Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 19.02.2007, Qupperneq 6
6
Vegna bilunar og viðgerða á brúnni yfir Jökulsá á Fjöllum, við
Grímsstaði, er hámarkshraði þar lækkaður niður í 30 km/klst. og eru öku-
menn beðnir að gæta mikillar varúðar þegar ekið er yfir. Sérstaklega er
áríðandi að stjórnendur þungra ökutækja sýni fyllstu aðgát, aki hægt inn
á brúna og bremsi ekki á brúnni. Einnig er mikilvægt að aðeins sé einn
þungur bíll á brúnni í einu.
Frestur til að skila inn umsóknum um fjárveitingu úr rann-
sóknasjóði Vegagerðarinnar fyrir árið 2007, rann út þann 5.
febrúar síðastliðinn.
Alls bárust 159 umsóknir og heildarupphæð umsókna
var um 320 m.kr. Sjóðurinn hefur 117 m.kr. til ráðstöfunar
árið 2007.
Rannsóknaráð Vegagerðarinnar fjallar nú um umsókn-
irnar og vonast er til að úthlutun verði lokið um mánaðar-
mótin febrúar/mars næstkomandi.
Velflestum verkefnum sem Vegagerðin styrkir lýkur með
því að skrifaðar eru skýrslur og eru þær settar á vefsíðu
Vegagerðarinnar (www.vegagerdin.is) öllum opnar til skoð-
unar. Sjá „Upplýsingar og útgáfa / Rannsóknaskýrslur“.
Hér á eftir er gerð örstutt grein fyrir efni tveggja þeirra
skýrslna sem komu hafa út og eru dagsettar árið 2006.
Svona kynningar verða framvegis birtar reglulega hér í
blaðinu í ramma eins og þessum.
Frá rannsóknasjóði Vegagerðarinnar
Sjónræn áhrif í íslenskri vegagerð
Í skýrslunni er fjallað um atriði sem hafa ber í huga við
hönnun vega til þess að samspil vegar og umhverfis verði
sem best. Niðurstöður verkefnisins gefa vísbendingar um
að sjónræn aðlögun íslenskrar vegagerðar að landinu sé
almennt góð, en það séu engu að síður vannýtt sóknarfæri
á þessum vettvangi.
Virkni vegriða við vetraraðstæður
Í skýrslunni er gerð grein fyrir sambandi milli vegriða
og skafrennings og fjallað um helstu vegriðsgerðir sem
notaðar hafa verið á snjóasvæðum í öðrum löndum. Þá
er fjallað um tilraun með Sicuro röravegrið hérlendis.
Árangur hefur verið mjög góður og sýnt hefur verið fram
á að þau standa hefðbundnum vegriðum mun framar þegar
kemur að skafrenningi og snjómokstri á vegum.
Jökulsá á Fjöllum