Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2008, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2008, Síða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2008 Neytendur DV ÉNEYTENDUR neytendur@dv.is Umsjón: Ásdís Björg Jóhannesdóttir Kjarnafæði með óbreytt verð Kjarnafæði hefur ákveðið að hækka ekki verð hjá sér þrátt fyrir miklar hækkanir á hráefni, umbúðum, flutningsgjöldum og eldsneyti á undanförn- um vikum. Neytendasamtökunum barst bréf frá þeim þar sem þeir lýstu yfir að vilja fylgja tilmælum viðskiptaráðherra, forystumanna AS( og Neytenda- samtakanna um að sporna við óhóflegri verðbólgu. Kjarnafæði, líkt og Ikea, vill með þessu leggja lið í baráttunni gegn versnandi kjörum. Neytenda- samtökin hvetja enn fleiri fyrirtæki til að gera slíkt hið sama. Langolanga Olíukóngarnir sleppa „Ég vil meina að þeir sem mót- mæla háu bensínverði beini mótmælum sínum ekki að rík- inu heldur að olíufélögunum sem stálu af okkur peningum árum saman með samráði," seg- ir Halldór Gylfason leikari. „Fólk áttar sig ekki á því að skattur- inn sem ríkið hirðir af hverjum bensínlítra fer í að leggja vegi og jarðgöng. Eigendur olíufélag- anna ættu frekar að einbeita sér að því að minnka sinn hlut. Þeir eru búnir að stela nóg af okkur. Þessir sömu menn líta út fyrir að vera hetjur í dag fyrir það að lækka í einn dag." |H| Skúlagötu SkúgarthO |íy| Grafarholti 03 Gmfarbolti (Jj) Sokntgl fífl SkógarhUð 144,60 liRNNlN 145,90 ItKNNlN 146.10 llliNNlN 144,00 UKNNlN 144.10 III'NNlN 145,90 lil'NNlN 154,00 UlNKL 155,00 DÍ8BL 154,90 DlNBL 153,00 DÍSBL 153.10 DÍNEL 155,00 DlNBL 155.10 DlNI'L Verö fyrir tannlæknaþjónustu hér landi þykir vera afar hátt. Ein heimsókn kostar aldrei undir nokkur þúsund krónum. Verð er þó afar mismunandi og ómögulegt að bera saman verð hjá einum tannlækni til annars þar sem þeir vilja lítið gefa upp fast verð. „Fólki finnst þetta vera mjög dýrt,“segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna. „Álögurá barnafólk hafaaukist mest" OMOGULEGTAÐH BERA SAMAN VERÐ - Ómögulegt er að bera saman verð á milli tannlækna vegna mismun- andi álagningar og eðlis aðgerða. Álagning er frjáls og nýta marg- ir tannlæknar sér það. f könnun sem Neytendasamtökin gerðu fyrir stuttu á verðskrám 143 tannlækna kemur í ljós að munur getur verið allt að 200 prósentum. Þegar DV hafði samband við tannlæknana í þeirri von að kanna hvort verð hafði hækkað síðan könnunin var gerð var ómögulegt að fá haldbær- ar upplýsingar. Gífurlegur munur í meðfylgjandi töflu voru vald- ir tíu tannlæknar af handahófi úr könnun Neytendasamtakanna. f töflunni sést að dýrasti tannlækn- irinn er 120 prósent dýrari en sá ódýrasti. Að fara í myndatöku og fyllingu á jaxli ásamt deyfingu kost- ar 20.300 hjá þeim sem er dýrastur en 9.300 hjá þeim sem er ódýrast- ur. Munurinn er sláandi. Ingibjörg Sara Benediktsdóttir, varaformað- ur Tannlæknafélags fslands, seg- ir tannlækna á íslandi heyra und- ir Samkeppnisstofnun og þeir megi ekki hafa eina gjaldskrá. „Fólk verður að halda uppi sínum , stofum." Verðin á huldu Þegar DV hringdi á nokkra staði til að kanna hvort verð hefði breyst á undanförnum vikum var afar erfitt að fá uppgefna eina tölu. Spurt var um hvað kostaði að láta setja nýja fyllingu í jaxl. Þeir tannlæknar sem hringt var í sögðu að ekki væri hægt að gefa upp nákvæmt verð nema þeir sæju skemmdina. í ljósi þess er því nánast ógerlegt fyrir neytend- ur að vita fyrirfram hvað þeir eru að borga fyrir. Auk þess geta þeir ekki borið saman verð og ákveðið tann- lækni út frá því. Ingibj örg segir tann- lækna ekki hrifna að gefa verð í síma. „Það eru líka alltaf einhverjir sem eru að leita að