Reykjavík - 19.12.2015, Side 4

Reykjavík - 19.12.2015, Side 4
4 19. Desember 2015REYKJAVÍK VIKUBLA Ð Ufsaflök velt upp úr eggi Fyrir og eftir kjötát um jólin er vel við hæfi að hafa fisk á borðum. Uppskrift vikunnar frá Úlfari á Þremur Frökkum er að þessu sinni ufsaflök velt upp úr eggi. Úlfar segir galdurinn við þessa uppskrift vera „að hafa pönnuna ekki of heita því þá kemur bragð í eggið, eins og gerist með ofsteikt spælegg. Fiskurinn verður einstaklega safaríkur með þessum hætti því allur safi lokast inni við steikinguna“. Úlfar nefnir að ufsaflök, því þau fáist á góðu verði, en annars megi nota hvaða fisk sem er. Flökin eru skorin í bita, tveir bitar á mann. Þeim er velt upp úr hveiti og síðan upp úr eggjunum sem búið er að píska til. Flökin eru síðan sett á pönnuna, ekki of heita, og steikt á annarri hlið í þrjár mínútur. Þá er stykkjunum snúið við, pannan tekin af hitanum og smjöri bætt út á pönnuna. Gott að bera fram með kartöflum, steiktum lauk og kokteilsósu, eða re- múlaði. Hráefni: 800 gr ufsaflök, roð- og beinlaus Þrjú egg 100 gr hveiti Salt Smjörlíki Í seinasta tölublaði ræddi ég við Margréti Kristmannsdóttur, fram-kvæmdastjóra Pfaff, sem hefur látið mikið að sér kveða í félagsstörfum fyrir verslunina. Í viðtalinu sagði hún meðal annars: „Það er eins og menn haldi að þensla og hrun með reglulegu millibili sé lögmál og stöðugleiki eitthvað sem eingöngu þekkist í útlöndum. Afleiðingin er sú að menn halda að sér höndum í fjárfestingum og spila alltof mikinn varnar- leik. Við vinnum enga leiki við þær aðstæður, gerum í mesta lagi jafntefli. Í pólitíkinni hér er síðan of mikið argaþras og of miklar sveiflur.“ Rétt er að taka undir þess orð Margrétar. Þjóðfélagið þarfnast meiri stöðugleika og festu. Nú á jólum er okkur hollt að horfa til þess sem sameinar og getur orðið til að auka eindrægni og frið í samfélaginu. Að því sögðu óska ég lesendum gleðilegra jóla árs með þökkum fyrir samfylgdina á árinu sem er að líða. Björn Jón Bragason Eindrægni og friður í samfélaginu Sólgljá jólafanna glæðir djörfustu drauma dauðlegra manna. Davíð Stefánsson frá Fagraskógi, 1895–1964. Úr bókinni Ljóð frá liðnu sumri. FORYSTUGREIN Mikilvægt er að meta kosti og galla aðildar Íslands að ESB með faglegri úttekt og nákvæmu hagsmunamati. Skýrslur Alþjóðastofnunar HÍ og Hagfræðistofnunar HÍ frá í fyrra sögðu báðar að ljúka þyrfti við- ræðum við ESB áður en niðurstaða fengist í þessu hagsmunamati. Báðar skýrslurnar bentu þó til þess að hagsmunum Íslendinga væri betur borgið innan sambandsins en utan. Mikilvægast er því að ljúka samn- ingum við ESB og leggja áherslu á að meta kosti aðildarsamnings með alla hagsmunaaðila á Íslandi í huga. - Thomas Möller í pistli á Hringbraut, 2. desember sl. Róbert Marshall er orðinn úrkula vonar um að halda sinni þægilegu innivinnu á alþingi fyrir hönd Bjartrar fortíðar. Vill sameiginlegt framboð „umbótaafla“ undir forustu Katrínar Jakobsdóttur. Katrín á með hjálp Árna Páls að fleyta Róbert inn á þing í næstu kosningum. Þar fyrir utan er liðsbónin ákall um, að helztu taparar stjórnmálanna sameinist í nýju hræðslubandalagi. „Góða fólkið“ í flokkunum þremur hefur saman styrk á við „vonda fólkið“ í Sjálfstæðisflokknum. Píratar geta þá valið, hvort þeir kippa góða eða vonda fólkinu uppí til sín í nýrri stjórn. Róbert