Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2008, Blaðsíða 5
DV Fréttir
MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2008 5
„Ábyrg gagnrýni málefnalegra fjölmiðla er
lýðræðinu mikilvæg. En fjölmiðlar eiga ekki að
segja stjórnmálamönnum fyrir verkum. Það ger-
ir samviska þeirra - og kjósendur á endanum."
sem við getum lagt allt okkar traust
á. Það veitir okkur öryggiskennd.
En hugmyndin um slíkan stjóm-
málamann er röng og háskaleg. Hún
er röng af því að slíkur stjórnmála-
maður verður aldrei til og hún er
háskaleg vegna þess að hún er and-
lýðræðisleg, dregur úr málefnalegri
gagnrýni og er í ætt við einræðis- og
alræðishyggju.
í rauninni snýst spumingin ekki
um það hvort við gemm mistök. Það
gemm við öll. Hún snýst um hitt,
hvort'við erum reiðubúin að viður-
kenna mistök okkar og læra af þeim.
Þetta er stóra spurningin því all-
ur þroski, uppgötvanir og framfar-
ir byggja á þessu viðhorfi: Að gagn-
rýna, viðurkenna mistök sín og vera
reiðubúinn að læra af þeim.
Mér finnst ég hafa verið ærlegur
stómmálamaður í þeim skilningi að
ég fjallaði hreinskilmslega um mis-
tök mín fýrir opnum tjöldum. Við-
brögð fjölmiðla hafa hins vegar falist
í aukinni hörku og skorti á umburð-
arlyndi gagnvart slíkri afstöðu. Ef
fram heldur sem horfir í þeim efnum
munu stjórnmálamenn í auknum
mæli sópa mistökum sínum undir
teppið og gera í því að leika hinn full-
komna stjómmálamann. Það yrði
óheillaþróun."
Formannsstuðningur
Hvemig tók formaöur flokksins
þessari ákvörðun þinni?
„Hann tók henni að sjálfsögðu
eins og hann er margoft búinn að
lýsa yfir að hann myndi gera. Hann
tók henni vel og styður mig í þessum
efnum og mér þykir vænt um stuðn-
ing hans sem er mér afar mikilvæg-
ur."
Fyrrverandi formaöur flokksins,
Davíö Oddsson, mun hafa látiö þau
oröfalla aö þú eigir ekki að segja af
þér. HafÖi þaö áhrif á þína ákvörö-
un?
„Davíð hefur stutt mig dyggi-
lega og mér þykir afar vænt um það.
Við erum gamlir vinir og samstarfs-
menn. Við unnum mikið saman þeg-
ar hann varð borgarstjóri og ég for-
maður skipulagsnefndar. Þá lögðum
við til dæmis á ráðin um íbúðabyggð
í Grafarvogi sem heppnaðist með
ágætum. Einnig öfluga uppbyggingu
hjúkrunarheimila, þjónustuíbúða
og félagsmiðstöðva fýrir eldri borg-
ara, ásamt öðlingnum Páfi Gíslasyni,
lækni og borgarfulltrúa.
Annars hefur allur stuðningur við
mig haft áhrif á þessa ákvörðun mína.
Ótrúlegur fjöldi einstaklinga, bæði
innan og utan Sjálfstæðisflokksins,
hefur haft samband við mig á síðustu
dögum, hvatt mig til dáða, hughreyst
mig og lýst yflr stuðningi við mig. Það
er ómetanlegt við þær aðstæður sem
ég og fjölskylda mín höfum búið við
síðustu dagana."
Ágreiningi lekið í fjölmiðla
En hefurþú aldreifengið þaö á til-
flnninguna í öllum þessum darraö-
ardansi aö þínir eigin borgarfulltrú-
ar hafl svikiö þig?
„Nei. Við höfum að vísu öll gert
mistök sem voru ekki síst í því fólgin
að bera um of ágreining okkar á torg í
upphafi. Ágreiningur í borgarstjórn-
arflokkum, þingflokkum og meiri-
hlutasamstarfi er mun algengari en
fólk gerir sér grein fýrir. Og það er í
sjálfu sér engin þörf á því að básúna
allan slíkan ágreining í fjölmiðla sem
hægt er að leysa með yfirveguðum
samræðum.
