Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2008, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNl 2008
Fréttir DV
INNLENDAR t
(igtjornQdv.isjffi
Rafmagnsbruni
á Þingeyri
Rafmagnstengdur hitastillir
er talinn vera orsök brunans á
Brekkugötu á Þingeyri í síðustu
viku. Eldur varð þar laus í mann-
lausu húsi en nágrannar urðu
varir við að reyk lagði frá húsinu.
Eldur logaði á miðhæð hússins
og hlutust af talsverðar skemmd-
ir. Rannsóknardeild Iögreglunn-
ar á Vestfjörðum hefur nú lokið
rannsókn á eldsupptökum og
naut þar aðstoðar rafmagnssér-
fræðings.
Bæjarins besta greinir frá
þessu. f DV í dag er fjallað ítar-
lega um raftnagnsbruna.
Rugl í borginni
Engin umskipti urðu í þróun
skulda borgarsjóðs eða fyiirtækja
borgarinnar á árinu 2007, Iflct og
meirihluti borgarstjómar hélt
fram við framlagningu ársreikn-
ings Reykjavíkurborgar. „Þetta
mgl má rekja til þess að meiri-
hlutinn í borgarstjórn blandaði
saman þróun lífeyrisskuldbind-
inga og skulda borgarsjóðs," segir
Dagur B. Eggertsson borgarfúll-
trúi í tilkynningu sem hann sendi
út til að leiðrétta rangfærslur
meirihlutans í borginni.
Þekkingarsetrinu
lokað
Landsbanki fslands hefur sagt
upp leigusamningi við Þekking-
arsetur Þingeyinga.
Þekkingarsetrið hefur sex
mánaða uppsagnarfrest og þarf
því að rýma húsnæði sitt fyrir 30.
nóvember næstkomandi. Ljóst er
að mikil óvissa ríkir um húsnæði
fyrir stofnunina. Þekkingarsetrið
tekur nú þátt í undirbúningi að
byggingu Þekkingargarðs í sam-
vinnu við Norðurþing, en það
húsnæði mun ekki verða tilbúið
fyrrenáárinu2010. Þvímun
þurfa að grípa til bráðabirgðaað-
gerða í húsnæðismálunum.
Vesturbæjarlaug
lokuð
Einhverjir munu væntan-
lega fara fyluferð í Vesturbæinn í
þessari viku. Vesturbæjarlaug er
nefnilega lokuð fram á föstudag-
inn. Ákveðið var að loka lauginni
frá 2. til 6. júní vegna viðhalds.
Hún mun verða opnuð aftur á
laugardaginn. Hætt er við því að
fastagestir laugarinnar verði því
að baða sig annars staðar næstu
daga en veðurfar og hitastig síð-
ustu vikna hefur verið með þeim
hætti að sundlaugar borgarinnar
hafa verið afar fjölsóttar.
Svör margra ráðuneyta við fyrirspurn Kolbrúnar Halldórsdóttur um ráðstöfunarfé
ráðherra eru mjög ófullkomin. í fyrirspurn Kolbrúnar er óskað eftir upplýsingum um
ábyrgðar menn þeirra félagasamtaka sem ráðherrar nir hafa styrkt á síðustu fimm árum.
Fæst ráðuneyti svöruðu fyrirspurninni nægilega vel. Sönghópar og kórar af ýmsu tagi
njóta styrkja ráðuneytanna.
HALFSV0R RAÐHERRA
Kristjan Möller I svörum
samgönguráðherra kemur
fram að karlakórar og
VALGEIR ÖRN RAGNARSSON
blaðamadur skrifar: valgeiritodv.is
Svör ráðherra við skriflegri fyrir-
spum Kolbrúnar Halldórsdótt-
ur, þingkonu vinstri grænna, um
stuðning þeirra við frjáls félaga-
samtök síðustu fimm ár em að
mörgu leyti mjög ónákvæm. Eins og
greint var frá í DV á mánudag hafa
öll ráðuneytin, nema landbúnaðar-
og sjávarútvegsráðuneytið, svarað
fyrirspum Kolbrúnar, þó með mjög
misjöfnum hætti. í fyrirspurninni,
sem lögð var fram 12. mars síðast-
liðinn, var óskað eftir upplýsingum
um hvemig stuðningi hvers ráðu-
neytis fyrir sig hafi verið háttað árin
2002 til 2007. f fyrirspurninni er ósk-
að eftir því að í svarinu komi ffam til
hvers konar verkefna styrkirnir hafa
verið veittir, hversu háir þeir em
og að lokum hverjir ábyrgðarmenn
verkefnanna hafa verið. Ráðherrar
hafa ákveðið ráðstöfunarfé sem þeir
hafa umdæmi til að ráðstafa að eig-
in geðþótta.
