Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2008, Qupperneq 44
44 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNf 2008
NORDURLAND DV
- Glaumbær í Skagafirði er hluti af Byggðasafni Skagfirðinga sem starfað hefur í 56 ár. Níu af hverjum tíu
gestum sem heimsækja svæðið eru útlendingar.
ÚTLENDINGA
„Gamli torfbærinn er aðalaðdrátt-
araflið í Glaumbæ. Hann er mjög stór
og nokkuð stærri en margir af þeim
torfbæjum sem við eigumsegir Sig-
ríður Sigurðardóttir, safnstjóri Gla-
' umbæs í Skagafirði, sem er hluti af
Byggðasafni Skagfirðinga. Safnið
hefur verið starfrækt frá árinu 1952
og samanstendur af þrettán húsum,
þau elstu byggð um og upp úr miðri
átjándu öld.
Aðsóknin aldrei meiri
Aðsóknin í Glaumbæ hefur aldrei
"« verið meiri en nú. „Glaumbær datt
mjög snemma inn sem ferðamanna-
aðdráttarafl. Kannski hefur staðsem-
ingin eitthvað með það að gera en
hann er staðsettur einungis sjö kíló-
metra ffá þjóðveginum og einhvem
veginn mitt á milli staða. Og þetta
hefur haldist svona," segir Sigríður
en síðasta sumar komu þijátíu þús-
rmd gestir á safnið. Af þeim vom níu
af hverjum tíu útlendingar.
„Þetta hlutfall eykst frekar en hitt.
Fyrir tíu áram átti ég von á að ís-
lendingunum myndi frekar fjölga,
en þetta hefur verið alveg öfúgt," seg-
ir Sigríður. „Ég kann ekki skýringu á
því. Ég held þó að á meðan útlend-
um ferðamönnmn hér á landi hefur
Aðdráttarafl Gamli torfbærinn er
aðalaðdráttaraflið I Glaumbæ.
Fjolgun Síðasta sumar komu þrjátíu
þúsund gestir að Glaumbæ, fleiri en
nokkru sinni áður.
DÆMALAUS AÐDÁUN
fjölgað mjög séu íslendingar minna
forvitnir um fortíð sína heldur en
það nýja sem er að gerast."
Starfsmenn Byggðasafrisins á
ársgrundvelli era fimm talsins. Yfir
sumarið bætast svo við níu til ellefu
manns.
Skemmtilegasta starf sem til er
Sigríður hefur starfað sem safn-
stjóri á Glaumbæ í rúm tuttugu ár.
Hún segir þetta langskemmtilegasta
starf sem til er. „Það sem er skemmti-
legast í þessu fyrir svona nörda eins
og mig er að ná að fjármagna þau
verkefni sem manni finnst nauðsyn-
legt að vinna. Og ef þér finnst nauð-
synlegt að vinna eitthvað þá unir þú
glaður við þitt," segir safiistjórinn.
Ferðaþjónustuhliðin á starfinu finnst
Sigríði líka mjög spennandi.
„En hún getur líka verið mjög
þreytandi. Það er þó alltaf gaman að
hitta fólk alls staðar að úr heiminum,
heyra þeirra bakgrunn og bera sam-
an við okkar hefðir og svo framvegis.
Svo ekki sé talað um hina dæmalausu
aðdáun útlendinganna á landinu
sem maður skynjar. Reyndar þjóð-
inni líka, en aðallega landinu. Það er
svolítið sérstakt að upplifa það, sum-
ar eftir sumar.
krístjanh@dv.is