Þegar á heildina er litið hafa borg-
arfulltrúar og varaborgarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins staðið við bak-
ið á mér. Það hefur til dæmis aldrei
hvarflað að mér að ég ætti ekki allan
tímann óskoraðan stuðning borgar-
stjómarflokksins. Auðvitað hafa fjöl-
miðlar svo viljað meina allt annað
þó svo að þeir hafl aldrei fengið yfir-
lýsingar úr þessum hópi þar að lút-
andi."
Hvernig líður svo Vilhjálmi eftir
þessa neikvceðu fjölmiðlaholskeflu?
Nú bregður fýrir gamalkunnu
brosi hjá borgarstjóranum fýrrver-
andi: „Mér líður bara þokkalega,
þakka þér fýrir. Ég hef ýmsa fjör-
una sopið í gegnum árin og hef fýrir
löngu komist að þeirri niðurstöðu að
góð samviska, jafriaðargeð og jákvæð
afstaða skipti mestu við aðstæður
sem þessar. Ég get hins vegar ekki
neitað þvf að ég hef haft áhyggjur
af fjölskyldu minni. Þessi fjölmiðla-
aðför hefur valdið henni ómældum
kvíða og áhyggjum og það er sárt til
þess að vita."
Nú þagnar Vilhjálmur, lítur upp
og hugsar sig um, en heldur svo
áfram: „Ég er enginn dýrlingur og hef
aldrei reynt að draga upp þá mynd af
mér fýrir sjálfan mig eða aðra. En ég
er heldur ekki óheiðarlegur skúrk-
ur eins og nokkrir fjölmiðar vilja
meina.
Hvort sem menn trúa því eða
ekki, þá hef ég verið að vasast í þess-
ari borgarpólitík í öll þessi ár til að
láta gott af mér leiða. Það hefur verið
mitt meginmarkmið. Vonbrigði mín
og áhyggjur undanfarna daga hafa
því ekki síst snúist um þá spurningu
hvort mér auðnist með öðru góðu
fólki að fá að hrinda í framkvæmd
þeim góðu málefnum sem nú hafa
fallið í skuggann fyrir persónulegu
karpi um völd og vegtyllur. Þar eru
mér efst í huga húsnæðis- og þjón-
ustumál aldraðra hér í höfuðborg-
inni, en auk þess fjölmörg önnur
málefni sem þola í rauninni enga
bið. Þetta er kannski stærsti skaðinn
af öllu þessu upphlaupi. Þess vegna
er mál að linni og við förum að snúa
okkur að hagsmunamálum bogar-
innar - til þess vorum við kosin."
kgk@dv.is
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson verður áfram oddviti. Gunnar
Helgi Kristinsson telur að val á borgarstjóraefni geti orðið
tilefni til frekari átaka innan Sjálfstæðisflokksins.
\
l
Að mörgu að hyggja
Vilhjálmur ætlar að vera
borgarfulltrúi áfram.
Ákvörðun um borgarstjóra-
efni sjálfstæðismanna getur
orðið tilefni til frekari illdeilna
innan flokksins, Borgarstjórn-
arflokkur Sjálfstæðisflokks
hyggst taka ákvörðun (málinu
og tilkynna hana seinna.
BARÁTTAN HEFST UM
STÓL BORGARSTJÓRA
Sjálfstæðismenn í Reykjavík hafa
enga ákvörðun tekið um það hver
verður borgarstjóri á næsta ári.
Hanna Bima Kristjánsdóttir lýsti því
yflr í samtali við Ríkisútvarpið í gær-
kvöldi að hún gæfl kost á sér í emb-
ætti borgarstjóra. Hvorki Hanna
Bima né Gísli Marteinn Baldursson
svömðu símtölum í gærkvöldi.
Stíft var fundað á heimili Vil-
hjálms Þ. Vilhjálmssonar í Breið-
holtinu á laugardagskvöld. Eftir
fund borgarfulltrúanna fjórtán með
Geir H. Haarde, forsætisráðherra
og formanni Sjálfstæðisflokks-
ins, í húsnæði Sjálfstæðisfélagsins
í Breiðholtí í hádeginu í gær, barst
yfirlýsing frá Vilhjálmi um að hann
ætlaði sér að sitja áfram sem borg-
arfulltrúi.
