Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2008, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 2008
Fréttir DV
365 miðlar ehf. hafa óskað eftir inngöngu í Samband evrópskra sjónvarpsstöðva, EBU, til þess að eiga mögu-
leika á að keppa um sýningarrétt á HM í knattspyrnu árið 2010. í kæru til Samkeppniseftirlitsins kemur
fram að 365 telur að EBU meini félaginu með ólögmætum hætti að keppa um sýningarrétt og veiki þar með
samkeppnisstöðu þess.
SLAGUR UM HM
IKNATTSPYRNU
JÓHANN HAUKSSON
blaðamaöur skrifar: johannh@dv.ls
FIFA, alþjóðasamband knatt-
spyrnusambanda, á sýningarrétt-
inn á öllum viðburðum á vegum
þess, þar á meðal HM í knattspymu
sem haldið verður næst árið 2010.
Þessum rétti úthlutar FIFA til sjón-
varpsstöðva um heim allan, ýmist
fyrir milligöngu umboðsaðila eða í
gegnum eigin sölukerfi.
Arið 2005 ákvað FIFA að mark-
aðssetja sjálft sýningarréttinn í HM
í knattspymu meðal fimm stærstu
knattspyrnuþjóðanna í Evrópu. Að
öðru leyti fól FIFA Sambandi evr-
ópskra sjónvarpsstöðva markaðs-
setningu sýningarréttarins í öðmm
löndum Evrópu.
Eftir bréfaskriftir við EBU kom
á daginn að sýningarrétti á HM í
knattspyrnu yrði einungis úthlutað
meðal sjónvarpsstöðva sem aðild
eiga að EBU. 365 óskaði þá eftir aðild
að EBU en fékk þau svör að einung-
is þær þjóðir sem vom í EBU þegar
ákvarðanir vom teknar um meðferð
sýningarréttarins ættu möguleika á
að fá HM til sýningar.
Þar með varð ljóst að aðeins Rík-
isútvarpið ohf. ætti með sjálf-
virkum hætti möguleika
á að öðlast sýningar-
réttinn á íslandi því
RÚV er eina sjón
varpsstöðin hér
á landi sem að-
ild á að EBU.
Að öðrum kosti
gæti 365 sótt
um sýningar-
rétt að öllu leyti
eða að hluta til
Ríkisútvarpsins
ef því þóknaðist
ekki að sýna alla
leiki. Staðfest var
í bréfaskriftum 365
við EBU að ef 365
vildi leita eftir sýn-
ingarrétti yrði félagið
að semja um hann við
keppinaut sinn, Ríkisút-
varpið ohf.
Þetta telja 365 miðl-
ar gróft brot á sam-
keppnislög-
um og
Þar með varð Ijóst að
aðeins Ríkisútvarpið
ohf. ætti með sjálfvirk-
um hætti möguleika á
að öðlast sýningarrétt-
inn á ísland.
kærðu málið til Samkeppniseftir-
litsins í fyrra. Málið er til meðferðar
hjá stofnuninni og er búist við nið-
urstöðu fyrir haustið.
RÚV þarf ekki að keppa
365 stendur því frammi fyrir því
að þurfa að snúa sér til helsta keppi-
nautar síns hér á landi til að óska
eftir ffamsali réttarins í heild eða að
hluta. Þetta þykir forsvarsmönnum
365 ankannaleg staða. „Með þessu
móti hefúr umbjóðanda okkar (365)
ekki einungis verið meinaður að-
gangur að útsendingarrétti á helsta
íþróttaviðburði heims heldur hefur
möguleiki hans á að keppa við RÚV
og eftir atvikum aðrar sjónvarps-
stöðvar um að eignast þennan rétt
hér á landi einnig verið útilokað-
ur," eins og segir í erindi 365 til Sam-
keppniseftirlitsins.
í erindinu er bent á að útsending-
ar ffá HM í knattspyrnu
tilheyri sérstök-
um vörumark-
aði. Vegna
gífurlegra
vinsælda
sem við-
burður-
inn nýt-
urmeðal
sjónvaips-
áhorf-
enda
telja365
miðlar
að eng-
ar aðrar
vörur geti
komið í stað-
inn. Meðal
annarskeppi
auglýs-
endur um pláss í útsendingunum.
Að öllu samanlögðu sé samkeppn-
isstaða 365 verulega skert með því
að útiloka félagið firá því að geta á
efnislegum forsendum keppt um
sýningarréttinn.
Víðtæk brot á samkeppnis-
reglum
f samkeppnislögum er lagt bann
við því að koma í veg fyrir sam-
keppni, takmarka hana eða raska
með samningum milli fýrirtækja
sem fela í sér samstilltar aðgerðir
gegn samkeppni. Samráð um sam-
keppnishamlandi aðgerðir milli fyr-
irtækja, sem starfa á sama sviði, en
einnig á milii fyrirtækja sem starfa
á mismunandi sölustigi. Þetta nefn-
ast láréttar og lóðréttar samkeppn-
ishömlur. 365 miðlar telja að EBU
beiti ólögmætum samkeppnishöml-
um í láréttum og lóðréttum skiln-
ingi. Vísað er til þriggja ákvarðana
ffamkvæmdastjómar ESB
sem komist hefur að
því að
viðskipti með sýningarrétt með áð-
urgeindum hætti brjóti í bága við
Rómarsáttmálann.
365 túlkar niðurstöðu fram-
kvæmdastjómarinnar svo að
ákveðnum grundvallarskilyrðum
þurfi ávallt að fuilnægja, meðal
annars að gildistími samninga sé
ekki óhóflegur, að útsendingarrétt-
ur sé boðinn út opinberlega og að
greitt sé fyrir því að sem flestir geti
boðið í sýningarréttinn.
365 miðlar telja að það fyrir-
komulag sem stuðst sé við af hálfú
FIFA og EBU uppfylli ekki ofan-
greind skilyrði. EBU hafi verið út-
hlutað réttinum til útsendinga á
HM 2010 í heilu lagi og falin mark-
aðsseming. Sýningarrétturinn sé
síðan látinn renna til aðildar-
sjónvarpsstöðva EBU, án rök-
stuðnings og tækifæris til að
keppa um réttinn. Þetta
telur 365 vera í hróp-
andi andstöðu við
áðurgreind ^
skilyrði sem framkvæmdastjóm
byggir úrskurði sína á. „Með því að
EBU kemur fram fyrir hönd aðildar-
stöðva sinna við kaup á útsending-
arrétti að slíkum viðburðum sem
hér um ræðir er samkeppni bæði
um verð og aðra þætti á milli með-
lima EBU eftir því sem næst verður
komist algerlega útilokuð," segir í
erindi 365 miðla til Samkeppniseft-
irlitsins.
Eins og áður segir hafa 365 miðl-
ar sótt um aðild að EBU tíl þess að
bæta samkeppnisstöðu sína og sæta
ekki afarkostum í sam-
^ keppni um sýning-
arrétt.
WM
RÚV RÚV olif. hlýtur sjálfkrafa sýningarrétt að
HM í knattspyrnu árið 2010 með aðild sinni að
EBU. 365 verður að sækja til RÚV, keppinautar
síns, vilji félagið fá bita af kökunni.