Akureyri - 16.07.2015, Blaðsíða 4

Akureyri - 16.07.2015, Blaðsíða 4
4 5. árgangur 27. tölublað 16. júlí 2015 www.sagatravel.is Framkvæmdastjóri MEÐ STARFSAÐSTÖÐU Á AKUREYRI Ferðaþjónustufyrirtækið Saga Travel leitar að framkvæmdastjóra. Saga Travel er framsækið ferðaþjónustufyrirtæki þar sem áhersla er lögð á fjölbreytta þjónustu og vöruþróun. Leitað er eftir einstaklingi með mikla skipulags- og samskiptahæfileika og sérstök áhersla lögð á sjálfstæð og öguð vinnubrögð. Starfs- og ábyrgðarsvið » Ábyrgð á daglegum rekstri » Ábyrgð og eftirfylgni með rekstraráætlun » Aðkoma að stefnumótun » Mannauðsstjórnun » Upplýsingag jöf til stjórnar Menntunar- og hæfniskröfur » Háskólapróf og / eða mikil reynsla sem nýtist í starfi » Reynsla af mannauðsstjórnun » Reynsla af verkefnastýringu » Leiðtogahæfni » Geta til að leiða mál til lykta » Sveig janleiki » Geta til að vinna undir álagi » Mjög gott vald á ritaðri enskri tungu Umsóknarfrestur er til og með 31. júlí 2015 og viðkomandi þarf að geta hafið störf eigi síðar en 1. september 2015. Óskað er eftir ítarlegri starfsferilskrá með umsókn. Saga Travel hvetur jafnt konur og karla til að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað og farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Frekari upplýsingar um starfið veitir Sævar Freyr í síma 825 8888 eða á netfanginu job@sagatravel.is. www.sagatravel.is Framkvæmdastjóri MEÐ STARFSAÐSTÖÐU Á AKUREYRI Ferðaþjónustufyrirtækið Saga Travel leitar að framkvæmdastjóra. Saga Travel er framsækið ferðaþjónustufyrirtæki þar sem áhersla er lögð á fjölbreytta þjónustu og vöruþróun. Leitað er eftir einstaklingi með mikla skipulags- og samskiptahæfileika og sérstök áhersla lögð á sjálfstæð og öguð vinnubrögð. Starfs- og ábyrgðarsvið » Ábyrgð á daglegum rekstri » Ábyrgð og eftirfylgni með rekstraráætlun » Aðkoma að stefnumótun » Mannauðsstjórnun » Upplýsingag jöf til stjórnar Menntunar- og hæfniskröfur » Háskólapróf og / eða mikil reynsla sem nýtist í starfi » Reynsla af mannauðsstjórnun » Reynsla af verkefnastýringu » Leiðtogahæfni » Geta til að leiða mál til lykta » Sveig janleiki » Geta til að vinna undir álagi » Mjög gott vald á ritaðri enskri tungu Umsóknarfrestur er til og með 31. júlí 2015 og viðkomandi þarf að geta hafið störf eigi síðar en 1. september 2015. Óskað er eftir ítarlegri starfsferilskrá eð umsókn. Saga Travel hvetur jafnt konur og karla til að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað og farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Frekari upplýsingar um starfið veitir Sævar Freyr í síma 825 8888 eða á netfanginu job@sagatravel.is. Starfsemi Aflsins í upp- námi vegna fjárskorts Bæjarráð Akureyrar hefur samþykkt með öllum atkvæðum bæjarfull- trúa bókun þar sem skorað er á fé- lagsmálaráðherra að tryggja Aflinu, samtökum gegn kynferðis- og heim- ilisofbeldi, nægilegt fjármagn. Aflið hefur starfað á Akureyri frá árinu 2002. Starfsemin hefur ávallt byggt á ósérhlífni hugsjónafólks og er það samdóma álit þeirra sem til þekkja að þar hafi verið unnið ómetanlegt starf í gegnum tíðina, eins og segir í bókun bæjarstjórnar. Aflið hefur átt í góðu samstarfi við þá aðila sem koma að þjónustu við þolendur ofbeldis, svo sem Akureyrarbæ, lögregluna á Akureyri, slysa- og bráðamóttöku SAk, geðdeild SAk, Kvennaathvarfið í Reykjavík og Símey. „Fyrir marga er það mjög stórt skref að leita sér hjálpar. Það skipt- ir því máli að aðgengið að þjónust- unni