Nesfréttir - 01.05.2015, Side 14
14 Nes frétt ir
Arnhildur Anna Árnadóttir,
Gróttu keppti á Evrópumóti
unglinga í kraftlyftingum
sem fram fór í Ungverjalandi
9. apríl sl. Arnhildur átti
frábæran dag og nældi sér
í þrenn bronsverðlaun í
öllum greinum, hnébeygju,
bekkpressu og réttstöðulyftu.
Hún var jafnframt hársbreidd
frá bronsverðlaunum í
samanlögðum árangri. Arnhildur
bætti persónulegt met sitt um
32,5 kg og setti Íslandsmet í
hnébeygju og í samanlögðu í
opnum flokki þótt hún keppi
enn í unglingaflokki. Þá setti hún unglingamet í réttstöðulyftu. Hún lyfti
195 kg í hnébeygju, 110 kg í bekkpressu og 177,5 kg í réttstöðulyftu.
Hún reyndi við 187,5 kg í réttstöðu en það munaði einungis nokkrum
millimetrum á því að stöngin færi alla leið upp í þetta sinn. Arnhildur
mun næst keppa á Íslandsmótinu í kraftlyftingum sem fram fer í lok maí
og stefnir hún að sjálfsögðu á sigur.
Arnhildur með
þrjú brons
GETRAUNANÚMER
GRÓTTU ER
170
G r ó t t u s í Ð a n www.grottasport.is
Bikarmót FSÍ í Stökkfimi var
haldið helgina 11. til 12. apríl. Um
fjögur hundruð keppendur frá
þrettán félögum af öllu landinu
tóku þátt í mótinu, þar af þrjátíu
keppendur á aldrinum 11 til 16
ára frá Gróttu.
Grótta varð bikarmeistari í
flokki 15-16 ára B, í liðinu voru
þær Guðný Sif Sverrisdóttir, Hanna
Guðrún Sverrisdóttir, Hrafnhildur
Helga Þórisdóttir, Selma Björk
Almarsdóttir og Þóra Lucrezia
Bettaglio. Grótta átti sjö lið á
mótinu, auk bikarmeistaranna
komust þrjú önnur Gróttulið
á verðlaunapall. Þjálfarar
Gróttu stúlkna eru þær Fanney
Magnúsdóttir, Katrín Eyjólfsdóttir,
Ólöf Línberg Kristjánsdóttir og
Rósey Kristjánsdóttir. Við óskum
þeim og öllum stúlkunum til
hamingju með árangurinn.
Grótta er Íslandsmeistari kvenna
í handbolta eftir sigur á Stjörnunni
24 - 23 í Mýrinni í Garðabæ í fjórða
leik liðanna í úrslitunum. Grótta
vann þar með einvígið 3-1 og
landaði fyrsta Íslandsmeistaratitli
félagsins í hópíþrótt frá upphafi.
Mikil spenna einkenndi leikinn
og þegar 19 sekúndur voru eftir var
staðan jöfn 23-23 og Kári Garðarsson
þjálfari Gróttu tók leikhlé. Að því
loknu stillti Grótta upp í sókn sem
lauk með skoti hinnar 15 ára gömlu
Lovísu Thompson. Lovísa skoraði
sigurmarkið og tryggði Gróttu
langþráðan Íslandsmeistaratitil.
Stjörnukonur náðu forystunni í
leiknum og komust mest fimm
mörkum yfir í fyrri hálfleik en
leiddu með þremur mörkum að
honum loknum 13-10. Stjarnan náði
aftur fimm marka forystu í upphafi
síðari hálfleiksins en Grótta saxaði
fljótt á forskot Stjörnustelpnanna
og jafnaði 23-23 rétt fyrir leikslok.
Lokamínúturnar voru æsispennandi
og þegar Lovísa Thompson skoraði
fyrir Gróttu þremur sekúndum fyrir
leikslok og tryggði liðinu sigur 24-23
og þar með Íslandsmeistaratitilinn
í höfn. Lovísa Thompson skoraði
fjögur mörk fyrir Gróttu í leiknum
líkt og Eva Björk Davídsdóttir en
Anna Úrsúla Guðmundsdóttir gerði
sjö mörk. Sólveig Lára Kjærnested
var markahæst Stjörnukvenna
með sjö mörk en Esther Viktoría
Ragnarsdóttir var með fimm mörk.
Grótta er nú orðin þrefaldur meistari
í kvennahandboltanum en var einnig
orðinn deildar- og bikarmeistari.
Þess má geta að Lovísa Thompson
fagnaði Íslandsmeistaratitlinum
með páskaeggi sem hún hafði
geymt frá því um páskana eftir
að hún skoraði sigurmarkið gegn
Stjörnunni og tryggði Gróttu þar
með Íslandsmeistaratitilinn. „Ég
ákvað að geyma páskaeggið þar til að
úrslitakeppnin var búin,“ sagði Lovísa
hún við fjölmiðla eftir leikinn.
Þrefaldur meistari í
kvennahandboltanum
Íslandsmeistaratitlinum fagnað innilega. Grótta með þrjú lið
í stökkfimi
Efri röð - Lið Gróttu í flokki 15-16 ára A varð í 4. sæti af tíu liðum:
María Elísabet, Guðrún Soffía, Arnhildur og Katrín Viktoría.
Neðri röð - Bikarmeistarar FSÍ í flokki 15-16 ára B: Hrafnhildur Helga,
Hanna Guðrún, Guðný Sif, Selma Björk og Þóra.
Óskum Gróttu til
hamingju með
Íslandsmeistaratitilinn 2015