Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2008, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2008, Síða 9
DV Frittir ÞRIÐJUDAGUR 8. APRlL 2007 9 SVÍÞJÓÐ Lágkúra var orðið sem Geir H. Haarde forsætisráðherra gaf fyrirspurnum og málflutningi Ögmundar Jónassonar, þing- flokksformanns Vinstri grænna, á Alþingi í gær. Ögmundur gagnrýndi Geir harkalega fyrir að fljúga með dýrum og meng- andi einkaþotum á sama tíma og ráðdeildar væri þörf. Alþingis en Ögmundur sestur í sæti sitt. Þótti þingmanninum sem svör forsætisráðherrans væru rýr í roð- inu, nokkuð sem forsætisráðherr- anum virtist þykja um spurningar þingmannsins. BRYNJÓLFUR ÞOR GUÐMUNDSSON fréttaitjóri skrifar: brynjolfur@dv.is Geir H. Haarde forsætisráðherra og Ögmundur Jónasson, þingflokks- formaður Vinstri grænna, tókust harkalega á um ferðalög forsæt- isráðherra í fyrirspurnatíma á Al- þingi í gær. ögmundi þótti sem Geir veldi þann ferðamáta sem táknaði best misskiptingu, óhóf og bruðl síðustu ára meðan Geir þótti málflutningur Ögmundar hin mesta lágkúra. „Það er ekki hægt að eiga orða- stað við þingmenn Vinstrihreyfing- arinnar græns framboðs því þeir gagga eins og hænur úr sæti sínu," sagði Geir í gær og virtist afar ósátt- ur við Ögmund. Þá hafði Ögmund- ur kallað fram í fyrir Geir þar sem forsætisráðherrann var í ræðustól stjóri Samtaka atvinnulífsins. Báðir eru sérstakir gestir Norrænu ráð- herranefndarinnar á fundinum og fengu far með einkaþotu sem ís- lensk stjómvöld leigðu til að fljúga með sendinefndina til Sviþjóðar. crýtii Ogn Jgmundur bar fram fyrirspurn fyrir forsætisráðherra við upp- haf þingfundar í gær. Ögmund- ur furðaði sig á því að Geir legðist í annað skipti á skömmum tíma í ferðalög með einkaþotu. Forsæt- isráðuneytið hafði deginum áður tilkynnt að Geir H. Haarde forsæt- isráðherra væri ásamt Björgvini G. Sigurðssyni viðskiptaráðherra á leið til Riksgransen í heimskauta- hémðum Svíþjóðar þar sem nor- rænir ráðamenn funda. Með þeim í for er Þorsteinn Pálsson, ritstjóri Fréttablaðsins, og Hannes G. Sig- urðsson, aðstoðarframkvæmda- Ögmundur hafði þá spurt hvaða skilaboð stjórnvöld sendu með leigu einkaþotu. Lágkúra Samkvæmt upplýsingum frá forsætisráðuneytinu kostar 800 til 900 þúsund krónum meira að fljúga með einkaþotu en áætlana- flugi. Geir réttiætti þennan mun á Aiþingi í gær með því að þannig sparaðist ferðalöngum vinnutími þar sem ferðin tæki mun skemmri tíma með einkaþotu en almenn- ingssamgöngum sem væru ekki sérstaklega greiðar á þessu svæði. Geir sagði þingmenn vita að hann hefði sárasjaldan séð sig knúinn til að ferðast með þessum hætti vegna starfa sinna og var ósáttur við at- hugasemdir Ögmundar. „Það er ekkert annað en lágkúra, háttvirtur þingmaður." Ögmundur hafði þá spurt hvaða skilaboð stjórnvöld sendu Tekist á um ferðalögin Forsætisráðherra og þingflokksformanni Vinstri-grænna lenti saman við upphaf þingfundar og vönduðu þeir hvor öðrum ekki kveðjurnar. með leigu einkaþotu. Vísaði hann þar til umhverfisvænna ferðamáta og þess að ráðdeildar væri þörf á mesta verðbólgutíma á íslandi í hálfan annan áratug. DV óskaði eftir upplýsingum frá Grétu Ingþórsdóttur, aðstoðar- manni Geirs, um flugáætlun vegna ferðarinnar til Riksgransen og hvort Geir myndi ferðast með almennu flugi eða einkaþotu þegar hann fer til Kanada um næstu helgi. Engin svör höfðu borist seint í gær. Fræg skíðaparadís Riksgransen er nyrsti skíða- ferðastaður Evrópu og vinsæll áfangastaður fyrir skíða- og snjó- brettamenn sökum þess hversu náttúran er mögnuð og skíðafæri margvíslegt, að því er fram kemur á ferðavefum. Riksgransen er í Lapp- landi og í eins og hálfs klukkutíma fjarlægð landleiðina frá Kiruna, al- veg við landamæri Noregs. Skíða- tímabilið nær frá febrúar ffam í júní. GAGGA EINS 0G HÆNUR ÚRSÆTISÍNU FORSÆTISRÁÐHERRA ÁFERÐOG FLUGI MEÐ EINKAÞOTU ENGIN SVOR MEÐ EINKAÞOTU

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.