Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2008, Side 7
DV Fréttir
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚN[ 2008 7
Allt að sjö hundruð rafmagnsbrunar verða á íslandi árlega. Algengast er að rafmagnsbrunar verði eftir að fólk
gleymir að slökkva á eldavélarhellum. Flatskjáir og plasmatæki hafa hins vegar dregið verulega úr brunum út
frá sjónvarpi.
ELDHÆTTA AF ELDAVELUM
ERLA HLYNSDÓTTIR
bladomadur skrifar: erla&dv.is
„Þessir brunar eru fyrst og fremst
vegna rangrar notkunar. Það er eig-
inlega aldrei tæknileg bilun í eldavél
sem veldur bruna. Fólk einfaldiega
gleymir að slökkva á þeim," segir Jó-
hann Ólafsson, sviðsstjóri öryggis-
sviðs Neytendastofu. Langaigeng-
ast er að uppruna rafrnagnsbruna á
heimilum megi rekja til eldavéla. Á
síðasta ári voru slíkir brunar um þijá-
tíu prósent allra bruna. Á árabilinu
1997 til 2007 voru þeir fjörutíu pró-
sent.
Athygli vekur að brunar út frá
sjónvarpstækjum eru mun færri en á
árum áður, eða aðeins fimm prósent.
Jóhann telur að það megi rekja til auk-
innar notkunar flatskjáa og plasma-
tækja. Samkvæmt upplýsingum Neyt-
endastofu er minni eldhætta af þeim
en sjónvörpunum sem áður voru á
flestum heimilum. Myndlampinn í
þeim tækjum virðist vera óöruggari
en í nýrri tækjum.
Fleiri brunar vegna rangrar
notkunar
Orsaka rafmagnsbruna má helst
leita í því að tældn eru gömui eða bil-
uð. Þó er næstum helmingur brun-
anna vegna rangrar notkunar. Jó-
hann segir það hafa aukist að kvikni
í vegna þess að fólk fer ógætilega með
rafmagnstæki. Hlutfallið hefur verið í
kringum 36 prósent síðasta áratuginn
en nú er það orðið 46 prósent.
„Það er ótrúlega mildð um þetta,"
segir Jóhann og vísar til rangrar notk-
unar rafmagnstækja. Neytendastofa
hefur reglulega staðið fýrir átaki um
eldvamir, nú síðast fyrir tveimur
árum í samstarfi við tryggingafélagið
Sjóvá. Þá var fræðslubæklingi dreift á
öll hemili og forvarnar-
myndband sýnt
ísjónvarpi.„Það
er full þörf á að
gera þetta aft-
ur. Við þurfum
að vekja meiri
athygli á þessu,"
segir hann. Auk
þessa er alltaf
eldvamarátak
fyrir jólin.
Jóhann bendir
á að fyrir nokkr-
um árum hafi
fólk kannski ver-
ið með tíu raftæki
á heimilinu en nú
séu þau oft orðin nær fimmtíu.
Því sé enn mikilvægara en áður
að huga að örygginu.
„Nokkuð er um að fólk
komi heim afböllum,
fari að elda en sofni
síðanútfráelda-
mennskunni"
UPPRUNI RAFMAGNSBRUNA
Heimild: Ársskýrsla Neytendastofu 2007
Öruggari Flatskjáir og plasmatæki
eru talin öruggari en gömlu góðu
sjónvarpstækin sem eru nú brátt að
hverfa af heimilum landsmanna.
öflug fræðsla nauðsynleg
Neytendastofa fékk 64 tilkynning-
ar vegna rafinagnsbruna á síðasta ári.
Að sögn Jóhanns berast þeim þó ekki
nærri allar tillcynningar vegna slíkra
bruna, eða aðeins rúm tíu prósent.
Því megi gera ráð fýrir að rafmagns-
brunar á íslandi séu árlega alit að sjö
hundmð. Neytendastofa hefúr í sam-
starfi við tryggingafélögin komist að
þessari niðurstöðu.
Allir alvarlegustu brunarnir em
tilkynntir til Neytendastofú og sömu-
leiðis brunar hjá rafveitum. Sama má
segja um öll mál sem lenda inni á
borði lögreglu. Ef kviknar í hárliðun-
artækjum eða örbylgjuofnum og lít-
ið tjón hlýst af fer málið þó aðeins til
Eldhætta Tæpur helmingur
rafmagnsbruna er vegna rangrar
notkunar rafmagnstækja. Algengast er
að gleymt sé að slökkva á eldavélum.
tryggingafélaganna.
Jóhanni finnst að samræma þurfi
betur tilkynningakerfið þannig að
Neytendastofa hafi betri yfirsýn um
brunahættu og geti haldið úti öflugri
fræðslu í samræmi við helstu bruna-
valda.
Sofna yfir eldamennskunni
Minna var um bmna út frá upp-
þvottavélum, þvottavélum og þurrk-
urum í fyrra en síðustu ár. Helst
kviknar í þurrkurum ef gleymst hefur
að hreinsa ló úr sigtinu. Einnig skap-
ast brunahætta í stjómborði gamalia
þvottavéla. „Þessir brunar em þó fá-
tíðir miðað við hversu mörg tækin
em," segir Jóhann.
Hann leggur áherslu á að fólk
gleymi sér ekki við eldamennskuna.
Hann tekur sem dæmi að nokkuð
sé um að fólk komi heim af böllum,
fari að elda en sofrii síðan út frá elda-
mennskunni. Á bammörgum heim-
ilum er einnig auðvelt að gleyma sér
við umönnun þeirra þegar allt er að
sjóða upp úr. Jafnvel geta löng sím-
töl leitt hugann frá eldavélinni. „Við
þurfum að vera vel vakandi," segir Jó-
hann.