„Eins .og þetta blasir við í dag
gætí verið hollast fýrir Sjálfstæð-
isflokkinn að velja sér næsta
borgarstjóra með einhvers kon-
ar kosningu," segir Gunnar Helgi
Kristinsson stjórnmálaffæðipróf-
essor. „Ef ekki blasir beinlínis við
hver sest í borgarstjórastólinn get-
ur það orðið ástæða til enn frekari
átaka innan Sjálfstæðisflokksins."
Innanflokkserjur og glundroði
„Það er augljóst að borgarfull-
trúamir hafa deilt svo hatrammlega
að þeir hafa ekki getað tekið af skar-
ið um borgarstjóraefni flokksins,"
segir Dagur B. Eggertsson, odd-
viti Samfylkingarinnar í Reykjavík.
Honum sýnist að Vilhjálmur lifi í
þeirri von að hann geti orðið borg-
arstjóri á nýjan leik. „Hann lafir
inni sem oddvití og formaður borg-
arráðs. Á meðan sitja borgarbúar
uppi með innanflokksátök í stað
þess að borginni sé stjórnað af festu
og röggsemi," segir hann.
Gunnar Helgi segir að ef marka
megi fréttaflutning síðustu daga og
vikna hafl Vilhjálmur verið und-
ir miklum þrýstingi að sitja áfram.
„Það er vel hugsanlegt að borgar-
stjórnarflokkurinn og Geir Haarde
hafi komist að niðurstöðu sem þau
eru ekki tílbúin til þess að kynna.
Menn vilji fá tíma til þess að kynna
málið án þess að það komi út sem
einhvers konar smánarblettur fýrir
flokkinn," segir Gunnar.
Hagsmunir flokksins
Borgarstjómarflokkur Sjálf-
stæðisflokksins sendi frá sér til-
kynningu í gær þar sem borg-
arfulltrúarnir lýstu óskoruðum
stuðningi við Vilhjálm. „Borgar-
stjórnarflokkurinn tekur undir það
með Vilhjálmi að ekki sé ástæða til
þess að ákveða nú hver verði borg-
arstjóri eftir rúmt ár. Sú ákvörð-
un verður tekin af borgarstjórnar-
flokknum í sameiningu þegar nær
dregur og með hagsmuni flokksins
og borgarbúa að leiðarljósi," segir
í yfirlýsinguni, sem undirrituð er
af öllum aðal- og varaborgarfull-
trúum Sjálfstæðisflokksins. Þessi
ákvörðun Vilhjálms og borgar-
stjórnarflokksins nýtur stuðnings
Geirs Haarde og Þorgerðar Katr-
ínar Gunnarsdóttur. Nokkur átök
hafa verið innan flokksins eftír að
dv.is og fleiri fjölmiðlar greindu
frá því fýrir helgina að Vilhjálmur
hefði í hyggju að verða borgarstjóri
að nýju. Það hefur því orðið sátta-
leiðin að borgarstjórnarflokurinn
veldi sér sjálfur borgarstjóraefnið.
Hvað sem er getur gerst
Samkvæmt skoðanakönnun
Fréttablaðsins hefur Sjálfstæðis-
flokkurinn á landsvísu bætt við sig
þriggja prósentustiga fýlgi frá því
fýrir mánuði. Fylgið mældist vera
fjömtíu prósent, en fyrri kannan-
ir höfðu gefið til kynna að málefni
Reykjavik Energy Invest og svipt-
ingar í borgarstjóm hefðu bimað á
stuðningi við flokkinn.
„Allur veturinn hefur náttúm-
lega verið erflður fýrir borgarstjóm-
arflokkinn og það virðist hafa bitn-
að á Sjálfstæðisflokknum í heild
sinni. Hins vegar virðist fylgi Sjálf-
stæðisflokks vera eitthvað að hjarna
við samkæmt þessari könnun," seg-
ir Gunnar Helgi. Hann segir að í
raun sé erfitt að spá fýrir um hvern-
ig þessi mál muni þróast á næst-
unni. „Öll þessi atburðarás hefur
verið með þvílíkum ólíkindum í
heild sinni að það getur í sjálfu sér
hvað sem er gerst."
Ekki náðist í Ólaf F. Magnús-
son borgarstjóra tíl þess að leita
viðbragða hans við þessari þróun
mála. sigtryggur&dv.is