sé gott, en Aflið hefur opinn síma allan sólarhringinn, auk þess að taka við beiðnum í tölvupóstum og á samskiptamiðlum. Ráðgjafar eru í viðbragðsstöðu og stökkva til með litlum fyrirvara ef nauðsyn krefur. Mikilvægt er að þolendur geti unnið úr reynslu sinni í heima- byggð óháð efnahag,“ segir í bókun bæjarstjórnar. Fjárframlög af hálfu hins opin- bera hafa þó verið af mjög skornum skammti. „Starfsemi Aflsins hefur liðið fyrir fjárskort og allt of mikill tími og orka hefur farið í fjáröflun til að standa undir brýnustu ver- kefnum. Aflið hefur því reglulega sent út neyðarkall sem félagasam- tök, einstaklingar og fyrirtæki víðs vegar á Norðurlandi hafa svarað með fjárframlögum. Þrátt fyrir að framlög til Aflsins hafi aukist lítil- lega á undanförnum árum er stað- an sú að starfsemi samtakanna er í uppnámi. Aflið hefur ekki efni á að ráða starfsmann, þó ekki væri nema í hálft starf. Öll umsýsla og fjáröflun hvílir því á herðum sjálfboðaliða,“ segir í bókun bæjarstjórnar. „Aflið gegnir gríðarlega mik- ilvægu hlutverki á Akureyri og á Norðurlandi öllu, ef ekki víðar. Þótt það sé jákvætt að þjónusta við þolendur sé efld með ráðningu sálfræðings á SAk kemur það ekki í stað þeirrar þjónustu sem Aflið veitir. Rannsóknir hafa sýnt að jafningjastuðningur við úrvinnslu ofbeldisreynslu er afar mikilvægur í bland við faglegan stuðning. Þar gegna félagasamtök mjög mikil- vægu hlutverki. Fyrir hönd samfélagsins og þolenda ofbeldis óskum við þess að félagsmálaráðherra tryggi Aflinu nauðsynlegt fjármagn til að standa vörð um sambærilega þjónustu á landsbyggðinni og veitt er á höfuð- borgarsvæðinu.“ AÐEINS 4 MILLJÓNIR FRÁ RÍKINU Eva Hrund Einarsdóttir, bæjar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, flutti ræðu þegar málið var tekið fyrir innan bæjarstjórnar og sagði þar meðal annars: „Á síðasta ársfundi Aflsins kom skýrt fram að ef ekki fengist fjármagn til starfsins þá myndi starfsemi þess með tímanum leggjast niður. Ég segi bara eins og maður segir við börnin, það er ekki í boði. En það gefur að skilja að starfsemi sem þessi getur ekki lifað á hugsjóninni einni, aðilar geta ekki verið sjálfboðavinnu sem þessari svo árum skiptir. Fjárskortur hefur grafið undan starfinu og á einhverj- um tímapunkti þá gefst fólk upp.“ Árið 2014 fékk Aflið til rekstr- ar aðeins 4 milljónir frá ríkinu. „Hvernig getum við á landsbyggðinni sætt okkur við það á meðan framlög ríkisins til Stígamóta og Kvenna- athvarfsins í Reykjavík eru á sama tíma 130 milljónir þó ég vilji taka fram að þau teljist ekki oftalin af því?“ Spurði Eva Hrund í ræðu sinni. Veruleg aukning hefur verið á skjólstæðingum síðustu árin hjá Aflinu og er það kannski að hluta til vegna vitundarvakningar. En á sama tíma hefur fjárframlag rík- isins lítið sem ekkert aukist. Um 980 einkaviðtöl voru veitt í Aflinu árið 2014. 980 viðtöl fyrir alls 189 einstaklinga en til samanburðar þá voru á sama tíma tekin 2146 viðtöl hjá Stígamótum. „Miðað við það starf sem er verið að sinna hjá Aflinu þá er nauðsyn- legt að ríkið geri fastan samning um fjárhagslegan stuðning til nokkurra ára. Í það minnsta tryggi að það sé aukið fjármagn til þess að ráða í stöðu til þess að sjá um utan- umhald rekstursins svo ráðgjafarn- ir geti sinnt því sem þeir eru bestir í. Það er mín skoðun að það yrði miklu dýrara til lengri tíma litið að leggja ekki fé í verkefnið,“ sagði Eva Hrund. -BÞ Hársbreidd frá dauða vegna sms Árið 2011 hefur verið