á því enn nokkra von um þægilega innivinnu næstu árin. - Jónas Kristjánsson á jonas.is, 15. desember sl. Breyta ber reglum um skipan dómara að Hæstarétti og afnema með öllu áhrif sitjandi dóm- ara þegar ákvarðanir um það efni verða teknar. Ýmsar leiðir eru færar til að ná þessu markmiði. Ein er sú að skipa nefnd sérfræðinga til að segja til um hæfni umsækjenda en þó þannig að hinum hæfu verði ekki raðað í forgangsröð. Heimild til slíks hefur verið misnotuð með þeim hætti að öllum, sem kynna sér málið, ætti að vera ljóst. Hugsanlega gæti slík nefnd valið þá þrjá úr sem hún teldi hæfasta og ráðherra síðan valið úr þeim hópi. Einnig væri unnt að láta fylgja reglu um að Alþingi staðfesti ákvörðun ráðherra. - Jón Steinar Gunnlaugsson á Pressunni, 8. desember sl. Svo ég vitni nú í sjálfa mig, nánar til tekið í formála að næstu bók minni, sem var einmitt að fara í prentun: ,,Auðvitað skiptir líka máli hvað maður lætur ofan í sig en matur sem hefur á sér holl- ustustimpil er ekki endilega hollur ef maður borðar hann án umhugsunar og í óhófi. Nokkrar möndlur eru gott nasl milli mála en ef þú opnar möndlupoka og situr svo og teygir þig í hverja möndluna af annarri og stingur upp í þig umhugsunarlaust er pokinn orðinn tómur fyrr en varir. Og það eru nokkuð margar hitaeiningar.“ - Nanna Rögnvaldsdóttir á síðu sinni, 14. desember sl. AF NETINUFleyg ummæli REYKJAVÍK VIKUBLAÐ 34. TBL. 6. ÁRGANGUR 2015 ÚTGEFANDI: Pressan ehf. Kringlunni 4-6, 103 Reykjavík. ÁBYRGÐARMAÐUR: Björn Ingi Hrafnsson, netfang: bjorningi@pressan.is, AUGLÝSINGASTJÓRI: Ámundi Ámundason sími 824- 2466, netfang, amundi@fotspor.is. AUGLÝSINGAR: Sími: 578-1190 & netfang: auglysingar@ fotspor.is. RITSTJÓRI: Björn Jón Bragason, sími: 897-7040 netfang: bjornjon@pressan.is UMBROT: Prentsnið, PRENTUN: Landsprent, 50.000 eintök. DREIFING: FRÍBLAÐINU ER DREIFT Í 50.000 E INTÖKUM Í ALLAR ÍBÚÐIR Í REYKJAVÍK OG Á SELTJARNARNESI UPPSKRIFT VIKUNNAR: Úlfar Eysteinsson Laugavegur 13 Kristján Siggeirsson reisti húsið að Laugavegi 13 árið 1953, en verslunar- og iðnrekstur á þessum stað á sér langa sögu. Kristján var fæddur árið 1894, sonur Siggeirs Torfasonar, kaupmanns í Reykjavík, og konu hans Helgu Vigfúsdóttur. Að loknu námi í Verslunarskóla Íslands nam Kristján húsgagnasmíði og stund- aði framhaldsnámskeið um skeið í iðn- grein sinni í Þýskalandi. Hann lauk meistaraprófi í húsgagnasmíði árið 1913. Tuttugu og fimm ára að aldri, eða nánar tiltekið 14. ágúst 1919, stofnsetti Kristján húsgagnaverslun, en hún var allt frá byrjun staðsett að Laugavegi 13, í húsnæði sem var í eigu föður Krist- jáns. Fyrst í stað hafði hann eingöngu á boðstólum húsgögn er hann flutti sjálfur inn erlendis frá, en á þeim árum var innflutningur húsgagna frjáls. Mest var keypt inn frá Danmörku, Svíþjóð og Þýskalandi, en í tenglsum við versl- unina var lítið verkstæði til að setja saman húsgögn. Strax á fyrstu árum fyrirtækisins var þó hafin framleiðsla á húsgögnum, en verkstæðið var í bakhúsum að Lauga- vegi 13. Þar unnu um tíu til fimmtán menn við framleiðslu. Þá voru einkum framleiddar ýmsar tegundir af stofu- skápum, kommóðum, grindum fyrir sófasett og fleira, því að bólstrun var einn þáttur starfseminnar. Einnig var um skeið rekin málaravinnustofa, þar sem húsgögn voru máluð. Árið 1922 keypti Kristján