Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2008, Qupperneq 40
40 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNf 2008
NORÐURLAND DV
Tveir mánuöir eru síðan Sparisjóöir Skagafjarðar og SigluQarðar sameinuðust. Sparisjóðurinn Afl rekur þá
báða. Við sameininguna sögðu nokkrir stofnfjáreigendur að blessun Fjármálaeftirlitsins hefði verið illa
ígrunduð. Kristján Björn Snorrason sparisjóðsstjóri segir sameininguna vera forsendu fyrir áframhald-
andi rekstri og segir sjóðinn vera sterkari en áður.
Sauðárkrókur Sparisjóðir Skaga-
: fyrir tveimur mánuðum eftir langan undirbúning og deilur.
Sparisjóður Skagafjarðar Minnl
stofnfjáreigendur (Sparisjóði
Skagafjarðar voru andvígir sameining-
unni frá upphafi. Valgeir Bjarnason
sagði tilfinningasemi ráða ferð.
„Við höfum reyndar lítið verið í
hlutabréfum og þess vegna eru upp-
hæðirnar ekki jafn sjokkarandi."
Sparisjóður Skagafjarðar hef-
ur nú verið sameinaður Sparisjóði
Siglufjarðar. Þessir sparisjóðir eru í
raun eign Afls, sem er nýstofnaður
sparisjóður. Kristján Björn Snorra-
son, sparisjóðsstjóri í Skagaflrði
bendir á að sameiningarferlinu sé
enn ekki lokið.
„Sparisjóður Ólafsfjarðar kemur
svo væntanlega inn í þennan rekst-
ur seinna á árinu. Það er búið að
bíða í eitt og hálft ár eftir samþykki
Fjármálaeftirlitsins fyrir þeim sam-
runa. Þegar þetta verður um garð
gengið munu allir þessir þrír spari-
sjóðir heyra undir sparisjóðinn Afl,“
segir Kristján. Hann segir samein-
ingu sparisjóða norðanlands hafa
verið nauðsynlega til þess að hægt
væri að halda áfram rekstrinum.
„Við töpuðum fimmtán milljónum
á síðasta ári, en höfum nú snúið
þessu við og skilum fjörutíu millj-
óna hagnaði á fyrstu þremur mán-
uðum þessa árs," segir hann. Aðeins
eru um tveir mánuðir síðan formleg
sameining gekk í gegn.
Óvært um sameiningu
Talsverður styr hefur staðið um
sameininguna. í fyrravor var aðal-
fundi, þar sem ræða átti tillögu um
sameiningu, frestað. Stofnfjáreig-
endur í sveitinni töldu fundarboð-
ið ólöglegt og sögðu að upplýsing-
um um reksturinn og fyrirhugaða
sameiningu hefði verið kerfisbundið
haldið leyndum.
Valgeir Bjarnason, stjórnarmað-
ur í sjóðnum, sagði þá í samtali við
DV að hluti af vandanum væri til-
finningasemi og gamalgróinn rígur
á milli Skagflrðinga og Siglfirðinga.
Þessu vísuðu gagnrýnir stofnfjáreig-
Sparisjóðsstjórinn Kristján Björn
Snorrason segir að sameiningin hafi
verið forsenda fyrir áframhaldandi
rekstri.
er óvandaður og órökstuddur," sagði
í yfirlýsingu stofnfjáreigendanna.
Hluthafarnir kváðust hafa í tvígang
beðið Fjármálaeftirlitið um gögn um
samrunann, en Fjármálaeftirlitið
hefði hafnað þeim óskum. Sigurður
Guðmundsson, Sverrir Magnússon,
Gísli Árnason, Gunnar Rögnvalds-
son, Sigurður Þorsteinsson og Bjarni
Jónsson skrifuðu undir yfirlýsing-
una.
Gísli sagðist sjálfur telja að í sam-
runaferlinu hefðu verið myndaðir
svokallaðir virkir eignarhlutir í spari-
sjóðnum og því hefði verið brotið
gegn lögum um fjármálafyrirtæki.
Byggjum upp
Kristján Björn segir að hvað sem
öðru líði sé sameiningin fyrst og
fremst hugsuð til þess að styrkja
sjóðinn og gera honum kleift að tak-
ast á við verkefni framtíðarinnar.
„Hér eru háskólar og öflug atvinnu-
fýrirtæki og við þurfum að geta stað-
ið okkur í samkeppni og þjónustu við
þessa byggð. Ég tel að við hefðum í
rauninni ekki getað lifað áfram einir
og sér," segir Kristján.
Hann segir fimmtán milljóna tap
síðasta árs og betri afkomu á þessu
ári bera kostum sameiningarinnar
vitni. „Við höfum reyndar lítið verið í
hlutabréfum og þess vegna eru upp-
hæðirnar ekki jafn sjokkarandi og
þær eru hjá sumum öðrum fjármála-
fýrirtækjum þessi misserin."
sigtryggur@dv.is
Bólstrun Björns H. Sveinssonar
Hafnarstræti 88, Akureyri
S. 462 5322
bolstri@simnet.is
Bólsfrun Biörns H. Sveinssonar
Klædning, vriðgerðir eg nýsmíði
Áklxðri í úmlí
Leður eg leðurlrikri