Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2008, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2008, Side 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 8. APRlL 2008 Umræöa DV ÚTGÁFUFÉLAG: Dagblaðiö-Vísir útgáfufélag ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Hreinn Loftsson FRAMKVÆMDASTJÓRI: Elln Ragnarsdóttir RITSTJÓRAR: JónTrausti Reynlsson og ReynirTraustason FULLTRÚIRITSTJÓRA: Janus Sigurjónsson FRÉTTASTJÓRI: Brynjólfur Þór Guðmundsson AUGLÝSINGASTJÓRI: Ásmundur Helgason Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaösins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. öll viötöl blaösins eru hljóörituö. AÐALNÚMER 512 7000, RITSTJÓRN 512 7010, ÁSKRIFTARSÍMI 512 7080, AUGLÝSINGAR 512 70 40. SAIVDKORIV ■ Illgresi, málgagn Ungra vinstri grænna, kom nýverið út í ritstjórn Elíasar Jóns Guð- jónssonar blaðamanns. Athyglisverð úttekt birtist í blaðinu um tengsl Sjálf- stæðisflokks- ins við fjöl- miðla, undir fyrirsögninni „f klóm ránfuglsins". Þar eru taldir upp menn í ritstjórnar- stöðu á þremur dagblöðum: Morgunblaðinu, 24 stundum og Fréttablaðinu. Þrír hafa verið formenn Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík. Það eru Ólafur Þ. Stcphensen á 24 stund- um, Björgvin Guðmundsson á Markaði Fréttablaðsins og Styrmir Gunnarsson, ritstjóri Morgunblaðsins. ■ f Illgresi Ungra vinstri grænna kemur einnig fram að Elín Hirst, yfirmaður frétta á fréttastofu Sjónvarpsins, sé tengd inn í Sjálfstæðisflokkinn. Hún er góð vinkona Kjartans Gunnarssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra flokks- ins, og eiginmaður hennar er yfirlýstur frjálshyggjumaður. Einnig er réttilega bent á að Þorsteinn Pálsson, ritstjóri Fréttablaðsins, hafi verið hvorki meira né minna en for- maður Sjálfstæðisflokksins. ■ Fram kom í burðargrein í Fréttablaðinu í gær að forsæt- ■ isráðuneytið hefði varið ®tta tjl ntu hundruð- um þús- If-* unda króna aukalega í ■ ferðakostn- I að fyrir Geir ■ H. Haarde forsætisráðherra og föruneyti með því að leigja einkaþotu fyrir Svíþjóðarferð hans sem hófst í gær. Einnig kemur fram í sömu grein að Þorsteinn Pálsson, ritstjóri Fréttablaðs- ins og fyrrverandi forsætisráð- herra, sé með forsætisráðherr- anum í för. ■ Stefán Birgir Stefánsson heitir óhefluð tilfinningavera sem heldur úti vefsíðunni sbs. is. Stefán trylltist á dögunum vegna saklausrar yfirlitsgrein- ar á dv.is um aprílgöbb og lýsti yfir hatri á DV. Aprílgabbið tengdist kvikmyndinni Heið- inni, sem Stefán hafði áður sagst í dómi á síðunni bera djúpt hatur til. f falsaðri frétta- tilkynningu kom fram að að- standendur Heiðarinnar hefðu ákveðið að kæra hann fyrir að ala á hatri, en í grein á dv.is var líkum leitt að tengslum hans við gabbið. Upphaf haturs- öldunnar í huga bloggarans má rekja til þess að hann taldi að lambi hefði verið slátrað við tökur á Heiðinni, sem var rakin vitleysa af hans hálfu. Lesendur sbs.is hafa í kjöl- farið gert tilraunir til að svara óbeisluðu hatri hans, en án ár- angurs, því hann strokar um- mælin jafnharðan út. pð Forseti fólksins JÓN TRAUSTI REYNISSON RITSTJÓRI SKRIFAR. Forsetinn er ekkifastur iJjögitrra ára áætlunum, lík, LEIÐARI Olafur Ragnar Grímsson hefur fært forseta- embættið yfir á annað plan. Hann hefur staðið með þjóðinni gegn ofríki stjórn- málamanna og linnulaust kynnt sér- stöðu íslands erlendis. Hann hefur verið pólitískur án flokkadrátta og unnið markvisst að eflingu við- skiptatengsla. Forsetaembættið hefur verið gagnrýnt fyrir fjáraust- ur, ekki síst á þeim tímum sem embættið var bara upp á punt. Ólafur Ragnar hefur á forsetatíð sinni náð að kveða slíkt tal í kútinn. Líklega hefur hann verið þjóðinni hverrar krónu virði þegar kemur að beinum viðskiptahagsmunum og ímyndarmálum. í síðasta mánuði talaði forsetinn fýrir því að það væri íslensku þjóðinni ekki til hagsbóta til lengri tíma ef land- búnaðarframleiðslan hyrfi úr landi. Það kann að vera hagkvæmt þegar best árar að láta þá um matarframleiðsluna sem ná mestri hagkvæmni, það er að segja að við einbeitum okkur að annarri starfsemi og flytjum inn matinn. Forsetinn hélt ræðu sína um fæðuöryggi þjóðarinnar 2. mars og 6. mars hófst fall krónunnar sem leiddi til þess að 10 til 20 prósenta verðhækkanir matvöru skullu á almenningi. Ólafur Ragnar hefur lag á því að horfa á heildarmyndina. For- n, likt ogfranikvæmdavaldid. setinn er ekki fastur í fjögurra ára áætlunum, líkt og framkvæmdavaldið. Hann notar embættið ekki aðeins til hátíðabrigða og er óhræddur við að láta til sín taka þegar hann