Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2008, Page 24
24 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNl 2008
NORÐURLAND DV
Stuttnefjan Flestar tegundir
af svartfugli eru algengar hér
við land. Haftyrðill er þó
hættur að verpa hér. Hann sést
gjarnan norðanlands að vetri.
Eggjataka samkvæmt gömlum hefðum í Grímsey:
Mikið af fugli Mörgum
þykir miðnætursólin við
heimskautsbaug vera
stórfengleg. Þar gefur þó
fleira að li'ta. iá-
>- K Falleg gleraugu Sumar
langvíur hafa þetta
sérstaka skraut á höfðinu
■
* &
- -
I veiðimannasamfélagi íslendinga
hefur eggjataka þjónað mikilvægu
hlutverki í gegnum aldirnar. f dag er
þessari hefð haldið við vítt og breitt
um landið, jafnvel þótt líf manna
liggi ekki við. Feðgarnir Gylfi Þor-
geir Gunnarsson og Konráð Gylfa-
son buðu blaðamanni að taka þátt í
eggjatöku í bjargi í Grímsey.
Gylfi segir að varla hafi sést þetta
mikill svartfugl í björgunum um
árabil. „Þetta segir okkur bara að
aðstæðurnar hérna eru góðar. Því er
öfugt farið sums staðar. Til dæmis er
lítið sem ekkert orðið eftir af svart-
fugli í Færeyjum," segir Gylfi. Löng
hefð er fyrir eggjatöku í Grímsey.
Börnin í eyjunni bíða með eftir-
væntingu eftir svartfuglseggjum og
þykir flestum þau vera lostæti. Eftir
að eggin eru tínd eru þau þvegin og
skyggnd áður en þau eru soðin og
borin á borð.
Lagt var af stað þegar líða tók á
kvöldið, síðast í maí. Siglt var suður
með eynni og inni fyrir landamerki
Gylfa og fjölskyldu hans. Þar var
kastað ankeri og róið upp að bjarg-
inu í lítilli jullu. „Það er langt síðan
ég hef séð annað eins magn af eggj-
um," segir Gylfl.
Svartfuglstegundirnar verpa að-
eins einu eggi í einu. Ef egg er tek-
ið eða fellur fram af syllunni verp-
ir fuglinn aftur. Eggin eru því tekin
eftir kúnstarinnar reglum, til þess
að tryggja að sem flest egg séu ný
og fersk og ekki sé gengið of nærri
stofninum. „Svona hefur þetta alltaf
verið gert," segir Gylfi.
Stærstur hluti eggjanna í þetta
skiptið var langvíuegg, en eitthvað
slæddist með af álkueggjum. Þó
nokkuð af lunda var einnig í bjarg-
inu og eitthvað af fýl. Lundinn sat
gjarnan sem fastast í holum sínum,
en annar svartfugl flaug úr bjarginu
þegar nærri honum var komið.
Langvían er rennilegur fugl og
stærri en aðrir svartfuglar. Hún
verður um 43 sentímetra löng og
vegur allt að 1.300 grömmum. Eggin
eru skærgræn með flekkjum og því
hefur verið haldið fram að mismun-
andi flekkir á eggjunum hjálpi fugl-
inum að þekkja eigið egg. Útungun-
artími er um það bil einn mánuður.
Eftir ríflega tvær vikur í bjarginu
hvetja foreldrarnir ungann til þess
að steypa sér i sjóinn. Síðsumars er
unginn loks fleygur og óháður for-
eldrunum. sigtryggur@dv.is
bað
irieð íslenskum græðijurtum
J jV
runa, útbrot,
íð, sólexem og sólbruna.
í sólarlandaferðina!
árðarkaup.Yggdrasill,
ur lifandi ' n
., Apotekarinn, Blómaval SBJpj
ívalbarðsströnd Sendir um allt land
gigja@urtasmidjan.is www.urtasmidjan.is
m
Feðgar tina egg
Eggjatakan og aðrar nytjar í
náttúrunni eru sambland af
vinnu og afþreyingu fyrir þá
sem hafa alist upp við slíkt.
Við ankeri Björgin
eru bæði klifin og í
þau sigið. I þetta
skiptið lögðu
feðgarnirankeri og
reru í bjargið.
Á eggjum Hérsést
hvernig fuglinn
geymireggin á
fótum sér. Ungi
rl/ríAi ir i'ir anni ftftir
Eggjataka Fuglinn
yfirgefur sylluna að
lokum og skilur eggiö
eftir. Svartfuglar verpa
aftureftir að eggið
hefur verið tekið.
í holunni Þessi lundi sat sem fastast á eggi
sínu og glefsaði i fingur blaðamanns sem
reyndi að frekjast með krumlu ofan í holuna