Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2008, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2008, Síða 19
DV Umræða ÞRIÐJUDAGUR 8. APRlL 2008 19 MYNDIN Fótboltahetjur framtíðarinnar Þriðji flokkur Fram æfði af krafti í Safamýrinni í gær. Tilburðirnir voru þvílíkir að víst má teija að þarna leynist arftaki Eiðs Smára Guðjohnsens. DV-MYND Sigurður Minusinn fær borgarráð Reykjavikur sem skorið hefur niður stuðning við fötluð börn á fristundaheimilum. SPURNINGIN ERTU í RUSLI? „Nei, en ég er í basli með rusl," segir Óskar Gunnarsson, forseti bæjarstjórn- ar Sandgerðisbæjar. Undanfarið hafa óprúttnir aðilar hent rusli á svæðið sem kennter við Rockville, þar sem eittsinn var starfrækt meðferð- arheimilið Byrgið og hugsanlega rís netþjónabú. Þar hafa fundist ruslapokar í nokkur skipti en ekki er um viðvarandi ástand að ræða að sögn Óskars. Hann segir þetta hvimleitt vandamál og bendir fólki á að henda ruslinu sínu frekar í sorphreinsistöðina Kölku sem er nokkrum kílómetrum frá. Samfylkingin æsti til uppreisnarinnar Nú hafa ýmsir meðreiðarsveinar Samfylkingarinnar, svo sem Dofri Hermannsson og Egill Helgason, reynt að útmála mótmæli vörubíl- stjóranna sem einhvern asnalegan misskilning, það er að bílstjórarnir fatti ekld að heimsmarkaðsverð á olíu fari hækkandi. Það er auðvitað ekki svo, bílstjórarnir eru eflaust margir hverjir að borga af erlendum lánum sem þeir hafa tekið til að fjármagna bílakaup sín. Þeir þurfa að greiða æ hærra verð fyrir olíuna til að knýja tækin áfram á meðan margur hefur boðið í verk þar sem forsendur eru allar aðrar, enda ekki gert ráð fýrir að ríkisstjórnin missti algjörlega tökin á efnahagsmálum með frægri stefnu forsætisráðherra, stefnunni að-gera- ekki-neitt. Reyndar hefur forsætisráðherr- ann okkar ferðaglaði áður komið ffarn með nýstárlegar hugmyndir í efnahagsmálum, eins og þegar hann ætíaði sér að slá á þenslu með því að fresta ffamkvæmdum á Vestfjörðum, í þeim landshluta þar sem samdrátt- urríkti. Ein krafa vörubílstjóranna er að lækkaðar verði álögur á olíu. Ef eitt- hvert mark ætti að vera hægt að taka á ráðherrum Samfýlkingarinnar, til dæmis samgönguráðherra og ut- anríkisráðherra Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, hefðu þau strax átt að taka undir kröfu bílstjóranna þar sem það eru ekki nema örfá misseri síðan SIGURJÓN ÞÓRÐARSON framkvæmdastjóri skrifar „Það er aumtað horfa upp á þingmenn Samfylkingar- innarskilja vörubilstjórana eftir á berangri þegar þeir krefjast þess aðfariðséað tillögum sem Samfylkingin sjálf lagði til." núverandi samgönguráðherra sem þá var í stjórnarandstöðu sendi frá sér ákall til ríkisstjórnar Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks um lækkun álaga hins opinbera vegna þess að dísilol- ían nálgaðist að kosta 120 krónur lít- rinn. Ef farið er í gegnum þingræð- ur núverandi samgönguráðherra á umliðnum árum blasir við að þetta var hans helsta baráttumál auk þess að jafna flumingskostnað. I þessum ræðum hans kemur greinilega fram að hann telji að skattlagning umferð- ar sé margfalt meiri en varið er í upp- byggingu vegasamgangna. Þessi áhugi Samfylkingarinnar og barátta tók á sig þá mynd að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir flutti sérstaka til- lögu um lækkun olíugjalds um 15%, úr 41 krónu í 35 krónur. Það er aumt að horfa upp á þing- menn Samfylkingarinnar skilja vöru- bílstjórana eftír á berangri þegar þeir krefjast þess að farið sé að tillögum sem Samfylkingin sjálf lagði tíl. Þeim er att á foraðið og síðan fá forysm- menn Samfylkingarinnar minni spá- menn flokksms til að hía á þá. Það væri meiri bragur að því að flugkappamir í ríkisstjórninni settust að viðræðum við bílstjórana til að leita leiða um að leysa úr málum á farsælan hátt. VONBRIGÐIN ERU VERST. Að hlakka til einhvers, sem svo er ekki neitt er ömurlegt. Til dæmis var alveg ömurlegt að sjá Bob Dylan á Hró- arskeldu árið 2006. Ég hlakkaði massíft tíl. Þau kvöld í Melkoti, þar sem Bob var á fóninum í æsku minni, vom góð í minningunni. Eilífðartöffarinn og allir slagaram- ir hans. En því miður, Bob ákvað að taka öll lögin sín í einhverj- um röst-belt-dixí-eikí-breikí- heart útgáfu og tónleikarnir vom ömurlegir. Eins hef ég oft haldið að þjóðfélagið muni taka ömm breytíngum, en ekkert gerist. UM HELGINA vom vonbrigðin í hámarki. Ég pantaði pitsu, beið eftír henni í korter. Keyrði svo frá Arbænum upp í Mosó, með hana íframsætínu, * eins og ítalska ' ' ? kæmstu. Lyktín var fljótt komin um allan bílinn og ég fann næst- um rjómaost- inn bráðna á tungunni á mér. Ég lenti loks í fossinum, greip pitsuna, mixið og hljóp inn. En á leiðinni tókst mér að reka boxið í einhverja súlu á stigaganginum, með þeim afleið- ingum að það datt úr greipum mér. Snerist við í loftinu og opn- aðist. Þannig að pitsan lak niður steyptar og drulluskítugar tröpp- urnar, og áleggið sneri niður. Von- brigðin vom rosaleg. Mér tókst að vöðla henni saman og setja í kassann aftur. Kærastan mín fór næstum því að gráta þegar hún sá hana. Én við emm íslendingar. Og ef eplið er súrt, étum við það. Svo pitsa með pepperoni, rjóma- osti, chilipilar, smá hámm, sandi, steinum og drullu. Ekki málið. JAMES BLUNT er á leiðinni til lands- ins. Ég man eftír einu hallæris- legu lagi með honum, en annað var það ekki. Tónleikahaldarar vom í msli í Fréttablaðinu fyrir helgi. Sögðu að gengisbreytingar væm að setja allsvakalegt strik í reikninginn. Maður hefði átt að sjá í gegnum þetta þá. Það kostar 15 þúsund krónur að sjá Blunt frá ffemsta bekk. Sama og kostar á virkilega góðar tónlistarhátíðir út í heimi. Meira en helmingur af verði Hróarskeldumiða, sem fór virkilega illa út úr falli krónunnar. En ég þori að veðja að það muni seljast upp. Því ef eplið er súrt verðum við að fá smakk. hvað er að frétta?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.