telur að unnið sé gegn hags- munum almennings. Enda er hann engum háður nema fólkinu í landinu. Hann er eini maðurinn sem kjörinn er af þjóðinni. Það kom ríkisstjórn Davíðs Oddssonar í opna skjöldu að forsetinn skyldi standa í vegi hennar, þegar þröngva átti í gegn fjölmiðlalögum gegn vilja mikils meirihluta þjóðarinnar. Forsetinn beitti mál- skotsrétti sínum í fýrsta sinn og það síðasta, ef ríkis- stjórnin hefði ráðið. Viðbrögð framkvæmdavaldsins voru ótrúleg og frekar í stíl Róberts Mugabe heldur en íslenskra stjórnmála. Það átti að afnema málskotsréttinn, sem þýddi í raun að svipta þjóðina þeim rétti að kjósa um um- deild mál sem koma upp innan fjögurra ára kjörtímabils stjórn- málaflokkanna. Nú hefur verið tilkynnt að forseti íslands bætist í hóp með Nel- son Mandela, Martin Luther King, Olof Palme og fleirum, þegar honum verður veitt æðsta viðurkenning indversku þjóðarinnar, Nehru-verðlaunin. Það segir sitt um það starf sem Ólafur Ragnar hefur innt af hendi erlendis, í þágu friðar og alþjóðasamvinnu. FEITIR FATÆKLINGAR SVARTHÖFÐI Svarthöfði hefur, eins og flestir, rekið sig á það undanfarið að mjólkin hefur hækkað töluvert. Þá hafa trukkabílstjórar séð til þess að svimandi hátt eldsneytisverð hef- ur ekki farið fram hjá neinum. Það er því á hreinu að íslenska velmeg- unin sem við komumst upp á lagið með í dásamlegri valdatíð Davíðs Oddssonar hefur lent á einhverri hraðahindrun. Svarthöfði skilur samt ekkert í þeim bölmóði sem pattara- íegir og vel aldir verkalýðsfor- ingjar fá að dæla yfir hrædda þjóð í fjölmiðlum. ísland og efnahagur þess hefur verið meira og minna á leiðinni lóðbeint til helvítis svo lengi sem Svarthöfði man, þótt þessi stað- reynd hafi kannski týnst um stundar sakir í álbræðslugróðaþokunni. erum fslendingar og munum því ekki láta segjast og förum bara að eyða um efni ffam með vondri sam- visku. Allt krepputal er ýkt svarta- gallsraus. Eða ædi íslenskir fátæk- lingar, fyrr á öldum, hefðu ekki þurft að láta segja sér það þrisvar að helsta vandamál fátældinga á íslandi árið 2008 yrði offita. Þegar alvörufátækt var landlæg á íslandi hékk fólk bókstaflega á horriminni í moldarkofum með tilheyrandi vosbúð. Þá var ekki um annað að ræða en japla á ómet- anlegu bókfelli og kasúldnum mat sem í seinni tíð er orðinn tískumatur einu sinni á ári. kei. Vel má vera að við get- I 1 um ekki lengur eytt um efni ff am bjóðs á borð við hrúts- pungaog með góðri sam- 1 hland- ,/ visku en leginn Ji við V l há- m 1 1 l * .juA lvörufátækt er ekki einu sinni fjar- Jæg minning á íslandi lengur og þess vegna er hægt að gera neyslu við- karl að skemmtilegu ritúali í vel- sældinni. Nú er amerískur og ítalskur fátæklingamamr orðinn að fokdýru daglegu brauði og við tökum okkur aðeins örstutt frí frá McDonalds, flatbökum og Kentökkí- kjúklingi einu sinni á ári til þess að skemmta okkur við að éta viðbjóð- inn sem forfeður okkar kúguðust á áður. Ef ekkert væri á íslenskum borðum annað en innmatur og súrsað ógeð í öll mál vær- um við varla að drepast úr spiki og að sliga heilbrigðiskerfið með öllum aukakílóunum okkar. Feittfólk getur ekki verið að drepast úr fátækt og Svarthöfði mun því ekki kyngja því að það sé komin kreppa fyrr en hvalreki verður aftur lífsbjörg og hann þarf að pissa á hákarl til þess að lifa veturinn. ekki að höndla gæðin og getum ekkert látið á móti okkur lengur. Ef við kynnum okkur hóf ættum við inni sparnað sem gæti mætt öllum matvælahækkunum og alheims- okri á bensíni. Það þarf bara að gera greinarmun á lífsnauðsynjum og munaði. Hætta að reykja, drekka og djamma. Ganga tíl vinnu, samein- ast um bílferðir, setja niður kartöflur. Þær koma upp og hafa haldið Iífinu í hinum ýmsu þjóðflokkum. Þetta væri ekkert flókið ef við vildum sldlja það. Sem betur fer hefur Davíð enn vit fyrir okk- j' ' ^ uroghefurnú ^ skipt ofeld- inu út fyrir ofbeldi og mun þvinga okkur til að éta það sem úti frýs hvort sem okkur tíkar betur eða Oll íslensk vandamál eru lúxus. Meinið er að við kunnum verr. „Ég held að það ætti frekar að leggja áherslu á að þeir æfi sjálfsvarnarlþrótt heldur en að þeir beri vopn." Hafdís Ólafsdóttir, 49 ára, sjúkraþjálfari. „Það mætti vel skoða ef það er mikið af ránum í borginni." Jónína Eiríksdóttir, 37 ára, lyfjatæknir. „Já mér finnst það, en einnig skoða hvort auka skuli eftirlit." Magnús Nilsen, 31 árs, starfsmað- ur í álverinu á Grundartanga. „Mér finnst það sjálfsagt í Ijósi atburða síðustu daga." Kjartan Ásþórsson, 30 ára, tölvunarfræðingur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.