Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2008, Side 29
DV Fólkið
ÞRIÐJUDAGUR 8. APRlL 2008 29
VALDIIJEFFWHO
A LENGJ' ■NNI
LlL
Valdimar Kristjónsson, eða Valdi í
Jeff Who, vann samtals 765 þús-
und krónur á Lengjunni. Vinn-
inginn fékk hann á tveimur
seðlum, þar sem hann meðal
annars veðjaði á Sunder-
land gegn West Ham og ÍR
gegn Keflavík.
„Þetta var alveg fáránleg heppni," segir Valdi-
mar Kristjónsson, hljómborðsleikari sveitar-
innar Jeff Who, sem vann tæpar átta hundr-
uð þúsund krónur á Lengjunni fyrir um
tíu dögum. „Ég vann 600 þúsund krónur
fyrst og svo einhverjum nokkrum dög-
um seinna 175 þúsund," segir Valdi.
„Þetta var svolítið flókinn seðill hjá mér.
Þeir leikir sem skiluðu mér hvað mestu
voru Sunderland gegn West Ham, þar
sem Sunderland skoraði sigurmarkið á
97. mínútu eða eitthvað álíka. Ég tryllt-
ist þegar þeir skoruðu. Svo þurfti Arsen-
al að vinna Bolton með einu marki, það
var tveimur mörkum undir og manni
færri í hálfleik, ég var eiginlega hættur að
hugsa um þetta," segir Valdi en að lokum
mörðu Arsenal-menn sigurinn með þrem-
ur mörkum gegn tveimur og kom sigurmark-
ið eftir venjulegan leiktíma. Seinni sigurinn
á Lengjunni kom nokkrum dögum á eft-
ir hinum, en þá veðjaði Valdi á að fR myndi
fara í framlenginu með Keflavík og vinna,
sem svo ólíklega gerðist. Aðspurður segist þó
Valdi ekki taka þátt í Lengjunni mikið. „Ég tek
þetta í bylgjum. Ætli maður verði ekki að hætta
þessu núna, svo maður geti hætt á toppnum.
Svo má maður ekki láta spilafíknina ná tökum
á sér." Sjálfur er Valdi United-maður og veðjar
ekki gegn liði sínu. Á fyrri sigurseðlinum þurfti
United að vinna Aston Villa með meira en einu
marki, og vann að lokum með fjórum. Valdi seg-
ist enn ekki hafa ákveðið hvað hann ætli að gera
við sigurféð, en eitt er víst, „Ég ætla ekki að eyða
þessu bara í hamborgara eða eitthvað. Ætli mað-
ur fari ekki frekar í einhverja megagrand-ferð í
sumar," en annars er alltaf gott að liggja á smá
aurum, þegar efnahagsástand þjóðarinn-
ar er í molum."
dori@dv.is
. . Kgj
Valdimar Kristjónsson
Ætlar ekki að eyða
vinningsfénu í hamborgara.
FRUMSÝNIRÁ
SKJALDBORG
Heimildarmyndin From Oak-
land to Iceland: A Hip-Hop
Homecoming verður frum-
sýnd á Skjaldborgarhátíðinni á
Patreksfirði sem haldin verður
dagana 9.-12. maí næstkom-
andi. Myndin fjallar um heim-
komu íslensks plötusnúðs, Dj
Plamrn, Illuga Magnússonar
sem alist hefúr upp í Kaliforníu,
og spilað þar við góðan orðs-
tír. Leikstjóri myndarinnar er
Ragnhildur Magnúsdóttir, systir
Illuga. f myndinni er talað við
fjöldann allan af íslenskum tón-
listarmönnum, sem hafa lifað
og hrærst í rappinu hér á landi.
Meðal þeirra sem viðtöl eru tek-
in við má nefna Erp Eyvindarson
og félaga hans Bent. Myndin er
framleidd af Ragnhildi Magnús-
dóttur ásamt SPARK ehf. og er
klippt af Gunnari B. Guðbjörns-
syni.
MIÐASALA
HEFSTABLUNT
Miðasala á stórtónleika James
Blunt í nýjum og stórglæsilegum sal
Laugardalshallarinnar 12. júní hefst
næsta fimmtudag, 10. aprfl, klukkan
10.00 á Miði.is og öllum afgreiðslu-
stöðum Miða.is. Eingöngu er selt í
númeruð sæti og er um fjögur verð-
svæði að ræða. Það er A+-svæði á
14.900, A-svæði á 12.900, B-svæði
á 9.900 og C-svæði á 5.900. Tekið
er ffam að á A+-svæðinu verða ein-
ungis 300 sæti í boði, en þau eru öll
fyrir miðjum sal, beint fyrir framan
sviðið. f heildina eru 3.500 sæti í
boði á tónleikana.
SJONVARPSÞATTURINN ÞRAÐUR SLÆR BOTNIÞATTAROÐINA IAPRIL
TONLE KAHAT ÐA
Þátturinn Þráður hefur verið í gangi á Skíf-
antv undanfarnar vikur. Þar fer grínarinn og
guðfræðineminn Davíð Þór Jónsson í heim-
sóknir til ýmissa hljómsveita og brýtur þær
til mergjar. Þáttunum lýkur með heljarinn-
ar hvelli í þessum mánuði, en þá mun verða
haldin meiriháttar tónleikaveisla á NASA.
Veislan er bæði fimmtudag, föstudag og
laugardag dagana 17., 18. og 19. apríl. Þær
hljómsveitir sem spila eru Steed Lord, Sign
og Brain Police, en þær spila allar á fimmtu-
deginum. Á föstudeginum mætir Magni
Ásgeirsson ásamt félögum sínum í Á móti
sól og beint á eftir þeim koma Ultra Mega
Technobandið Stefán og President Bongo úr
Gus Gus. Á laugardeginum spilar svo Haf-
dís Huld ásamt XXX Rottweilerhundum og
Sprengjuhöllinni. Allar þessar hljómsveitir
hafa verið teknar fyrir í þættinum, sem er á
dagskrá á fimmtudagskvöldum. Miði á alla
tónleikana kostar 5.500 krónur, en einnig er
hægt að kaupa sig inn á einstaka kvöld. „Þetta
er til þess að slá botninn í þáttaröðina. Verið
að slútta góðu tímabili með góðum tónleik-
um. Þetta
verður
svo með
stærra
sniði á
næsta ári,"
segir Heið-
ar Austmann,
dagskrárstjóri
Skífantv. og út-
varpsmaður.
Davíð Þór Jónsson
Kynnir þáttanna og
kynnir kvöldsins.