Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar


Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 25.10.2004, Side 2

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 25.10.2004, Side 2
2 Eftirlit með merkingu vinnusvæða Almennt Með vinnusvæði þar sem krafist er sérstakra vinnustaðamerk- inga (opið vinnusvæði) er átt við vinnusvæði eða flutningsleið- ir að vinnusvæði þar sem almenn umferð fer um. Umsjónarmaður/eftirlitsmaður gerir skipulega úttekt á merk- ingu vinnusvæða a.m.k. fyrir hvern verkfund. Stuðst verði við meðfylgjandi gátlista við úttektina og gefin frádráttarstig sam- kvæmt listanum sé merkingum ábótavant. Fyrstu tvær úttektir skulu gerðar að verktaka viðstöddum og verða ekki gefin frádráttarstig fyrir þær úttektir þó frávik komi fram. Úttektir Við hverja úttekt sem gerð er á vinnustaðamerkingum skal fylla út meðfylgjandi gátlista. Á eyðublaðinu eru gefin upp möguleg frádráttarstig fyrir hvert úttektaratriði en samanlagt geta þessi stig flest orðið 100. Fyrir hvern lið skal matið vera eftirfarandi: Ef 85-100% einstaks liðar uppfylla kröfur (t.d. 9 af hverjum 10 merkjum eru með endurskin í lagi) er ekkert dregið frá. Ef 60-84% uppfylla kröfur dragast 50% af mögulegum frádrætti frá (t.d. ef 70% merkja eru óhrein dragast frá 50% af 16 stigum eða 8 stig) og ef minna en 60% uppfylla kröfur dragast frá öll stig undir viðkomandi lið. Stigin eru síðan lögð saman og mynda þau einkunnir frá 0 til 10 þannig að fyrir ekkert frádráttarstig fæst einkunnin 10,0, fyrir 10 frádráttarstig fæst einkunnin 9,0, fyrir 40 frádráttarstig fæst einkunnin 6,0 o.s.frv. Ef merkingar teljast ekki fullnægjandi þarf að lagfæra þær strax og er ekki heimilt að greiða neina reikninga fyrir verkið fyrr en lagfæringu er lokið. Árangursmat Ef verktaki er með að meðaltali minna en 6 í einkunn í árang- ursmat að verki loknu áskilur Vegagerðin sér rétt til að hafna til- boðum verktaka næst þegar hann býður í verk hjá Vegagerðinni. Í árslok verður veitt sérstök viðurkenning þeim verktaka sem skarað hefur fram úr fyrir góðar vinnustaðamerkingar. Niðurstöður úttekta á vinnustaðamerkingum skal skrá í verk- fundagerðir og verða þær birtar reglulega í Framkvæmdafréttum og á heimasíðu Vegagerðarinnar. Árangurs- og eftirlitsdeild Vegagerðarinnar á Sauðárkróki skal a.m.k. einu sinni á ári gera úttekt á og meta framkvæmd eftirlits með vinnustaðamerkingum. Svæðisstjórar skulu skila inn til árangurs- og eftirlitsdeildar út- tektum á verkum þegar þeim er lokið. Deildin heldur utanum og reiknar út árangursmat verka sem síðan verður notað sem einn þáttur í árangursmati verktaka. 18.05.2004 Vegamálastjóri Rannsóknir Vegagerðarinnar Ráðstefna á Hótel Nordica 5. nóvember 2004 Aðallega verður fjallað um hluta af þeim rannsóknum sem fengu fjárveitingar úr rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar 2003. Þátttökugjald er 9.500 kr. og 2.000 kr. fyrir nema. Nánari upplýsingar um ráðstefnuna eru á heimasíðunni: http://www.vegagerdin.is/vefur2.nsf/pages/vr_7.html Dagskrá 08:00 - 09:00 Skráning 09:00 - 09:15 Setning (Hreinn Haraldsson, Vegagerðin) 09:15 - 09:30 Rannsóknarstefna (Hreinn Haraldsson, Vegagerðin og Ásdís Guðmundsdóttir, Vegagerðin) Samgöngu- og umferðarrannsóknir 09:30 - 09:45 Samgöngubætur þróun matsaðferða (Grétar Þór Eyþórsson, Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri) 09:45 - 10:00 Vegagerð og ferðamennska (Rögnvaldur Guðmundsson, Rannsóknir og ráðgjöf ferðaþjónustunnar) Upplýsingatækni og hugbúnaðargerð 10:00 - 10:15 GSM samband á þjóðvegum (Gunnar Linnet, Vegagerðin) 10:15 - 10:35 Kaffi 10:35 – 10:50 Veðurspár byggðar á reiknilíkani með þéttum möskvum (Haraldur Ólafsson, Veðurstofa Íslands) 10:50 - 11:05 Aðgerðir og skráning á vettvangi (Einar Pálsson, Vegagerðin) Umferðaröryggi 11:05 - 11:20 Umferðaröryggi að- og fráreina (Guðni P. Kristjánsson, Verkfræðistofan Hnit) 11:20 - 11:45 Hverjir aka um þjóðvegina? (Hörður Ríkharðsson, Lögreglan Blönduósi) 11:45 - 12:00 Umræður / fyrirspurnir um erindi fyrir hádegi 12:00 - 13:00 Matur Umhverfismál 13:00 - 13:15 Mat á gagnsemi uppgræðslu á Mýrdalssandi með tilliti til sandfoks og lokunar þjóðvegar (Guðrún Gísladóttir, Raunvísindastofnun Háskóla Íslands) 13:15 - 13:45 Skilvirkni mats á umhverfisáhrifum og beltanálg- un (Sebastian Peters, VSÓ) Vatnafar, snjór, jöklar, jökulhlaup 13:45 - 14:00 Eftirlit með gosum í jöklum og vötnum (Magnús Tumi Guðmundsson, Raunvísindastofnun HÍ) 14:00 - 14:15 Staðbundin skaflamyndun vegna skafrennings á vegum (Skúli Þórðarson, Orion) Myndir 14:15 - 14:30 Myndasýning (Viktor A. Ingólfsson, Vegagerðin) 14:30 - 15:00 Kaffi Jarðtækni og steinefni, burðarlög og slitlög 15:00 - 15:15 Fínefni í malarslitlög (Gunnar Bjarnason, Vegagerðin) 15:15 - 15:30 NVF-34 Samanburður á efniskröfum Norðurlanda og CEN kröfum (Pétur Pétursson, Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins) 15:30 - 15:45 Arðsemi malbiks á þjóðvegum landsins (Þorsteinn Þorsteinsson, Verkfræðistofnun Háskóla Íslands) Brýr og steinsteypa 15:45 - 16:00 Steinsteypa rannsökuð án sýnatöku (Gísli Guðmundsson, Hönnun) Tæki og búnaður 16:00 - 16:15 Ræsarör, ending (Daníel Árnason, Vegagerðin) 16:15 - 16:30 Mælitækni til stýringar á þungatakmörkunum (Nicolai Jónasson, Vegagerðin) 16:30 - 16:45 Yfrborðsmerkingar (Ásbjörn Ólafsson, Vegagerðin) 16:45 - 17:00 Umræður / fyrirspurnir um erindi eftir hádegi 17:00 Ráðstefnuslit, léttar veitingar í boði Vegagerðarinnar

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.