Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2008, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2008, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2008 Fréttir DV UtllK »« BannaYouTube Yfirvöld í Pakistan hafa íyrir- skipað öllu netmiðlurum að loka á aðgang að heimasíðu YouTube. Það er skoðun stjórnvalda að innihald síðunnar sé guðlast og niðrandi fyrir íslamska trú. Það var þverpólitísk nefnd margra ráðuneyta sem tók ákvörðun um loka fyrir aðgang að síðunni. Sumir embættismenn segja að um tímabundnar aðgerðir sé að ræða og séu þær tilkomnar vegna myndbirtinga teikninganna af spámanninum Múhameð, en enn gætir mikillar reiði í landinu gagn- vart Danmörku vegna þess máls. Sparigrísirút í kuldann Nýjasta birtingarmynd árekstra kristinna og íslamskra gilda bimar á sparigrísum. Stjórnendur Fortis- bankans í Hollandi hafa tekið þá ákvörðun að hætta að gefa böm- um sparigrísi af ótta við að móðga múslíma og lukkudýri bankans, grísnum Knorbert, hefúr einnig verið varpað fyrir róða. f Hollandi eru margir þeirrar skoðunar að með ákvörðun bankans hafi þess- um vinsæla grís verið slátrað á alt- ari pólitískrar réttsýni. Holland hefur gjarnan verið talið eitt umburðarlyndasta land- ið í Evrópu. Telur sig hafa séð Madeleine Alan Cameron, fyrrverandi bæjarráðsmaður í Dorset á Englandi, er þess fullviss að hafa séð Madeleine McCann með portúgölsku pari í bæn- um. Þau komu á Iandareign hans og föluðust eftir garð- húsgögnum sem hann hafði auglýst til sölu. Cameron sagði að stúlkan hefði virst óttaslegin og hún hafi sagt á fúllkominni ensku að hún þyrfti að komast á salerni. Honum fannst skjóta skökku við að konan, sem tal- aði portúgölsku reiprennandi, segðist vera ítölsk. Stúlkan fékk ekki leyfi parsins til að fara á salerni, en hettan á peysu hennar var snarlega dregin yfir höfúð hennar. Cameron hafði samband við lögregluna sem rannsakar málið. Samskipti Baracks Obama og Hillary Clinton hafa hingað til verið á jákvæðum nót- um. Eftir ellefu sigra i röð í baráttunni um útnefningu demókrataflokksins til forseta- framboðs virðist hann hafa pálmann í höndunum. Á sama tíma og hann einbeitir sér að komandi forkosningum í Texas og Ohio birtast fréttir af tengslum hans við með- limi róttækra byltingarsamtaka á sjöunda áratugnum. Stuðningsmenn Obama Stjórnmál eða persónudýrkun? jV /' «4 : OBAMA TEXAS m0y| W.. -f &$dú. £ cuauE.i!. UR.246022 i_26EEBI69_íj i Z7MX160 ■ |Wi 213710 ,, Bernardine Dohrn og ■ William Ayers Fyrrverandi I róttæklingar sem Obama ■ heimsótti 1995. FORTIÐIN SKYTUR UPPKOLLINUM KOLBEINN ÞORSTEINSSON bladamaður skrifar: kolbeimmdv.is Arið 1995, um það leyti sem Barack Obama var að stíga sín fyrstu skref sem öldungadeildarþingmaður fyrir Illinois-fylki, fór hann á fúnd á heimili Williams Ayers og Bemardine Dohm. Það væri eldd í fr ásögur færandi nema fyrir það að þau vom á árum áður meðlimir Weather Underground, rót- tækra samtaka sem settu mark sitt á bandarískt samfélag á sjöunda ára- tugnum. Nú þegar Barack Obama berst harðri baráttu vegna komandi forseta- kosninga hafa fjölmiðlar vestra dreg- ið umræddan fímd fram í dagsljósið. Samtökin Weather Underground vom þekkt fyrir að koma fyrir sprengjum víða í Bandarílgunum, en hringdu og vömðu við þeim svo tími gæfist til að rýma þá staði sem áttí að sprengja. Á hinni virtu vefsíðu Politico var fund- ur Obama og prófessoranna gerður að umræðuefni undir fyrirsögninni „Obama heimsótti hryðjuverkamenn sjöunda áratugarins". Sláandi fyrirsögn Fyrir Obama, sem notíð hefúr já- kvæðrar fjölmiðlaumfjöllunar, er slík fyrirsögn áfall, en of snemmt er um það að spá hvort þessi umfjöllun kemur tíl með að hafa neikvæð áhrif á þá sigurgöngu sem hann virðist vera á. Barack Obama virðist hafa fest sig í sessi sem forystumaður demó- krata í forkosningunum. En oft veltír lítíl þúfa þungu híassi. Samtökin Weather Underground voru stofnuð í Michigan-háskólan- um upp úr 1960 og nafnið var feng- ið úr lagi Bobs Dylan, Subterranean Homesick Blues. Samtökin skil- greindu sig sem byltingarsamtök kvenna og karla sem hefðu það mark- mið að steypa ríkisstjóm Bandaríkj- anna með sprengjutilræðum og álíka meðulum. Skoðun samtakanna var sú að ekki ættí að eyða tíma í að stofna stjómmálaflokk til að ná ffarn mark- miðum samtakanna