Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2008, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2008, Page 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 8. APRlL 2007 Fréttir DV ipjjunc •>A-jS6Ml KOLBEINN ÞORSTEINSSON bladcimaöur skrifar: kolbeinnavclv.is Nýlegar breytingar á refsilöggjöf í Tyrklandi gera að verkum að nú þurfa fangar að sitja lengur í fang- elsi en áður en þeir geta vænst þess að fá reynslulausn. Aukinheldur hafa endurbætur á lagaumhverfi landsins valdið því að í sumum tilfellum þarf að hefja réttarhöld, sem þá þegar eru hafin, að nýju frá upphafi. Nú er svo komið að fangelsi í Tyrklandi, mörg hver arfur liðinna tíma, rúma ekki allan þann fjölda sem dæmdur er til fangelsisivistar. Til að bæta gráu ofan á svart veld- ur mannekla því að ekki er hægt um vik að sinna mörgum þáttum og þörfum þeirra þúsunda sem dvelja í fangelsi um lengri eða skemmri tíma. í dag eru fangar í Tyrklandi um eitt hundrað þúsund og hafa aldrei verið fleiri. Þó nú þegar sé hafm bygging nýrra fangelsa sem leysa eiga hin gömlu af hólmi er fangelsiskerfið víða við að springa og álag á þá sem sinna störfum inn- an þess er við að sliga þá. Fangelsin tímanna tákn Bayrampasa-fangelsið í Istanbúl var tekið í notkun á sjöunda áratug síðustu aldar. Á árum áður var það gjarnan notað til að hýsa alræmd- ustu glæpamenn Tyrklands, allt frá mafi'uforingjum til vinstrisinnaðra öfgamanna. Nú er öldin önnur og fangarnir meira eða minna óþekkt- ar stærðir, en fjöldinn hefur aftur á móti aldrei verið meiri. Þegar Bayrampasa-fangelsið var tekið í notkun miðaðist aðstað- an við eitt þúsund og sjö hundruð fanga; síðan þá hefur fjöldi fang- anna meira en þrefaldast og þurfa þeir að deila með sér aðstöðu sem upphaflega miðaðist við mun minni fjölda. Á einni deild fangelsisins, sem upphaflega var ætluð sextíu manns, þurfa nú um eitt hundr- að fjörutíu og fimm manns að búa í sátt og samlyndi við afar mik- Haag í Hollandi Tyrkir mótmæla slæmum aðbúnaði í tyrkneskum fangelsum 2001. il þrengsli. Deildin er hrein í hólf og gólf, en rýmið er svo takmarkað að jafnvel á göngunum eru kojur með þremur svefnfletum, því yf- irvöld þurftu að bregðast við hin- um mikla fjölda með því að bæta svefnfleti á kojur fangelsisins. „Við tökum þessu því við eigum eng- an annan kost. En það er ekki ein- falt fyrir svo marga að búa saman," sagði einn fanganna. Heit sturta einu sinni í viku Einungis tvö salemi em fýrir þá eitt hundrað sextíu og fimm fanga sem búa á áðurnefndri deild, þannig að rétt er hægt að ímynda sér hvort ekki gæti örtraðar á stundum við sal- emin. Fangar fá að fara í heita sturtu einu sinni í viku. Bathisen Er fangelsisstjóri viður- kennir að við ýmis vandamál sé að eiga í rekstri fangelsisins. Hann segir að starfsmenn geri sitt besta, en það sé þeim um megn að veita alla þjá þjónustu sem þeir annars kysu. „Við getum einungis heimilað mttugu mínúma heimsóknir í stað klukku- tíma. Smndum getum við ekki sent fanga í réttarsal eða á sjúkrahús því okkur skortir mannafla til að fylgja þeim," sagði Bathisen Er. Fangels- isyfirvöld reyna af veikum mætti að sjá til þess að fangar hafi eitthvað fyrir stafni, en með tvo starfsmenn á fjögur þúsund fanga er degin- um ljósara að við ramman reip er að draga í þeim efnum. En fangar í Bayrampasa horfa fram á betri tíð með blóm í haga. Öfundsverð aðstaða Lausn tyrkneskrayfirvalda á fang- elsisvandamálum landsins liggur að hluta til um klukkustundar aksmr frá Istanbúl. Silivri liggur ekki langt frá strönd landsins, og þar eru stjóm- völd við að leggja síðusm hönd á fangelsi framtíðarinnar. Hvergi er að sjá stórar fangelsisdeildir fyrri tíma, en þeirra í stað litlar einingar, sem HEITSTURTAEINUSIN Fjöldi fanga í Tyrklandi miðað við íbúaflölda hefur hingað til verið mun lægri en í Evrópu. Ástæðan er sú að fangelsi lands- ins eru fyrir margt löngu orðin yfirfull og ástandið orðið svo slæmt að mannekla hefur valdið því að ekki hefur verið hægt að fylgja fanga í réttarsal eða á sjúkrahús.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.