Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2008, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2008, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2008 Kveiktu í bíl Óprúttnir aðilar kveiktu í bif- reið við Flugvallarveg á Suður- nesjum skömmu eftir miðnætti í fyrrinótt. Bíllinn hafði farið út afveginum nokkrum dögum áður og höfðu eigendur ekki enn sótt hann. Vitni sá til tveggja bif- reiða við bílinn skömmu áður en hann brann. Er þeirra nú leitað. Slökkviliðsmenn frá Brunavörn- um Suðurnesja slökktu eldinn en bifreiðin er handónýt. Þá voru tveir látnir gista fangageymslur lögreglunnar eftir slagsmál við Hafnargötu í Reykjanesbæ og einn ökumaður var stöðvaður, grunaður um ölv- un við akstur. f eltingarleik við skartgripaþjóf Hann var sleipur þjófurinn sem braust inn í skartgripa- búð við Veltusund klukkan hálf níu í gærmorgun. Glöggir lög- reglumenn veittu því athygli í eftirlitsmyndavélakerfi sínu að maður braut rúðu í versluninni. Þegar lögregla kom á staðinn var maðurinn með höndina inn um gluggann tínandi skartgripi ofan í poka. Hann hljóp á brott þeg- ar hann sá lögregluna en þegar hann var kominn nokkuð frá búðinni kom bíll sem tók hann upp í. Skömmu síðar var tilkynnt um sama bíl á ofsahraða í Skerja- firði. Þegar lögregl- an kom á staðinn var bifreiðin stopp og mennirnir á bak og burt. Þeir fund- ust hins vegar á rölt- inu skömmu síðar með skartgripina. Háhraðinn í dreifbýlið Ríkiskaup hafa óskað eft- ir tilboðum í uppbyggingu háhraðatenginga á svæðum þar sem þær eru ekki í boði. Um er að ræða verkefni sem tryggir íbúum háhraðateng- ingu og tilheyrandi þjónustu til ársins 2014 hið minnsta. Óskað er eftir tilboðum fyrir hönd íjarskiptasjóðs sem var stofnaður árið 2005. Hlut- verk hans er meðal annars að styðja við uppbyggingu fjarskáptakerfa á svæðum þar sem fjarskiptafyrirtæki hafa ekki treyst sér í uppbyggingu vegna lítils markaðar. Ibúar á dreifbýlissvæðum virðast því vera að uppskera erfiði áralangrar baráttu sinnar fyrir bættu netsambandi. Feðqar féllu í vök Feðgar komust í hann krappan á Hvaleyrarvatni I Hafnarfirði um þrjúleytið í gær. Mennirnir höfðu farið á mótorhjólum út á fros- ið vatnið en eins og oft vill verða var ísinn ekki nógu þykkur og því féllu þeir báðir í vök skömmu eftir að þeir fóru út á ísinn. Þeir náðu þó að komast á þurrt fljótlega og hringdu í lögregluna sem kom á vettvang. Mennirnir sluppu án meiðsla en voru kaldir eftir volkið. Þeir fengu síðan aðstoð björgunarsveita við að hífa hjólin upp úr vatninu. Fréttir PV j Franklín Kristinn Stiner vill að ummæli um hann sem fíkniefnasala verði dæmd dauð og ómerk. Að auki vill hann fá eina milljón króna í skaðabætur og segir ummælin hafa fengið mjög á sig andlega. Jón Magnússon, verjandi þeirra stefndu, furðaði sig á því að Franklín höfðaði skaðabótamál nú vegna ummæla sem komu fyrst fram fyrir áratug. HVÍTSKÚRAÐUR KÓRDRENGUR BALDUR GUÐMUNDSSON a bladamadur skrifar: baldur@dv,is Æ Franklín Kristinn Stiner krefst þess að fá milljón króna í skaðabætur vegna ummæla sem birtust í dag- blaðinu Blaðinu í nóvember 2006. Þar kom meðal annars fram að