húseign- ina að Laugavegi 13 af föður sínum og reisti steinsteypt hús austan við það sex árum síðar. Á neðstu hæð þess húss var húsgagnverslunin staðsett. Á þeim árum seldi verslunin um þrjú þúsund stóla á ári, sem var gríðarlega mikið á þeirra tíma mælikvarða. Árið 1937 var byggt hús að Smiðjustíg 6 fyrir framleiðsluna og aftur var byggt við húsið 1942. Jafnframt þessum auknu umsvifum fjölgaði starfsmönnum fyr- irtækisins og það hafði meira umleikis en áður. Árið 1953 var hornhúsið að Laugavegi 13 flutt og byggt þar versl- unar- og skrifstofuhús, sem er eitt hið stærsta í miðbænum. Kristján Siggeirsson hf. óx ár frá ári og 1963 voru fengnir sænskir tækni- menn til að gera skipulag að nýrri verk- smiðju sem hóf rekstur ári síðar. Hér var um stórt stökk að ræða frá lítilli verksmiðju við Smiðjustíg í 2500 fer- metra verksmiðju við Lágmúla. Við inngöngu Íslands í EFTA árið 1970 hófst á nýjan leik innflutningur á hús- gögnum, en framleiðslan var áfram umfangsmikil. Kristján var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu 1974. Hann stýrði fyrirtæki sínu allt þar til hann lést 1975. Síðustu árin naut hann þó dyggrar aðstoðar sonar síns, Hjalta Geirs húsgagnaarkitekts. Árið 1983 opnaði fyrirtækið hús- gagnaverslunina Habitat að Laugavegi 13 í samstarfi við Habitat-fyrirtækið í Bretlandi. Með þessu stækkaði Krist- ján Siggeirsson hf. viðskiptamanna- hóp sinn, en í Habitat fengust einkum húsgögn og búsáhöld í björtum litum á viðráðanlegu verði. Húsgagnaverslanirnar eru horfnar á braut, en að Laugavegi 13 er nú meðal annars rekin Gullkúnst Helgu. Krist- ján Siggeirsson hf. sameinaðist Gamla Kompaníinu hf. árið 1990 og stofnað var nýtt stórfyrirtæki í íslenskum hús- gagnaiðnaði GKS sem enn starfar með miklum myndarbrag. Heimildir: Morgunblaðið, 25. ágúst 1979, Frjáls verslun, 8. tbl. 1979 og fleiri. Sundferð úr 650 kr. í 900 kr. Reykjavíkurborg hefur samþykkt gjaldskrárhækkanir fyrir næsta ár. Fæðisgjald fyrir börn giftra í leik- skólum hækkar úr 8.060 kr. í 8.320 kr. Vistun á frístundaheimili í fimm daga mun fara úr 12.350 kr. í 12.750 kr. Þá verður stakt gjald í sund hækkað úr 650 kr. 900 kr. Leiga á handklæði fer úr 550 kr. í 570 kr. Gjald vegna endur- vinnslustöðva fyrir íbúðarhúsnæði fer úr 6.950 í 7.980 og gjald fyrir aukalosun sorps fer úr 3.720 í 3.790. Þjónustugjöld í íbúðum aldraðra hækka um sem nemur 3,2 prósentum og heimaþjónusta hækkar um 3,1 pró- sent. Einnig hækkar verð á aksturs- þjónustu aldraðra, fer úr 1.095 kr. fyrir hverja ferð í 1.130 kr. HÚSIN Í BÆNUM Hraðlestir Á dögunum spunnust umræður um hraðlest milli Reykjavíkur og Keflavíkurflugvallar, sem sumir telja raunhæfan kost. Í því sam- bandi má geta að árið 2014 fóru 6,8 milljónir farþega með Flytoget milli Gardermoen-flugvallar og Óslóar, en það er sama vegalengd og milli Keflavíkurflugvallar og BSÍ. Árið 2014 fóru 24,2 milljónir farþega um Gardermoen. Um Keflavíkurflugvöll fara um fimm milljónir farþega í ár. Áætlaður kostnaður við Flytoget var 4,3 milljarðar norskra króna árið 1994. Endanlegur kostnaður nam 7,7 millj- örðum norskra króna við lok fram- kvæmda 1999. Þessi stofnkostnaður var afskrifaður af norska ríkinu því reksturinn stendur ekki undir því að greiða hann upp. Kristján siggeirsson.

x

Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.