heldur ættí að hefja aðgerðir gegn ríkisstjóminni og efriishyggjuöflunum tafarlaust og að því leytinu til vom þau ólík flestum öðmm sjálfskipuðum byltíngarsam- tökum. Dagar reiði Haustið 1969 stóðu samtökin fyrir „degi reiði" og auglýstu vænt- anleg mótmæli undir slagorðinu Bring the War Home og skírskot- uðu til stríðsins f Víetnam. Aðeins á milli tvö- og þrjú hundruð mótmælendur tóku þátt í mótmælunum. En sá hópur kom lögreglu Chicago-borgar í opna skjöldu og lét til skarar skríða í Gold Coast-hverfinu sem er auð- ugasta hverfi Chicago. Til að und- • irstrika stefnu samtakanna voru rúður brotnar í banka og fjöldi bif- reiða eyðilagður. Þetta kvöld voru sex manns skotnir og hátt í hundr- að handteknir. En þrátt fyrir reglulegar yfirlýs- ingar og tilræði voru samtökin að renna sitt skeið á enda. Bernard- ine Dohrn og William Ayers gáfu sig fram við yfirvöld 3. desember 1980 og fengu mikla umfjöllun í fjölmiðlum. Kærur gegn Ayers voru felldar niður og Dohrn fékk þriggja ára skilorðsbundinn dóm og var gert að greiða fimmtán þús- und dala sekt. Fagnað fyrir að snýta sér Ekki er ljóst hvort tengsl Obama við fyrrverandi róttæklinga eiga eft- ir að drag dilk á eftir sér. Obama- æðið virðist ekki vera í rénun, en líkur eru leiddar að því að fleiri frá- sagnir af svipuðum toga eigi eftir að koma fram í dagsljósið. Einnig er með umfjölluninni búið að opna dymar fyrir neikvæðri umljöll- un um Obama og það er deginum ljósara að Hillary Clinton þarfnast hneykslis úr fortíð Obama til að hleypa nýju lífi í baráttu sína. Vinsældum Baracks Obama er líkt við Bítlaæðið sem tröllreið heimsbyggðinni á sjöunda ára- tugnum og tveir áhrifamiklir dálka- höfundar New York Times beindu spjótum sínum að honum í síðustu viku. Annar þeirra, David Brooks, kallaði hann „messías verðlauna- gripa" og hinn, Paul Crugman, sagði að barátta Obama drægi sí- fellt meiri dám af „persónuleg- um átrúnaði". Það er von þeir velti þessu fyrir sér því á kosningasam- komu í Dallas gerði Obama hlé á máli sínu til að snýta sér og upp- skar mikil fagnaðarlæti fyrir. Minnistöflur Umboös- og söLuaðiLi Birkiaska ehf. sími: 551 9239 www.birkiaska.is FOSFOSER MEMORY Valið fæðubótarefni ársins 2002 í Finnlandi Birkiaska Umboðs- og söluaðili Birkiaska ehf. sími: 551 9239 www.birkiaska.is BETUSAN Bresk yfirvöld borguöu fyrir gögn um reikninga í Liechtenstein: Sóttað skattsvindlurum U Liechtenstelnischc ^ Landesbank1”1 Landsbanki Liechtenstein Hefur verið öruggt vé fyrir auðmenn. Skattayfirvöld í Bretlandi hafa lát- ið til skarar skríða gegn vellauðug- um Bretum. í breskum fjölmiðlum er sagt frá því að skattayfirvöld hafi greitt sem nemur um þrettán millj- ónum íslenskra króna fyrir gögn sem stolið var frá banka furstafjölskyld- unnar í Liechtenstein, en hann hefur státað af mikilli leynd. Bresk skattayfirvöld hyggjast nota upplýsingarnar til að hefja rannsókn á gárreiðum allt að eitt hundrað breskra ríkisborgara sem eiga reikn- ing í bankanum. Yfirvöld á Bretlandi telja það mikinn hvalreka að hafa komist yfir upplýsingar um reikn- inga sem hafa verið utan seiling- ar þeirra svo áratugum skiptir. „Þeir eru ófáir einstaklingarnir sem verða óttaslegnir en þeir töldu Liechten- stein öruggt vé,“ sagði endurskoð- andi í fjármálahverfi Lundúna. Sjö ára fangelsisvist Hver sá sem verður uppvís að því að hafa skotíð tekjum undan skatti á yfir höfðl sér sekt sem gæti numið allt að eitt hundrað prósentum af skuld sinni við skattinn, og þar sem sönnur verða færðar fyrir svikum af ásettu ráði gæti refsingin numið allt að sjö ára fangels- isvist. Sá sem seldi breskum yfirvöldum umrædd gögn hefur nú þegar valdið miklum óróa í Þýskalandi. Fyrir rúmu ári seldi hann leyniþjónustu Þýska- lands gögn sem varða fjárreiður sjö hundruð og fimmtíu auðugra Þjóð- verja. Fyrir gögnin, sem talið er að hann hafi fengið með ólöglegum hætti, fékk hann greidda rúmlega fjóra millj- arða íslenskra króna. Síðan þá hafa heimili og skrifstofúr grunaðra skatt- svindlara í Þýskalandi verið rannsökuð hátt og lágt. Uppljóstrarinn sem í hlut á og var rekinn úr starfi hjá bankanum hefur boðið skattayfirvöldum í Bandaríkj- unum, Kanada, Ástralíu og Frakklandi svipuð gögn og bresk og þýsk yfirvöld hafa greitt fyrir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.