Mikill munur á svörum ráðu-
neyta
Athygli vekur að í
svömm forsætis-
ráðuneytisins,
samgöngu-
ráðuneyt-
isins,
umhverf-
isráðu-
neytisins
og dóms-
mála-
ráðuneyt-
ísins em
styrkir til
félaga-
samtak-
anna
listaðir eins
og beðið er
um. Hins veg-
ar kemur hvergi
framísvörum
ráðu-
neytanna hverjir ábyrgðarmenn
félagasamtakanna em, eins og
Kolbrún hafði óskað eftir. í flest-
um tilfellum er einungis gefið upp
hvaða samtök fengu styrkinn, en
engin skýring hvers vegna. f svömm
iðnaðarráðuneytisins og utanríkis-
ráðuneytisins em hins vegar ábyrgð-
armenn samtakanna tiigreindir eins
og óskað var eftir.
Samtals hefur forsætis-
ráðuneytið veitt styrki
fyrir um það bil 50
milljónir króna
síðustu fimm
ár af ráðstöf-
unarfé ráð-
herra. Hæsti
styrkurinn
sem forsæt-
isráðuneytið
hefur veitt á
þessum tíma
er sjö millj-
ónir króna
skýring fylgir með í svömm ráð-
herra.
Ónákvæm svör
Margt fleira er að sjá í svörum
ráðherranna. Til dæmis hefur sam-
gönguráðuneytið styrkt Karlakór
Rangæinga og Karlakórinn Heimi
um samtafs átta hundruð þúsund
krónur á U'mabilinu, jafn-
vel þó ekki sé útséð um
hvernig þeir teng-
hefur Skákfélag Grand rokks notið
hundrað þúsund króna stuðnings
samgönguráðuneytisins. Einnig
hefur forsætisráðuneytið verið dug-
legt að styrkja ýmiss konar söng-
hópa og kóra.
Kolbrún Halldórsdóttir segir að
skoða þurfi gaumgæfilega þær upp-
lýsingar sem koma fram í svörunum
og það muni hún gera á næstu dög-
um. „Þetta em að mörgu leyti mjög
ónákvæm svör," segir hún.
Kolbrún segist einnig
bíða eftir því að sjá
hvort og þá hversu
mikið Einar K.
Guðfinnsson,
landbúnað-
ar- og sjávarút-
vegsráðherra,
hefur styrkt Fé-
lag hrefnuveiði-
manna, úr því
hann hefur
heimilað hval-
veiðar á nýjan
leik.
sam-
gongu-
mim
Þá
árið 2006 til
Landssam-
bands sum-
arhúsaeig-
enda, en
engin
sér-
stök
M
Út-
Nýstúdína var flutt með sjúkrabíl af hátíðarkvöldverði Menntaskólans í Reykjavík:
Fékk brennheita
Nanna Guðrún Hjaltalín, nýstúd-
ína við Menntaskólann í Reykjavík,
var flutt á brott með sjúkrabíl eftir að
hafa brennst illa þegar þjónn missti
brennheita súpu yfir bak hennar við
útskriftarkvöldverð síðastliðinn laug-
ardag. Höfðu nýstúdentar og júbil-
antar safnast saman í Súlnasal Hótel
Sögu til að fagna áfanganum.
„Það var þjónn sem hellti yfir mig
súpu frá hálsi og niður á rass," segir
Nanna, sem hlaut fyrsta stigs bmna-
sár á stóm svæði. Nanna var að eigin
sögn ótrúlega skelkuð þótt hún hafi
reynt að láta lítið bera á sér, enda
ræðuhöld í gangi þegar sfysið varð.
Það hafi síðan verið hringt á
sjúkrabíl sem flutti hana á sjúkrahús
til aðhlynningar. Nanna sneri aftur
til kvöldverðarins síðar um kvöld-
ið með sáraumbúðir á bakinu. Hún
segist ennþá finna tif og þjást af stöð-
ugum verk. Aðspurð segist Nanna
ekki útifoka að leita réttar síns vegna
slyssins.
Kristján Dam'elsson, hótelstjóri
Sögu, segir starfsfólk hafa bmgðist
strax við og öryggisvörður hafi kælt
bak stúlkunnar með bakstri þar til
sjúkrabíll kom á staðinn. Óhappið
hafi hins vegar komið upp á leiðin-
legum ti'ma fyrir stúfkuna. „Þetta er
náttúrlega hundleiðinlegt að lenda í
þessu þegar fólk er að eiga gott kvöld
og skemmta sér," segir Kristján. Að-
spurður segir hann ömggt að eitt-
hvað verði gert til að bæta stúlkunni
atviklð. hafsteinng@dv.is
Menntaskólinn í Reykjavík
Stúlkan brenndist illa við
útskriftarkvöldverð MR.
súpuyfirsig