Reykjavík - 19.12.2015, Síða 6
6 19. Desember 2015REYKJAVÍK VIKUBLA
Ð
Umferðaröryggi í henni fögru Reykjavík
Þegar tekið er bílpróf eru gerðar ákveðnar kröfur sem er ekki óeðlilegt. Þegar bíl er ekið er
ætlast til þess að bílstjóri sé allsgáður
og í þannig ástandi að hann sé ökuhæfur.
Hver er aftur á móti ábyrgð stjórnmála-
manna sem neita að taka á vandamálum
sem kosta jafnvel mannslíf og valda fólki
örkumlum?
Reykjavíkurborg er með nokkrar um-
ferðaræðar sem þurfa á þægilegu flæði
að halda til að ná þeirri þjónustu sem við
íbúarnir förum fram á að þær skili. Þetta
á sérstaklega við um leiðir sem kallast
þjóðbrautir í þéttbýli en það er ástæða
fyrir því að þær kallast þjóðbrautir. Það
virðist hafa gleymst að láta þá sem koma
að skipulagi hverju sinni (pólitíkusa)
vita til hvers þjóðbrautir eru.
Við greiðum skatta og gjöld til ríkis og
Reykjavíkurborgar og getum því að sjálf-
sögðu farið fram á að okkar kröfur séu
uppfylltar. Þegar hlutir eru á skipulagi
en hverfa skyndilega út af því hefði ég
talið að það ætti að kynna. Hlutir virð-
ast geta horfið án þess að íbúar viti af
því. Þegar það eru hlutir í skipulagi sem
varða umferðaröryggi þá eiga allir rétt
á því að hafa eitthvað um það að segja.
Átta ára gömul frétt
Á sínum tíma voru á skipulagi Reykja-
víkur mislæg gatnamót Reykjanes-
brautar / Bústaðavegar. Þessi gatnamót
hurfu af skipulagi án þess að nokkur íbúi
hefði eitthvað um það að segja. Áður
hafði framkvæmdinni verið frestað árið
2007. Laugardaginn 1. desember 2007
kom fram í hádegisfréttum RÚV í viðtali
við formann framkvæmdaráðs Reykja-
víkurborgar (Óskar Bergsson) að ekki
stæði til að hætta við mislæg gatnamót
Reykjanesbrautar og Bústaðarvegar:
„Mislæg gatnamót Bústaðarvegar og
Reykjanesbrautar hafa ekki verið slegin
af,“ sagði Óskar Bergsson formaður
framkvæmdaráðs Reykjavíkurborgar.
Þeim hefði hins vegar verið frestað til
að finna betri lausnir fyrir umhverfið. Í
fréttinni sagði enn fremur: „Helgi Krist-
ófersson, formaður íbúasamtakanna
Betra Breiðholts, gagnrýndi í kvöld-
fréttum útvarpsins í gær að bygging
mislægra gatnamóta Reykjanesbrautar
og Bústaðarvegar hafi verið slegin af
þó að fjárveiting hafi verið fyrir henni.
Hann taldi borgaryfirvöld ekki hirða
nægilega um að samgöngur væru
greiðar. Óskar Bergsson, formaður
framkvæmdaráðs Reykjavíkurborgar,
segir það ekki rétt að gatnamótin hafi
verið slegin af. Framkvæmdaráð hefði
samþykkt gerð þeirra en borgarráð viljað
fresta þeim til að hægt sé að leita annarra
lausna sem koma umhverfinu betur. Á
meðan verður gerð tilraun til að loka
vinstri beygju frá Bústaðarvegi inn á
Reykjanesbraut til að auka afkastagetu
gatnamótanna.“
Reykjanesbraut
færð til vesturs
Þarna var verið að tala um að lausnin
hafði verið teiknuð með brú fyrir um-
ferð sem færi vestur Bústaðaveg af
Reykjanesbraut. Það var bara komin
mun betri lausn í umræðuna þar sem
umferð sem færi norður Reykjanesbraut
og vestur Bústaðaveg færi hægra megin
á Reykjanesbraut og undir Reykjanes-
brautina til vesturs.
