Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2008, Page 28
28 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNl 2008
NORÐURLAND »V
ALVERABAKKA
Á meðan Björk og Sigur Rós syngja gegn álverksmiðjum á íslandi taka Húsvíkingar
álveri opnum örmum. Alcoa gerir ráð fyrir að álver á Bakka hefji framleiðslu með
fullum afköstum árið 2015. Fulltrúar Landsvirkjunar eiga von á því að allrar raforku
verði aflað á staðnum. Aðalsteinn Baldursson varar við blikum á lofti í landbúnaði «asa^mmm
og segir álverksmiðju á Bakka lífsnauðsynlega til þess að tryggja atvinnuöryggi.
Stefnt er að því að álver Alcoa á
Bakka við Húsavík nái fullri fram-
leiðslugetu árið 2015. Kannanir
benda til þess að rétt um 75 prósent
Húsvíkinga styðji framkvæmdina
einarðlega. Aðalsteinn Baldursson,
formaður verkalýðsfélagsins Fram-
sýnar á Húsavík, segir atvinnuör-
yggi hafa farið ört versnandi og fólki
sé nánast stillt upp við vegg þegar
kemur að því að leita lausna í at-
vinnumálum.
Stefrit er að því að álverið geti
framleitt 250 þúsund tonn af áli á ári.
Orkuþörfin verður fjögur hundruð
megavött. Ámi Gunnarsson, verk-
efnisstjóri hjá Landsvirkjun, segir
allt benda til þess að hægt verði að
afla allrar orkunnar á háhitasvæð-
unum í grennd við Húsavík.
Lokaákvörðun um byggingu ál-
versins hefur þó ekki enn verið tek-
in. Umhverfismat er í þann mund
að hefjast auk þess sem athuga þarf
aðra hluti á borð við hættu á hafi's
ogjarðskjálftum.
Atvinnulíf í vörn
„Það má segja að atvinnulífið
hér hafi verið í mikilli vöm á síðustu
ámm," segir Aðalsteinn Baldursson.
„Sjávarútvegurinn hefur gefið eft-
ir, störf hafa flust úr sveitarfélaginu
og nú em blikur á lofti í landbún-
aði með fhimvarpi um aukinn inn-
flutning á landbúnaðarvörum."
Tll marks um þetta bendir Aðal-
steinn á að í maí hafi þrjátíu manns
flutt ffá Húsavík í tengslum við
tímabundna lokun hjá fiskvinnsl-
BORAÐ í BJARNARFLAGI Landsvirkj-
un og Þeistareykir gera ráð fyrir að allrar
orku fyrir álver á Bakka verði aflað með
jarðgufuvirkjunum í nágrenninu.
„Sjávarútvegurinn
hefur gefíð eftir, störf
hafa fíust úr sveitarfé-
laginu og nú eru blik-
ur á lofti í landbúnaði
með frumvarpi um
aukinn innflutning á
landbúnaðarvörum
unni Vísi. Vinnsla hefjist þó aft-
ur í haust og þá sé von á fólkinu til
baka. „Við bindum miklar vonir við
að álverið muni skapa þann stöðug-
leika í atvinnumálum sem hér hefur
skort og ég hlýt að fagna því að laun
í áliðnaði em með þeim bestu sem
verkafólk á möguleika á,“ heldur
hannáfram.
Verkalýðsfélagið Framsýn á
Húsavík ásamt fulltrúum ffá Alcoa
kynntu áhrif álvers á Bakka á at-
vinnulíf á Norðurlandi fyrir Alþýðu-
sambandi íslands. Tíu manns vom
á fundinum.
Orkan á staðnum
Rannsóknir benda nú þegar
til þess að unnt verði að afla allrar
orku til álframleiðslu á Húsavík á
háhitasvæðum í nágrenninu. Þeist-
areykir ehf. ætla að reisa 150 mega-
vatta jarðgufuvirkjun á Þeistareykj-.
um. Þar hafa þegar verið boraðar
fimm rannsóknarholur og sú sjötta
verður bomð í sumar. Niðurstöð-
ur benda til þess að háhitasvæðið
á Þeistareykjum sé mun stærra en
hingað til hefur verið talið.
Landsvirkjun hyggst reisa 90
megavatta jarðvarmavirkjun í
Bjamarflagi við Mývatn. Fyrsta
rannsóknarholan var bomð í vetur
og tvær holur til viðbótar verða bor-
aðar í sumar. Þar er mati á umhverf-
isáhrifum lokið. Kröfluvirkjun verð-
ur stækkuð um 40 megavött.
Ami Gunnarsson, verkefnisstjóri
hjá Landsvirkjun, segir að orku-
vinnsla í Gjástykki, austan Þeista-
reykja, muni bíða um sinn. Ekki
verði gripið til þess að virkja þar
nema hinir kostimir dugi ekki til.
„Kosturinn við þetta er að sér-
lega mikil sátt virðist vera inn-
an sveitarfélagana á svæðinu um
að greiða götu þessa verkefriis. f
því ljósi er óhætt að gera ráð fýrir
að þetta verði íbúunum til mildlla
hagsbóta," segirÁmi.
Þúsund störf
Aðalsteinn Baldursson segir
að eins og staðan sé í dag muni ál-
ver rísa á Bakka. „Það þarf eitthvað
að koma upp á til þess að stöðva
þetta ferli, sem vissulega getur alltaf
gerst," segirhann.
í áædunum Alcoa er gert ráð fyr-
ir þijú hundmð störfum í sjálfu ál-
verinu og að ffamkvæmdin muni
skapa allt að fimm hundmð störf í
Þingeyjarsýslu. Tvö hundmð störf
verða að lfldndum til á F.yjafjarðar-
svæðinu og allt að eitt þúsund af-
leidd störf á landinu öllu.
„í tengslum við álverið verð-
ur stærsta höfri landsins reist hér á
Húsavík," segir Aðalsteinn. „Við telj-
um að þessi höfri geti orðið að mið-
stöð flutninga milli Norðurlands og
Evrópu. Þessu til viðbótar kemst
flugvöllurinn í Aðaldal aftur í notk-
un fyrir áætlunarflug." Fyrirhug-
að er að nýja höfnin verði byggð á
svæðinu á milli Húsavíkur og Bakka.
„Hér verða öll möguleg hhðaráhrif
og störf sem tengjast álveri."
Upplýsingaskrifstofa Alcoa
Undirbúningur að byggingu ál-
vers á Bakka hefur staðið í um tvö
ár. Þingeyingar höfðu um nokkurt
skeið horft til þess að hægt væri að
reisa álver á svæðinu og viljayfirlýs-
ingu frá Alcoa var tekið með nokkr-
um fögnuði af Qölda fólks á veitinga-
staðnum Gamla Bauk á Húsavík.
í tæp tvö ár hefur Alcoa haldið
úti upplýsingaskrifstofu á Ilúsavík.
Henni stjómar Kristján Halldórs-
son, verkefriisstjóri samfélagsmála
hjá Alcoa á Norðurlandi. „Við ákváð-
um að opna upplýsingaskrifstofu
og ráða starfsmann sem fólk gæti
leitað til, til að fá upplýsingar um
það sem er að gerast í verkefninu.
Það er betra að hafa mann á staðn-
um þannig að fólk þurfi ekld að afla
sér upplýsinga í gegnum síma eða
tölvupóst eingöngu. Hann hefur
meðal annars skipulagt íbúafundi
bæði á Húsavflc og Akureyri þar sem
staða mála varðandi Norðurlands-
verkefriið hefur verið kynnt," segir