Franklín væri einn stærsti fíkniefna- sali landsins. Málið rekur Franklín gegn ritstjóranum Sigurjóni M. Eg- ilssyni og blaðamanninum Trausta Hafsteinssyni. Það var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur á föstu- daginn. Franklín krefst þess að um- mæli þeirra verði dæmd dauð og ómerk auk þess sem hann fer fram á milljón króna í skaðabætur. Mættir í Héraðsdóm Reykjavík- ur á föstudaginn voru Trausti Haf- steinsson og verjandi þeirra Sigur- jóns, Jón Magnússon þingmaður og lögmaður. Vilhjálmur H. Vil- hjálmsson, lögmaður stefnanda, var mættur en stefnandi var fjarri góðu gamni. Stærsti fíkniefnasali landsins Franklín krafðist þess meðal annars að ummæli Blaðsins þess efnis að hann væri stærsti fíkniefna- sali landsins verði dæmd dauð og ómerk, en þetta orðalag kom fram í umfjöllun blaðsins þrjá daga í byrjun nóvember 2006. Þá var þess einnig krafist að orðalagið að „allt væri vaðandi í fíkniefnum" í bíl og á heimili stefnanda yrði dæmt ómerkt enda hefðu tvær húsleitir hjá Franklín Stiner leitt í ljós að hvergi var gramm af ólöglegum efnum að finna. Dómkrafan var í mörgum lið- um en stefnandi krafðist þess með- al annars að fullyrðingar Trausta og Sigurjóns um að stefnandi hefði selt ungum pilti kíló af fíkniefnum og að hann hefði unnið í skjóli lögregluyf- irvalda yrðu dæmdar ómerkar. Hreint sakavottorð Þegar Vilhjálmur sýndi hreint sakavottorð Franklíns virtist Jóni „Getur verið að hann hafi í tvo áratugi verið umtalaðurí virtustu fjölmiðlum landsins sem einn umsvifamesti fíkniefnasali landsins?" Magnússyni, lögmanni stefndu, skemmt. Vilhjálmur sagði enn frem- ur að ærumeiðingar þær sem áður væru taldar hefðu fengið mjög á stefnanda andlega og benti á að þær hefðu verið settar fram án nokkurra raka eða nafngreindra heimilda. Stefndi krefðist þess að fá milljón í skaðabætur, auk vaxta og máls- kostnaðar. Benti lögmaður á að ef skaðbæturnaryrðu miklu lægri væri hættan sú að fjölmiðlar teldu það beinlínis hagstætt að hafa uppi æru- meiðingar. Hagnaðurinn af seldum eintökum yrði meiri en sá kostnað- ur sem skaðabótagreiðslum næmi, ef til þess kæmi. Loks vísaði Vil- hjálmur í „Bubbadóminn" og fleiri dóma sem sýndu fordæmi þess að ummæli af svipuðum toga hefðu verið dæmd ómerk. Hvítskúraður kórdrengur Jón Magnússon, lögmaður stefndu, krafðist þess fyrir hönd þeirra Trausta og Sigurjóns að þeir yrðu báðir sýknaðir. Sigurjón er fýrrverandi ritstjóri DV og Trausti .núverandi blaðamaður DV. Sagði Jón að Vilhjálmur gerði því skóna að skjólstæðingur hans væri hvítskúr- aður kórdrengur. „Skyldi það vera þannig að stefn- andi hafi brotið gegn lögum um meðferð fíkniefna? Getur verið að hann hafi setið í fangelsi vegna þessa? Getur verið að hann hafi í tvo áratugi verið umtalaður í virtustu íjölmiðlum landsins sem einn um- svifamesti fíkniefnasali landsins?" sagði Jón og rakti áratugsgaml- ar umfjallanir Morgunblaðsins og Mannlífs um sækjanda. Sagði hann enn fremur að með ólíkindum væri að nú væri höfðað mál vegna ummæla sem hefðu leg- ið fyrir í tíu ár og rakti hversu auð- velt væri að finna upplýsingar sem bendla stefnanda við vafasamt