Nú er fyrirhugað að byggja á svæði
sem er við gatnamót Bústaðavegar og
Reykjanesbrautar. Þar með þrengir að
svæðinu sem gerir erfiðara fyrir að
koma mislægum gatnamótum fyrir svo
vel sé. Gerð var tillaga um mislæg gatna-
mót á þessum stað þar sem ekkert var
hreyft við Elliðárdalnum. Reykjanes-
brautin væri færð til vesturs um það sem
þarf til að hlífa dalnum. Þá var jafnframt
gert ráð fyrir að gera eina auka akrein
fyrir þá sem koma Bústaðaveginn og
ætla beint yfir á Smiðjuveg þannig að
þeir auka raunverulega ekki umferðina
á Reykjanesbraut. Það er ótrúlegt að
horfa á þegar stoppa kannski 70 bílar á
Reykjanesbraut og það kemur einn bíll
Bústaðaveg og beygir Reykjanesbraut-
ina til norðurs. Mengunin sem þetta
veldur er mikil fyrir utan að umferðar-
öryggi minnkar en þessi gatnamót eru
númer þrjú í fjölda slysa með meiðslum
ásamt gatnamótum Háaleitisbrautar /
Miklubrautar. Það kemur að því að mis-
læg gatnamót verða sett á Bústaðaveg /
Reykjanesbraut og er það bara spurn-
ing hvenær það verður en ekki hvort.
Í dag er verið að glíma við einhverja
stífni en ekki hugað að öryggi í umferð.
Þegar fallið verður frá þeirri stífni þá
verður öryggi aukið með mislægum
gatnamótum.
Forðum slysum
Á árunum 2008–2011 urðu átján um-
ferðarslys á gatnamótum Bústaðavegar
og Reykjanesbrautar og eru þau því
þriðju hættulegustu gatnamót Reykja-
víkurborgar. Mislæg gatnamót, þ.e.a.s.
að umferð norður Reykanesbraut og
vestur Bústaðaveg færi hægra megin
á Reykjanesbraut og undir Reykjanes-
braut til vesturs Bústaðaveg, væri arð-
samasta þjóðvegaframkvæmd í landinu
af þessari stærðargráðu. Það má reikna
með að þessi framkvæmd borgi sig upp
á ca. fjórum árum þjóðhagslega. Lagt
var til hliðar fjármagn í þessa fram-
kvæmd á sínum tíma og það hefur
verið gert ráð fyrir þessari framkvæmd
í aðalskipulagi Reykjavíkur í ca. 30 ár.
Við þessa framkvæmd myndi draga úr
mengun en það fóru margir til Frakk-
lands til að fræðast að hluta til um svona
mengun. Eldsneyti myndi sparast og
ekki veitir af því. Tímasparnaður yrði
mikill því biðin hjá þeim sem fer þarna
um alla daga ársins getur orðið mikil.
Síðan er náttúrulega stóra málið og
það er hve margir hafa slasast við þessi
gatnamót en það getur oft á tíðum verið
óbætanlegt. Það að loka vinstri beygju
af Bústaðavegi til norðurs Reykjanes-
braut er ekki nóg. Það þarf að klára
þennan pakka og skila okkur auknu
umferðaröryggi, sparnaði í eldsneyti
og minni mengun. Enn er ósvöruð
spurningin um þá sem eru kosnir til
að bera ábyrgð á skipulagsmálum, hver
er þeirra ábyrgð gagnvart okkur íbúum
þegar svona stór mál eru til umræðu?
bjb
Höfundur er
Helgi Kristófersson,
áhugamaður um umferðarmál
Hugmynd að mislægum gatnamótum bústaðavegar og reykjanesbrautar.
einn bíll beygir til vinstri af reykjanesbraut og stöðvar alla umferð.
bíll kemur af bústaðavegi og stöðvar umferð.