Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2008, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2008, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 8. APR(L 2007 Fréttir DV íslenskir námsmenn sem sækja nám erlendis hafa lakari réttarstööu þegar kemur aö fæöingarstyrk frá íslenska ríkinu en nem- endur viö islenska skóla. Harpa Hrönn Stefáns- dóttir sér ekki fram á aö geta haldið áfram námi i haust vegna fjárskorts. Hún fékk full námslán frá LÍN fyrir síö- asta skólaár en ^ telst ekki hafa verið i nógu M miklunámitilaö ÆpÆtfij fá fæðingarstyrk. Jmá Henni finnst íslensk yfirvöld bregðast náms- mönnum. Vonsvikin Harpa Hrönn Stefánsdóttir með fjögurra mánaða gamlan son sinn. Hún varð undrandi þegar umsókn iiennar um fæðingar- styrk var synjað enda fékk hún full námslán. f mi „Næst á dagskrá er að athuga hvað dönsk félagsmálayfirvöld geta gert fyrir okkurþví íslenska ríkið er búið að þvo hendur sínar afokkur" SÝNJÁÐÚM^H IFÆDINGARSTYRK ERLA HLYNSDÓTTIR bladamadur skrifar: erla@dv.ls „Ég get ekki betur séð en það sé búið að dæma mig úr námi," segir Harpa Hrönn Stefánsdóttir. Hún er í námi erlendis og fékk full náms- lán frá Lánasjóði íslenskra náms- manna fyrir síðustu tvær annir. Harpa býr í Danmörku ásamt fjög- urra mánaða syni sínum en sam- kvæmt reglugerð um úthlutun fæðingarstyrks fær hún þó engan slíkan styrkþar sem mat Fæðingar- oriofssjóðs er að hún hafi ekki verið í nægjanlega miklu námi. Þar sem hún er með lögheimili erlendis fær hún heldur ekki fæðingarstyrk sem móðir utan vinnumarkaðar. Nýbökuð móðir stórskuldug Harpa og maðurinn hennar sem einnig er í námi þurfa nú að sjá fyr- ir heilli fjölskyldu með námslánum mannsins. Hún lauk BA-gráðu frá Háskóla Islands og hefur tekið eitt ár í meistaranámi við svissnesk- an háskóla. Harpa ætlaði að hefja nám á ný í haust við danskan há- skóla og ljúka meistaragráðunni. Hún sér þó ekki fram á að geta það vegna fjárskorts. Maðurinn henn- ar er einnig í meistaranámi. „Ef allt fer á versta veg þarf hann líka að hætta í skóla," segir hún og sér fram á að vera orðin stórskuldug áður en sonur þeirra verður ársgamall. Til að láta enda ná saman er hún með yfirdráttarlán hjá íslenskum banka með tilheyrandi vöxtum. Undrandi á Fæðingarorlofssjóði Skýringin á synjun styrksins er sú að á haustönn 2007, ári áður en sonurinn fæddist, var Harpa að- eins í 63 prósenta námi. Á vorönn 2007 var hún þó í yfir 100 prósenta námi. Alls telst hún hafa verið í um 83 prósenta námi á skólaárinu og bjóst hún ekki við öðru en að fá styrkinn. f reglum um úthlutun segir hins vegar að nemandi þurfi að vera í 75 til 100 prósenta námi samfellt í sex mánuði eða lengur á síðustu tólf mánuðum fyrir fæð- ingu barnsins. Vorönnin var aðeins fimm mánuðir og því var umsókn- inni synjað. Úrskurðarnefnd fæð- ingar- og foreldraorlofsmála stað- festi synjunina. Harpa er undrandi á þessu fyr- irkomulagi og fyndist eðlilegra að Fæðingarorlofssjóður tæki LÍN sér til fyrirmyndar hvað varðar mat á námsframvindu enda teljist hann sú stofnun sem beinlínis starfar við það. Harpa gagnrýnir að yfir- völd virðist svo upptekin af því að tryggja að ekki sé svindlað á kerf- inu að þeir sem kerfið á að hjálpa líði fyrir það. „Efallt fer á versta veg þarfhann líka að hætta í skóla" Fellurá milli flokka Leó Örn Þorleifsson, forstöðu- maður Fæðingarorlofssjóðs, bend- ir á að eðlismunur sé á náms- lánum og fæðingarstyrk að því leyti að námslán séu borguð til baka en styrkur ekki. Úthlutunarregl- ur sjóðsins eru þó stigsskiptar og miðast við styrki til fólks á vinnu- markaði, námsmanna og fólks utan vinnumarkaðar. Námsmenn sem uppfylla ekki skilyrði sjóðsins um námsframvindu falla þá ein- faldlega niður um flokk og fá fæð- ingarstyrk sem foreldri utan vinnu- markaðar. Skilyrði fyrir því er þó að viðkomandi sé með lögheimili á fs- landi. Harpa er hins vegar með lög- heimili í Danmörku eins og henni er skylt þar sem hún hugðist dvelja þar lengur en þrjá mánuði þegar hún fluttist þangað í september- byrjun. Vegna þess hversu stutt hún hafði búið í Danmörku fyrir fæð- ingu sonarins fær hún heldur ekki fæðingarstyrk frá danska rík- inu. Hún bindur vonir við að þar- lend yfirvöld sýni aðstæðum fjöl- skyldunnar meiri skilning en þau íslensku: „Næst á dagskrá er að athuga hvað dönsk fé lagsmálayfirvöld geta gert fyrir okkur því íslenska ríkið er búið að þvo hend- ur sínar af okkur." Harpa hefur þegar leitað ásjár Jóhönnu Sigurð- ardóttur félags- málaráðherra .f^ og átti við hana símafund. fó- hanna lét kanna stöðu Hörpu og strax næsta dag fékk hún símtal frá ráðuneytinu þar sem henni var tjáð að staðfesting úrskurð- arnefndar fæðingar- og foreldraorlofsmála á synjun Fæðingarorlofs- sjóðs sé gild. 0

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.