hátt- erni, meðal annars í opinberum gögnum. Spurði hann einnig hver miski stefnanda væri, úr því hann færi fram á skaðabætur. Fáránleg rök Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lög- maður stefnanda, sagði að vissulega væri stefnandi enginn kórdrengur. „Þvert á móti." Hann sagði líka að rök verjenda væru fáránleg. „Segj- um sem svo að einhver á barnaland. is segi að einhver sé barnaníðing- ur. Fimm árum síðar segir Mogginn það sama. Er það í lagi?" spurði Vil- hjálmur og sagði fáránlegt að fyrri umfjallanir í fjölmiðlum réttíættu meiðyrði þau sem höfð hefðu verið uppi af Trausta og Sigurjóni í nóv- ember 2006. Málið var lagt í dóm en niður- staða verður kunngjörð síðar. Franklin Kristinn Stiner Mætti ekki í héraðsdóm á föstudaginn. Ekkert hefur heyrst af aðgerðum í kjölfar skýrslu um skattsvik sem lögð var fram 2005: Skoða aðgerðir gegn skattsvikum „Mikilvægt er að skýrslur sem þessar deyi ekki inni í kerfinu. Það þarf að vera uppi á borðum hvað er búið að gera og hvað er fram undan," segir Ármann Kr. Ólafsson, þing- maður Sjálfstæðisflokksins. Hann lagði fram fyrirspurn til fjármálaráð- herra á þriðjudag um aðgerðir gegn skattsvikum. I febrúar 2005 kynnti þáverandi fjármálaráðherra Alþingi skýrslu starfshóps um umfang skatt- svika á íslandi og vill Ármann vita hvernig tillögum sem þar komu fram hefur verið fýlgt eftir. Ármann segist gefa sér að unnið hafi verið eftir tillögunum en lang- ar að fá heildaryfirsýn. Þannig óskar hann eftír að fá að vita hvaða tillög- ur hafi komist til framkvæmda og af hverju ekki hefur verið farið að tillög- um sem enn eru á teikniborðinu, ef einhverjar eru. Skýrslan var í 25 liðum þar sem farið var yfir ýmis atriði sem þarf að skoða. Má þar nefna virkari upp- lýsingaskyldu á milli landa um skattamál, skattskil stórfyrirtækja og upplýsingar í ársreikningum um greiðslur til stjórnenda. Einnig er lagt til að fgrið verði yfir hver staða og ábyrgð endurskoðanda sé og því velt upp hvort styrkja þurfi ábyrgð þeirra. Ármann segir skattamál mikið til umfjöllunar í þinginu: „Þegar fram kemur skýrsla með þetta mörgum og skýrum tillögum er nauðsynlegt að fá yfirlit yfir hvað er búið að gera." Hann ítrekar að skýrar og gegnsæj- ar skattareglur bæti starfsskilyrði og samkeppnisstöðu þeirra fyrirtækja sem eru heiðarleg í sínum rekstri. Þannig aukist jafnræði með fýrir- tækjum. Fleiri skýrslur virðast týndar og óskaði Rósa Guðbjartsdóttir, vara- þingmaður Sjálfstæðisflokks, eftir því að forsætisráðuneytið upplýsti um hvað hefði verið gert í kjölfar þess að nefnd forsætísráðherra skil- aði af sér skýrslu um alþjóðlega fjár- málastarfsemi á Islandi. Hún var birt í október 2006 og lítið heyrst af henni síðan en þar var meðal annars tekið sérstaklega á nauðsyn þess að hafa skýrt skatta- og lagaumhverfi hér á landi til að laða að erlenda aðila. erla@dv.is Skýrsla í dvala Ármann Kr. Ólafsson óskar eftir svörum frá fjármálaráðherra um hvað hefur verið gert til að sporna við skattsvikum. Árið 2005 var lögð fram skýrsla í 25 liðum um málið sem ekkert hefur spurst til síðan.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.