Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2008, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 2008
NORÐURLAND DV
Nýja Grímseyjarferjan Sæfari hefur reynst vel á fyrstu tveimur mánuðunum í siglingum, að mati Sigur-
jóns Herbertssonar skipstjóra. Eftir er þó að sjá hvernig skipið reynist í slæmum vetrarveðrum, en Sigur-
jón segir margt benda til þess að nýja skipið sé betra í sjó en það gamla. Eyjarskeggjar virðast sáttir að
mestu en benda á ýmsa galla. Meðal annars að kraftmeiri vélar skili sér ekki í hraða og sparnaði.
Sæfari í Grfmsey Grímseyjarferjan
umdeilda ieggur að í Grimsey.
Skipstjórinn Sigurjón Herbertsson,
skipstjóri á Sæfara, er ánægður með
nýja skipið. Hann segir að enn þurfi að
dytta að hinu og þessu, en allir séu af
vilja gerðir til þess að skipið verði gott.
Eftir rétt um tvo mánuði í sigling-
um, er skipstjórinn á nýju Grímseyj-
arferjunni Sæfara nokkuð ánægð-
ur. „Við höfum að vísu ekki fengið
á okkur neinar stórkostlegar bræl-
ur ennþá. Við fengum samt dálítinn
vestan kalda á okkur um daginn og
ferjan virtist ráða betur við það en sú
gamla," segir Sigurjón Herbertsson
skipstjóri.
Hann segir að hér muni líkast til
mestu að nýi Sæfari er einum metra
breiðari en gamla ferjan, auk þess
sem í honum séu tvær vélar, alls
2.800 hestöfl. „Gamii Sæfari var að-
eins átta hundruð hestafla." Tvö þús-
und aukahestöfl skila sér í tveggja
hnúta hraðari siglingu, sem sparar
farþegum hálftíma í hverri siglingu.
Seinkun og kostnaður
Þegar ákveðið var að kaupa nýju
ferjuna, sem þá hét Oilean Arann,
frá írlandi var reiknað með að heild-
arkostnaður með öllum breytingum
yrði nálægt 250 milljónum króna.
Þetta var árið 2005. Framkvæmd á
breytingum á ferjunni seinkaði stór-
lega og kostnaðurinn nam meira en
hálfum milljarði króna þegar upp var
staðið. Hart var deilt um það hver
bæri ábyrgð á seinagangi og auka-
kosmaði.
Verkið var unnið í Vélsmiðju
Orms og Víglundar í Hafnarfirði. Það
var ráðgjafafyrirtækið Navis-Feng-
ur sem sá um eftirlit með verkinu,
ásamt Einari Hermannssyni skipa-
verkfræðingi. Síðla vetrar var ferj-
unni siglt til Akureyrar þar sem verk-
ið var klárað.
Deilt um ábyrgð
Jón Rögnvaldsson, fyrrverandi
vegamálastjóri, sagði Vegagerðina
bera ábyrgðina. Kristján Möller sam-
gönguráðherra gekk lengra í sjón-
varpsviðtali í fyrravor og kenndi Ein-
ari Hermannssyni skipaverkfræðingi
um ófarirnar. Eftir nokkurt þóf baðst
samgönguráðherra afsökunar á
þessum orðum.
Brynjólfur Amason, sem þá var
Hafiiarfirði til Akureyrar var að-
eins önnur vélin nomð. Við þetta
hægðist ferð skipsins aðeins um ríf-
lega tvo hnúta, á meðan eldsneytis-
brennsla minnkar stórlega. Grunur
leikur á því að þessu vaidi hönnun-
argalli á skipinu.
Ferjan er lífæðin
„Ég get ekkert blandað mér í
þessa pólitísku sögu skipsins, enda
er það ekki vinnan mín," segir Sigur-
jón skipstjóri og brosir. „Það sem er
mikilvægast í þessu öllu er að ferjan
er komin í siglingar, enda er hún líf-
æð fyrir byggðina í Grímsey."
Fyrir utan að sinna fólksflutning-
um til Grímseyjar sér Sæfari um alla
þungaflutninga, bæði til Hríseyj-
ar og Grímseyjar. „Það er vissulega
rétt að það þarf að sérstyrkja dekkið
á skipinu ef menn vilja flytja þungar
vinnuvélar og slíkt. Og svo eru smá-
legir hlutir eftir eins og breytmgar á
krana og þess háttar," segir Sigurjón.
Hann bendir á að það sé eilífðar-
verkefni að viðhalda ferju sem þess-
ari þannig að hún sé í sem bestu
standi. „Mér finnst allir vera boðnir
og búnir til þess að þetta skip verði
eins gott og kostur er."
Bættar hafnir
Þrátt fyrir reglulegar flugsam-
göngur norður í Grímsey má ekki
vanmeta mikilvægi ferjunnar, að
mati Sigurjóns. „Það eiga það til
að koma fleiri dagar í beit þar sem
annaðhvort liggur í vestanátt, þvert
á flugbrautina, ellegar að þokan
hamiar öliu flugi. Við þessar að-
stæður er ferjan eini kosturinn,"
segir hann.
Sigurjón segir að reyndar geti stíf
vestanátt verið erfið fýrir ferjuna.
„Það getur verið erfitt að leggjast að
í Grímsey þegar bylgjan kemur nán-
ast óbrotin á okkur yfir hafnargarð-
inn," segir Sigurjón. „Þetta stendur
reyndar til bóta. Það á að fara í hafn-
arframkvæmdir, bæði á Dalvík og
eins úti í Grímsey."
sigtryggur@dv.is
„Það á að fara í hafnarframkvæmdir, bæði á Dalvík og eins úti í Grímsey"
oddviti sveitarstjórnar í Grímsey, Enn leynast gallar ingar fengist um það hversu þungt
taldi að það væri Vélsmiðja Orms Grímseyingar virðast nokk- megi hlaða á aftara dekkið. í brúnni
og Víglundar í Hafnarfirði sem ekki uð sáttir við nýju ferjuna. DV hef- er þess utan stálspjald fyrir einum
stæði sig í stykkinu. Einhugur var ur engu að síður heimildir fyrir því glugga sem ekki var klárað að ganga
meðal Grímseyinga um að farsælla að ýmsir endar séu lausir í ferjúnni. frá.
hefði verið að smíða nýtt skip. Til að mynda hafi engar upplýs- Þegar skipinu var fyrst siglt frá
DV 26. janúar 2007 DV flutti fyrstu fréttir
af vandræðagangi við nýja Grímseyjarferju
í janúar í fyrra. Þá sögðust Grímseyingar
ávallt hafa verið andsnúnir nýrri ferju.