Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2008, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2008, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 8. APRlL 2007 Fréttir DV Bættsamvinna íbarnavernd Starfsdagur barnaverndar- starfsmanna á landinu var hald- inn á föstudag í Bíósal Duushúsa í Reykjanesbæ. Fjölskyldu- og barnaverndarsvið Reykjanesbæj- ar stóð að fundinum en á honum var lagður grunnur að aukinni samvinnu barnaverndarstarfs- manna, umræðu um barna- verndarstarfið í landinu og stöðu starfsmanna með því að þjappa hópnum sarnan og gera hann sýnilegri í þjóðfélaginu. Barna- verndarstarfsmenn eru undir stöðugu áreiti vegna neikvæðs viðhorfs samfélagsins, en því vilja starfsmennirnir breyta. VinirTíbets stofna félag Þrjátfu og fimm manns stofnuðu félagið Vinir Tíbets á stofnfundi félagsins á ICaffi Hljómalind í fyrradag. Félag- inu er ætlað að rækta tengsl milli Islendinga og Tíbeta og kynna menningu og sögu landsins auk ástandsins eins og það er í dag. Birgitta Jónsdóttir var kos- in formaður félagsins. Með henni í stjórn eru Sigurður Darri Skúlason gjaldkeri, Jón Valur ritari, meðstjórnendur eru Tsewang Namgyal og Að- alheiður Þórisdóttir. Skaðabóta aðvænta Viðar Már Matthíasson laga- prófessor vinnur nú að frumvarpi fyrir forsætisráðuneytið sem ger- ir íslenska ríkinu kleift að greiða þeim skaðabætur sem urðu fyrir ofbeldi á vist- og meðferðar- heimilum hér á árum áður, þar með drengjunum sem vistaðir voru á Breiðavík. Geir H. Haarde forsætisráðherra mælti á Alþingi í síðusm viku fyrir skýrslu sem unnin var um meðferðarheimil- ið á Breiðavík. Hann býst við að frumvarpið verði lagt fram í fyrri hluta maímánaðar. Félögum fjölgar um sjö hundruð Félögum í Verkalýðsfélagi Akraness fjölgaði um sjö hundr- uð á síðasta ári samhliða því að mikil uppbygging varð á félags- svæði verkalýðsfélagsins. Það þakka forkólfar félagsins ekki síst uppbyggingu á Grundartanga og í nágrenni hans. Ársreikningar félagsins sýna að hagnaður af starfsemi félags- ins nam 80 milljónum króna á síðasta ári og er það mikil breyt- ing frá því sem áður var. Þegar núverandi stjórn tók við árið 2003 var félagið rekið með tapi. Fimm nýir bótaflokkar voru teknir inn í sjúkrasjóðinn á síð- asta ári og greiðslur úr sjúkra- sjóði jukust um 42%. Vonir stóðu til um að reka frístun og frístundaheimilin, og í tillögu muni skar borgarráð út úr tillögui ÍTR vill bjóða þeim. Stjórnendur í TUGIRI daklúbba f ÍTR til bor ini og fá tu TR útiloka FA atlaðra barna á heilsársgrundvelli, líkt •garráðs var gert ráð fyrir því. Þá Qár- gir fatlaðra barna ekki þá þjónustu sem að hægt sé að taka fé úr öðrum rekstri. TLADRA BARN/ VI' 1 ■ r m 1 ^ 1 T 1 1 ÓVISSU TRAUSTI HAFSTEINSSON bladamadur skrifar: trausti<.«'dv.is „Mér finnst mjög vont að geta ekki boðið fötíuðu börnunum upp á þessa þjónustu og það væri auðvit- að óskandi að borgarráð myndi end- urskoða þessa ákvörðun sína. Ef að það myndi gerast ynni ég nótt og dag til að láta þessa þjónustu verða að veruleika," segir Soffi'a Pálsdótt- ir, skrifstofustjóri tómstundamála íþrótta- og tómstundaráðs Reykja- víkurborgar, ÍTR. Fn'stundaheimili ITR verða fr am- vegis rekin á heilsársgrundvelli líkt og stofhunin hefur lengi barist fyr- ir. Almenn ánægja ríldr með breyt- inguna en þann skugga ber á að um leið og aukafjárveiting var sam- þykkt í borgarráði fýrir rekstrinum var hafnað aukafjármunum í sams- konar þjónustu fýrir fatlaða. Vonir stóðu til um að reka ffístundaklúbba fatlaðra barna á heilsársgrundvelli, lflct og frístundaheimilin, og í tíllögu ÍTR var gert ráð fyrir heilsársrekstri klúþbanna. Þá fjármuni skar borg- arráð út úr tillögunni og því fá tugir fatlaðra barna ekki þá þjónustu sem iTRvillbjóðaþeim. Skorið af fjárveitingu ÍTR óskaði eftir 10 milljónum króna til að halda úti sumarstarfi í 3 ffístundaklúbbum fatlaðra á aldrin- um 10 tíl 16 ára og tæpum 10 millj- ón- um króna fyrir stuðning við fötíuð börn í ffístundaheimilum borgar- innar. Samtals hljóðaði beiðni ÍTR upp á 75 milljónir króna en aðeins fengust 56 