Akureyri - 16.07.2015, Page 10

Akureyri - 16.07.2015, Page 10
10 5. árgangur 27. tölublað 16. júlí 2015 Má bjóða þér ráðgjöf? Landslagsarkitekt verður á Akureyri 17. júlí. Pantaðu tíma í síma 412 5204 og gerðu garðinn þinn að sannkölluðum sælureit. Úrval af vörum sem gera garðinn eins viðhaldsléttan og kostur er. Við erum við Austursíðu 2 TERRA TORGSTEINN PI PA R\ TB W A • SÍ A • 15 33 43 BM Vallá · Austursíðu 2 · Akureyri · Sími: 412 5204 · sala@bmvalla.is · Opið mán.–fös. kl. 8–17 Ráðgjöf hjá landslagsarkitekt sem mótar hugmyndir og helstu útfærslur með þér. Aðstoð við efnisval. Tölvugerð vinnuteikning með útfærslu, efnislista o.fl. fylgir. Hestaferđir Við bjóðum upp á stuttar hestaferðir alla daga sem henta knöpum á öllum aldri og með mismunandi reynslu. Kaffi og kökur fylgja í lok hverrar ferðar. www.polarhestar.is Vinsamlegast bókið með fyrirvara: 89 6 1879 Pólar Hestar – Grýtubakki II – 601 Akureyri Upplagt að líta við á Grenivík í leiðinni: www.grenivik.is Skoðaðu vefútgáfu blaðsins á akureyri.net Tveir vinir á hring- ferð – gott mál! Hálfrar aldar draumur tveggja vina hefur orðið að veruleika en þeir fara nú hringferð á traktorum í kringum landið. Þeir kalla sig Vini Ferguson og fara hringinn á tveim- ur Massey Ferguson traktorum. Annar þeirra var traktorinn sem þeir unnu á í sveitinni fyrir fimm- tíu árum síðan. Þetta eru þeir Karl Friðriksson, framkvæmdastjóri hjá Nýsköp- unarmiðstöð Íslands, og Grétar Gústavsson, meistari í bifvélavirkj- un og áhugamaður um búvélar og fornbíla. Þeir voru saman í sveit á bænum Valdarási frá fimm ára aldri fram á unglingsár og unnu ýmis sveitastörf. Draumurinn kviknaði þegar þeir þeir byrjuðu að vinna á traktornum, sem verður annar fararskjótinn þeirra í ferðinni. „Við vonum auðvitað að sem flestir hvetji okkur áfram með því að hringja í söfnunarsímanúmer- ið eða leggja inn á bankareikning Barnaheilla, því samtökin vinna að mörgum þörfum verkefnum í þágu allra barna á Íslandi,“ segir Grétar en ferðin er farin gegn einelti og til að styrkja Barnaheill. a Frelsi fótgangandi aukið Á síðasta fundi skipulagsnefnd- ar Akureyrarbæjar var samþykkt tillaga um að göngugötunni í mið- bænum verði lokað fyrir bílaumferð frá kl. 11–16 á föstudögum sem og laugardögum til loka ágúst. Í framhaldinu verða unnar verklags- reglur um lokun götunnar í sam- ráði við hagsmunaaðila á svæðinu. Athygli er vakin á því að fötluðum vegfarendum er heimilt að aka um Brekkugötu og Ráðhústorg að bíla- stæði fatlaðra við skrifstofu sýslu- manns í norðanverðu Hafnarstræti. Einnig hefur verið samþykkt ósk frá Listasafninu á Akureyri um að Grófargili (Listagili) verði lok- að fyrir bílaumferð frá kl. 14–17 á laugardögum þegar sýningar eru opnaðar á vegum safnsins. Þeir dagar sem um ræðir eru 25. júlí og 1., 15., 22. og 29. ágúst. a Norðvesturland enn sagt út undan Sveitarstjórnarmenn í Skagafirði hafa lýst óánægju með að Hofsós hafi ekki hlotið náð sem „brothætt byggð“ samkvæmt nýkynntu mati Byggðastofnunar. Óháðir og VG í Skagafirði hafa ályktað þar sem segir að það séu vonbrigði að Hofs- ós hafi ekki lent í flokknum. „Verður þessi niðurstaða að teljast bæði mik- il vonbrigði og alsendis óviðunandi. Skýringin mun vera fjárskortur, en fjármagn er jafnan á þrotum hjá stjórnvöldum þegar NV er annars vegar,“ segir í ályktun þeirra Atvinnumálanefnd Skagafjarð- ar samþykkti 12. maí 2014 tillögu þáverandi formanns um að sækja um þátttöku fyrir Hofsós í verk- efninu „Brothættar byggðir“ Ef byggð fyllir þann flokk hefur gjarn- an fylgt sérstakur byggðakvóti til að efla sjósókn. „Eðlilegt er að Sveitarfélagið Skagafjörður krefji stjórnvöld um frekari skýringar á þessari niðurstöðu og tryggt verði fjármagn á fjárlögum næsta árs til að taka Hófsós inn í verkefnið.“ Grímsey er meðal nýrra byggða sem Byggðastofnun flokkar sem brothætta byggð en þar er mikill vandi vegna skuldetningar útgerða sem ógna byggð í eynni, eins og Ak- ureyri vikublað sagi fyrst fjölmiðla frá. -BÞ Auðunn Níelsson.

x

Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.