Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 25.10.2004, Blaðsíða 3
3
Dæmi um úttekt:
Athugasemdir eftirlitsmanns eru eftirfarandi: Fyrir liggur
uppdráttur að merkingu vinnusvæðis, samtals skulu vera 20
merki.
Á staðnum eru 18 merki, 5 stk. óhrein, 7 stk. rangt staðsett,
á einum stað er varasöm vegaskemmd sem ekki er merkt.
Mat á frádráttarstigum:
• 2 merki vantar => 18/20100 = 90% => 0% af 16 stigum
= 0 stig í frádrátt.
• 7 stk. rangt staðsett og merki sem vantar jafnframt metið
sem rangt staðsett (7+2 => 11 merki eru í lagi)
=>11/20100 = 55% => 100% af 12 stigum í frádrátt eða
12 stig.
• 5 stk. eru óhrein og merki sem vantar jafnframt metin
sem óhrein =>13/20100 = 65% => 50% af 16 stigum í
frádrátt eða 8 stig.
• 2 merki sem vantar telja einnig fyrir endurskin og aðra
úttektarþætti, þ.e. 18 af 20 teljast uppfylla kröfur um
endurskin, stöðugleika, halla o.s.frv., þ.e. 18/20100 =
95% gefa 0% frádrátt eða 0 stig, fyrir aðra liði.
• Slæm vegaskemmd er ekki merkt á fullnægjandi hátt sem
gefur 12 frádráttarstig.
• Heildarstigafjöldi er þannig 0+12+8+12+0+0+0+0 = 32
frádráttarstig af 100 mögulegum sem gefur einkunnina
(100-32)/10 = 6,8.