milljónir úthlutaðar. Mis- murinn, tæpar 20 milljónir, var ætl- aður í þjónustu við fatíaða og þann lið skar borgarráð út úr tillögu ÍTR. Þannig er ekki um eiginlegan nið- urskurð að ræða heldur fengust viðbótarfjármunir aðeins fyrir ffí- stundaheimilin en ekki aukið starf með fötíuðum. Soffi'a segir ómögulegt að brúa bilið með því að taka fjármuni af öðrum rekstrarliðum ÍTR. Aðspurð reiknar hún með því að þurfa að hafna 30 fötluðum börnum um tóm- stundastarf í sumar. „Ég geri mér mjög góða grein fýrir stöðu fatíaðra barna í borginni og því miður var þessi liður skorinn út úr okkar til- lögu. Okkar fjárveiting dugir aðeins til skólaársins og við þurfum meira fjármagn til að auka þjónustu við fatíaða úti í hverfunum og bjóða upp á sumarstarf fyrir fötluðu börnin. Ég treystí mér ekki til þess að taka fé af öðrum rekstrarliðum því það er ekld eins og við vöðum í peningum fýrir. Séu peningar teknir annars staðar frá þá þýðir það eingöngu niðurskurð á annarri þjónusm," segir Soffi'a. Skortir skýr svör „Við náum ekki að bjóða upp á sumarstarfið og getum ekki aukið þjónustu við fatíaða úti í hverfun- um líkt og við viljum. Auðvitað erum við vonsvikin með þessa niðurstöðu en fögnum um leið þeim fjármun- um sem fengust. Ég hef hins vegar sótt það mjög fast að fá ffístunda- klúbba fatlaðra í heilsársform því það er það sem bömin þurfa," bætirSoffi'avið. Borgarráð fer með fjármálastjórn borgarinnar ásamt borgarstjóra og breytingatil- lagan, sem felur í sér skerðingu fyr- ir fatlaða af því viðbótarfjármagni sem fékkst úthlutað, var lögð fýrir fund ráðsins af fjármálastjóra borg- arinnar. Dagur B. Eggertsson, odd- viti Samfylkingarinnar í borgarstjórn og fulltrúi borgarráðs, segir að vissu- lega megi lesa út úr breytingatillögu fjármálastjórans að þjónusta við fatíaða verði skert. Hann hefur kall- að eftír skýrum upplýsingum um hvort það verði gert. „Við fengum þau svör í borgarráði að auka ættí þjónustu við fatíaða og þeim stæði til áfram til boða hefðbundin leikja- og ffístundanámskeið yfir sumar- tímann. Auðvitað þarf að botna það með góðum tíma fýrir sumarið hvort verið sé í raun að draga úr þjónust- unni. Þetta þarf að vera skýrt því það má ekki vera að skorið sé niður og standi eitthvað útaf borðinu þá þarf að taka á því," segir Dagur. Vilja ekki skerta þjónustu Andri Valgeirsson, formaður Ný- ungrar, ungliðahreyfingar Sjálfs- bjargar, er verulega vonsvildnn yfir þessari ákvörðun borgarráðs að veita ekki aukafjármuni líka til fatíaðra. Hann segir sumar- starfið mjög mildlvægt fyr- ir fötluðu bömin. „Ég lýsi yfir miklum vonbrigðum og algjör synd að krökk- unum sé ekki boðið upp á neitt í sumar. Með því er unnið gegn félagslegri einangrun og því er þessi forgangsröðun borgarinn- ar óskiljanleg. I mínum huga er þetta sumarstarf mjög mik- ilvægt og ég hvet borgaryfir- völd til að endurskoða þessa ákvörðun. Ég held að þau hafi ekk- ert annað í stöðunni en að leið- rétta þessar eigin gjörð- ir," segir Andri. ^ Soffi'a seg- ir þessa niðurstöðu mikið tílfinn- ingamál fyrir foreldra fatlaðra bama sem nú fái ekki þá þjónustu sem börnin þurfa. Hún fundar í dag með öllum deildarstjómm tómstunda- starfs ITR þar sem viðbrögð við vandanum verða rædd. „Við höf- um farið okkar hefðbundnu leið og með allan okkar rökstuðning í þeirri von að fá fjármuni í þessa þjónustu. Niðurstaðan var óvænt og skellur fyrir okkur en við verðum bara að taka þessu. Óánægja foreldra hef- ur bimað á mínu fólld og ég á von á óánægjuöldu vegna þessa því for- eldrar fatlaðra barna þurfa þennan smðning," segir Soffi'a. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraun- ir fengust hvorki svör frá Kjartani Magnússyni, borgarfulltrúa Sjálf- stæðisflokksins og formanni ÍTR, né Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni, odd- vita Sjálfstæðisflokks í borgarstjóm og formanni borgarráðs, við vinnslu fféttarinnar þrátt fýrir ítrekaðar til- raunir. Þá var ítrekað reynt að ná í Ólaf F. Magnússon borgarstjóra en án árangurs.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.