Reykjavík - 19.12.2015, Page 11
Skálasett, Skál m. písk og múffu formum, geymslukrús – 3 stærðir, ferðabolli, glas,
hitakanna, hitakanna, vöfflujárn, olíuflaska, ferðapressukanna/bolli, hnífastandur, sósukrús
m. pensli, skálasett, salt/pipar kvörn, brauðbretti.
Skálasett, hitabrúsi, hitabrúsi, blandari, hnífastandur, kaffikanna, ferðapressukanna/bolli,
ferðabolli – plast, ferðabolli – stál- stór, pressukanna, ferðabolli – stál – lítill, glas,
salt/pipar kvörn, skálasett, brauðbretti
FYRIR HEIMILIN Í LANDINU
LágMúLA 8 · sÍMI 530 2800
ORMSSON
KEFLAVÍK
SÍMI 421 1535
ORMSSON
ÞRISTUR-ÍSAFIRÐI
SÍMI 456 4751
KS
SAUÐÁRKRÓKI
SÍMI 455 4500
SR BYGG
SIGLUFIRÐI
SÍMI 467 1559
ORMSSON
AKUREYRI
SÍMI 461 5000
ORMSSON
HÚSAVÍK
SÍMI 464 1515
ORMSSON
VÍK -EGILSSTÖÐUM
SÍMI 4712038
ORMSSON
PAN-NESKAUPSSTAÐ
SÍMI 477 1900
ORMSSON
ÁRVIRKINN-SELFOSSI
SÍMI 480 1160
GEISLI
VESTMANNAEYJUM
SÍMI 481 3333
TÆKNIBORG
BORGARNESI
SÍMI 422 2211
BLóMSTuRvELLIR
HELLISSANDI
SÍMI 436 6655
OMNIS
AKRANESI
SÍMI 433 0300
Greiðslukjör
Vaxtalaust
í allt að 12 mánuði
Opið virka daga kl. 10-18
og á laugardögum
kl. 11-15.
Opið virka daga kl. 10-19
Laugardagur l. 1 9
Sunnudagur 13-19
Tilvaldar gjafavörur
20%afsláttur
1119. Desember 2015 REYKJAVÍK VIKUBLA
Ð
Varðandi helgadagalöggjöfina þá
setur kirkjan ekki lög í landinu og
hún hefur ekki fyrirskipað að tilteknir
dagar séu frídagar. Fyrir um það bil
aldarfjórðungi kom fram sú tillaga á
kirkjuþingi að leggja skyldi af annan
helgidag á jólum, páskum og hvíta-
sunnu. Þá var það verkalýðshreyfingin
sem mótmælti og sagði að kirkjan réði
þessu ekkert.
Ég hef annars engar áhyggjur af
skemmtanahaldi eða að verslanir
séu opnar á tilteknum dögum. Það
er líka hinna vinnandi stétta, versl-
unarfólks og forystu þeirra að skoða
út frá vinnuverndarsjónarmiðum.
Kirkjan er ekki í þessum efnum frekar
en öðrum að passa fólk. Ég kannast
ekki við að kirkjan sé á þeim nótum
hvorki sem stofnun né séu það skila-
boð frá prestum eða öðrum sem hjá
henni vinna. Kirkjan er ekki siðavönd
frænka. Í lútherskum sið er lagt upp úr
frjálsum vilja.“
Áhrif til farsældar
og lífshamingju
- En hvert er gildi jólanna?
„Á þessum tíma ársins rifjast upp
hefðir og venjur sem eru okkur kærar.
Ég rifja alltaf upp fyrir sjálfum mér á
þessum tíma þegar ég var fimm sex
ára þar sem ég átti bernskuárin í Bisk-
upstungum og var að læra jólasálma
með systkinum mínum. Svo varð heil-
agt klukkan sex á aðfangadag og við
hlýddum á messuna í Dómkirkjunni
í útvarpinu.
Og nú hef ég staðið í þessum sporum
sjálfur að þjóna fyrir altari og í predik-
unarstóli í þeirri messu sem fyrir
mörgum er upphaf jólanna. Ég sé fyrir
mér fólk á öllum aldri, í ólíkum að-
stæðum en allir að ganga til jólahalds.
Ég er þakklátur fyrir það hlutverk.
Í desember sýnir fólk hvert öðru
meiri náungakærleik en í öðrum
mánuðum ársins. Það sýnir vel gildi
jólanna og um leið gildi og eðli
kristinnar trúar. Kærleiksboðskapur
Jesú Krists er í fyrirrúmi. Jólin tala fyrir
sig sjálf. Hugarfar jólanna mætti vera
viðvarandi allt árið. Eða eins og séra
Einar í Heydölum orti forðum: „Það
er nú heimsins þrautarmein að þekkja
hann ei sem bæri.“ Ég spyr því: Hvenær
höfum við gefið Jesú Kristi séns? “
Hvers vegna leggjum við okkur ekki
betur fram við það að vera elskuleg, lítil
þjóð? Það ætti að geta vera svo auð-
velt okkur, með allar okkar auðlindir,
allar gáfurnar og færnina til að takast
á verkefnin sem mæta okkur í lífinu.
Hugarfar Jesú Krists, boðskapur hans
og líf, hefur svo mikið fram að færa.
Enginn hefur haft meiri áhrif á lífið á
jörðinni. Hann gæti haft ennþá meiri
og betri áhrif til farsældar og lífsham-
ingju – ef við bara vildum. “
Mynd: Sigtryggur Ari
Mynd: Markús Örn Antonsson