áhrif Hvalfjarðarganga á umferðaröryggi. Fram kom að óhöppum í öllum flokkum fækkaði. Tiltölulega litlar breytingar urðu hins vegar á óhappatíðni, þ.e. fjölda óhappa miðað við ekna vegalengd. Þó skar lækkun tíðni óhappa með miklum meiðslum á fólki sig nokkuð úr og þó að sú lækkun gæti að hluta til verið komin til af öðrum orsökum eins og t.d. öruggari bílum verður að teljast líklegt að Hvalfjarðargöng eigi þar hlut að máli. Ágúst Mogensen nemi í afbrotafræði talaði um áfengis- neyslu og akstur á Íslandi. Markmið rannsóknarinnar er að greina hvernig fólk tekur þá ákvörðun að aka ölvað, þ.e.a.s. að skoða þá þætti sem fólk tekur tillit til áður en það sest undir stýri undir áhrifum áfengis. Gagnaöflun rannsóknarinn- ar er á lokastigi. Skúli Þórðarson Orion ráðgjöf hf. fjallaði um umferðarslys og vindafar. Meginmarkmið verkefnisins er að skapa fors- endur til þess að fækka umferðarslysum á Íslandi sem að ein- hverju leyti má rekja til vindafars. Nú í vetur er ráðgert að gera vindmælingar á veginum undir Hafnarfjalli og e.t.v. á öðrum stöðum undir fjallinu til að meta umfang og breyti- leika vindáhrifa sem mun m.a. nýtast við mat á hugsanlegum mótvægisaðgerðum. Á næsta ári er æskilegt að skoða fleiri staði þar sem staðbundið vindafar veldur hættu á vegum. Ásdís E. Guðmundsdóttir deildarstjóri, rannsóknir og þróun, skrifar

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.