rakið að næstum fjórða hvert umferðarslys hafi orðið vegna þess að ökumaður var að senda sms með snjallsíma. Mikilli herferð hefur verið hrund- ið af stað þar vestra vegna fjölda banaslysa sem rekja má til snjall- símanotkunar. Tölfræðin segir að líkur á umferðarslysi aukist 23-falt ef öku- menn nota símann sinn á akstri til að senda sms eða skoða efni í síma á meðan. Lítið hefur farið fyrir átaki um þessi mál hér á landi en Pétur Halldórsson, fyrrum útvarpsmað- ur hjá Ríkisútvarp- inu og núverandi starfsmaður Skóg- ræktar ríkisins, tel- ur að aðeins hafi munað hársbreidd að hann léti lífið í umferðarslysi síðast- liðinni mánudag. Kenna megi um snjallsímanotkun ungs ökumanns. Pétur var á leið upp göngu/hjóla- stíg þegar bíll kom í loftköstum og þurfti að láta sig vaða út í skóg til að bjarga lífi sínu. Pétur hefur skrifað um reynslu sína á facebook. Hann var á reiðhjóli sínu á leið upp stíginn sem liggur með fram Naustavegi á Akureyri, götunni sem liggur fram hjá Skautahöllinni og upp í Naustahverfi. „Þegar stutt er eftir upp á brekkuna heyri ég mikla skruðninga og sé hvar fólksbíll tekur á loft og stefnir beint á mig. Þarna gengur vegrið ofan í jörðina og var eins og stökkbretti fyrir bíl- inn sem sveif tíu metra, lenti þá aftur á vegriðinu en fleytti svo kell- ingar á brúninni inn- an við vegriðið. Ég hélt eitt augna- blik að þetta væri mitt síðasta og ákvað að hjóla fram af brekkubrúninni og ofan í skóginn sem þar er fyrir neðan. Þar endastingst ég og fæ hjólið í hausinn en hjálmurinn bjargaði mér. Um leið heyri ég að bíllinn skellur nið- ur og stöðvast,“ segir Pétur. „Ég brölti á fætur og upp á stíginn aft- ur. Þar er strax komin kona sem hafði stöðvað bíl sinn og stokkið á vettvang. Hún er farin að rýna inn í bílinn sem þarna stóð á réttum kili þversum á stígnum þar sem ég hafði verið að hjóla. Bens- ín lekur úr bílnum og hann er all- ur mjög krambúleraður og greini- lega ónýtur. Rúður eru brotnar og hliðarrúðan farþegamegin fram í maski þannig að við sjáum öku- manninn, stúlku sem varla hefur haft ökuprófið lengi. Við hlið henn- ar í sætinu liggur snjallsíminn.“ Pétur segir að eftir að lögregla og sjúkrabíll komu á vettvang hafi ökumaður, ung kona, viðurkennt að hafa verið í símanum. Svo hafi hún brotnað saman. „Ég segi lögreglu sögu mína. Hjóla svo í áttina heim. Hjólið virðist í lagi og ég sjálfur. Sjálfsagt marinn einhvers staðar en ekkert sem þarf að nefna. Hitti á leiðinni dóttur mína og frænku hennar sem er í heimsókn. ,,Horfði hún ekki á myndbandið,’’ spyr hún sem tók bílpróf fyrir einu ári. Ökunemum er sýnt myndband um hættuna af því að nota síma í akstri. Það virð- ist ekki hafa hrifið á þessa ungu stúlku sem þarna rétt slapp við að kála tæplega fimmtugum hjólreiða- manni,“ segir Pétur og tekur fram í færslu sinni að þetta hafi verið í annað skipti þennan sama daga sem hann hafi orðið vitni að skað- legri símanotkun ökumanns. Samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Akureyri stöðvar hún iðurlega ökumenn vegna síma- notkunar undir stýri. Sekt fyrir slíkt brot er kr. 15.000 krónur. -BÞ Hér sést bifreiðin, illa farin eða ónýt, en hún staðnæmdist þar sem Pétur Halldórsson lullaði upp brekku á hjólinu sínu og átti sér einskis ills von. Mynd: PH Pétur Halldórsson: Þurfti að hugsa hratt og hendast fram af stíg út í skóg þegar bíll kom í loftköstum og hafnaði hárs- breidd frá honum.

x

Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.