ódýr- asta tannlækninum, en hann er ekki endilega sá besti," segir Ingibjörg. Mikill mismunur Tryggingstofnun endurgreiðir þeim sem eru tryggðir samkvæmt almannatryggingalögum eftir gjald- skrá sem heilbrigðisráðuneytið gef- ur út. Sem dæmi eru endurgreidd- ar 1.020 krónur fyrir röntgenmynd. Dýrasti tannlæknirinn í meðfylgj- andi töflu rukkar 2.400 krónur fyr- ir myndatöku. Mismunurinn leggst á sjúklinginn eða 1.380 krónur. Rontgenmynd Rúniar þúsund krónur fást endurgreiddar frá Tryggingastofnun fyrir myndatöku Fyrir fyllingu á tvo fleti á tönn fær maður endurgreiddar 6.850 krón- ur. Dýrasti tannlæknirinn tek- ur 16.000 krónur fyrir það. Mun- urinn þar er enn meiri eða 9.150 krónur. „Gjaldskrá ráðherra hefur lít- ið breyst undanfarin ár, hún hefur ekki fylgt verðlagsþróuninni. Við tannlæknar verðum hins vegar að fylgja þróuninni," segir Ingibjörg. VERÐSKRA SKV. KONNUN NEYTENDASAMTAKANNA I SEPTEMBER 2007 Röntgenmynd Ðeyfing Fylling 2"fletir Flúorlökkun Samtals Guðmundur Lárusson, Bergstaðastræti 52, Reykjavik 1.400 1.400 6.500 3.500 12.800 Jón Már Björgvinsson, Reykjarvíkurvegi 60, Hafnarfirði 1.440 1.510 8.625 4.800 16.375 27,93% Elmar Geirsson, Þverholti 7, Mosfellsbæ 1.500 1.500 9.500 4.000 16.500 28,91% Þór Axelsson, Faxafeni 5 Reykjavík 1.800 1.600 11.200 3.900 18.500 44,53% Anna Sigríður Stefánsdóttir, Núpalind 1, Kópavogi 1.550 1.600 11.500 4.600 19.250 50,39% Gestur Már Fanndal, Þönglabakka 1, Reykjavík 1.885 1.445 11.385 3.900 18.615 45,43% Tinna K. Snæland, Hamraborg 5, Kópavogi 1.880 1.630 12.200 5.250 20.960 63,75% l , Guðný Ester Gunnarsdóttir, Hlíðasmára 17, Kópavogi 2.100 1.705 12.350 4.560 20.715 61,84% '1' \ Úlfhildur Leifsdóttir, Garðatorgi 7, Garðabæ 2.070 1.650 15.230 4.800 23.750 85,55% Helgi Magnússon, Skipholti 33, Reykjavík 2.400 1.900 16.000 7.900 28.200 120,31% Wjpj HÆSTAVERÐ 2.400 1.900 16.000 7.900 SKF LÆGSTAVERÐ Í.J/' MUNUR í PRÓSENTUM 1.400 1.400 6.500 3.500 71,43% 35,71% 146,15% 125,71% Sparnaðarráð frá Netorku: ISSKAPURINN EYÐIR ■ Lofið fær viðskiptaráðherra og stjórnvöld fyrir að boða átak f verðkönnunum. í samstarfi við AS(, Neytendasamtökin og Neytendastofu ætla þau að lelta leiða til að vinna gegn verðhækkunum og draga úr þelrrl verðlagsþróun sem stefnir í. LOF&LAST Lastiðfærverslunin Krónan i Mosfellsbæ fS fyrir að bregðast viðskiptavinum sínum. Fyrir stuttu varð j , uppi fótur og fit þegar tveir mt starfsmenn á kassa stóðu - upp frá löngum röðum á háannatíma og sögðust vera búnir að vinna. Enginn var mættur til að leysa þá starfsmenn af hólmi. Viðskiptavinirvoru ekki sáttir. Þú getur lækkað rafmagnsreikn- inginn með því að minnka orku- notkun á heimilinu. Til að mynda eru mörg ráð til að spara rafmagn á hitastigi, lýsingu, eldhúsinu og þvottahúsi. Einföld atriði eins og að lækka innihita, muna að slökkva ljós og hafa glugga lokaða nema til að lofta út geta skipt miklu. fsskápar nota mikið rafmagn. Því er ráðlagt að meta hvað mað- ur þarf stóran ísskáp til notkunar. Tómur ísskápur eyðir mestu. Hagstæðast er að ísskápur sé milli 3 og 4 gráður og frystir 18 gráður og því þéttari sem hann er því minna rafmagni eyðir hann. Það sem skiptir miklu máli í end- ingu og orkunotkun skápsins er að kæligrindin að aftan þarf að vera hrein og hafa nóg pláss til kæling- ar. Með matvæli og ísskáp á að láta mat kólna áður en hann er settur í inn í hann og ekki er æskilegt að geyma vökva í opnum umbúðum í honum. Að lokum er ekki gott að hafa ísskápinn opinn að óþörfu og best að vera búinn að ákveða hvað skal ná í. Með þessum fáeinu ráðum er hægt að lækka rafmagnsreikning- inn um nokkrar krónur á mánuði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.