Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2008, Qupperneq 60
60 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 2008
Fókus DV
Netkosning
Grímunnar
KUNGFU
HELGISPJÖLL
GAUKSHREIÐRIÐ í ÞJÓÐLEDCHÚSINU
Halaleikhópurinn sýnir GAUKSHREIÐRIÐ á Stóra sviöi Þjóðleikhússins í kvöld klukkan 20. Leikhúsið
valdi sýninguna nýverið athyglisverðustu áhugaleiksýningu leikársins. Leikritið er byggt á
samnefndri skáldsögu Kens Kesey en leikstjóri er Guðjón Sigvaldason.
Islensku leiklistarverðlaunin, Grím-
an, verða afhent í Þjóðleikhúsinu
13. júní næstkomandi. Almenn-
ingi gefst færi á að velja þá sýningu
sem honum fannst skara fram úr á
leikárinu sem brátt tekur enda með
því að taka þátt í netkosningu á gri-
man.is. Tilnefningar til verðlaun-
anna voru kynntar á dögunum en
allar sýningar leikársins, um áttatíu
talsins, koma aftur á móti til álita
í netkosningunni. Aldrei fýrr hafa
jafnmargar sýningar verið settar
upp í íslenskum leikhúsum og á
þessu leikári.
Hljómeyki
í Háteigs-
kirkju
Sönghópurinn Hljómeyki heldur
tónleika í Háteigskirkju í kvöld
klukkan 20. Á efnisskránni eru
kórverk sem flutt voru í Frakk-
landi um liðna helgi en þar tók
kórinn þátt í hinni virtu kóra-
keppni Florilége Vocal de Tours.
Tuttugu og einn kór hvaðanæva
úr heiminum tók þátt og varð
Hljómeyki hlutskarpastur í flokki
kammerkóra ásamt kammer-
kómum Khreschatyk frá Úkraínu.
í umsögnum dómnefndar sagði
meðal annars að Hljómeyki hefði
fallegan hljóm og einkar hrífandi
og hjartnæma túlkun. Magnús
Ragnarsson var einnig álitinn
einn af bestu kórstjómm keppn-
innar.
Söngkonan
í Salnum
Gamanóperan Söngkonan, eða La
Canterina, eftir Joseph Haydn verð-
ur flutt af nemendum söngdeildar
Tónlistarskóla Kópavogs í Salnum í
Kópavogi klukkan 18 í kvöld. Flytj-
endur em Ragnar Ólafsson, Ragn-
heiður Sara Grímsdóttir, Elva Lind
Þorsteinsdóttir og Elín Arna Aspe-
lund. Anna Júlíana Sveinsdóttir er
leikstjóri og um píanóleik sér Kryst-
yna Cortes. Aðgangur er ókeypis
og em allir velkomnir. Tónleikarnir
verða endurteknir annað kvöld.
Jason er bandarískur ungling-
'ur sem býr í Boston dagsins í dag.
Hann er heltekinn af kung fu og
öllu sem því viðkemur. Hann á í
félagslegum erfiðleikum í skólan-
um og verður fyrir aðkasti stærri
stráka. Hann sækir mikið í Kína-
mann nokkurn sem selur honum
kung fu-myndir af ýmsu tagi. Sá
hinn sami geymir í verslun sinni
magnaðan gylltan galdrastaf. Þess-
um staf þarf að skila til réttmæts
eiganda síns, Apakóngsins, til að
leysa hann úr álögum og frelsa
Kína undan hvimleiðum stríðs-
herra.
Að sjálfsögðu fellur það hlut-
verk Jason í skaut og hefst þar með
mikið ævintýri í Kína fyrri alda. Þar
á hann í höggi við alls kyns óþverra
en fær dygga aðstoð frá munaðar-
lausri stelpu, drykkfelldum kung
fu-meistara og munk sem kann að
slá frá sér. Leikstjóri myndarinnar
á að baki Lion King og Stúart Litla
svo það kemur kannski elcki á óvart
að þessi mynd er í barnalegri kant-
inum.
Maður áttar sig strax á Karate
Kid-tengingunni, eineltisbarn sem
elskar asískar bardagalistir en er
mest í því að finna fýrir slíku á eig-
in likama. Hann sældr í gamlan as-
ískan félaga sem hefur grundvali-
aráhrif á líf hans og hvernig hann
á að kljást við skólalóðarfanta sem
og önnur vandamál sem upp á
koma. Hann kvartar síðan yfir að
kung fu-þjálfunin skuli meðal ann-
ars snúast um að slá gras rétt eins
og Karate Kid var ekki sáttur við að
bóna bíla í þjálfun sinni.
Karaktersköpunin er líka létt-
væg, Apakóngurinn er mjög asna-
legur grínkarakter og maður hlýtur
að spyrja: „Hvaða not ættu ódauð-
legir kung fu-meistarar Asíu að hafa
af veiklulegum bandarískum ungl-
ingi með Rambóhár í tagli?" Jackie
Chan og Jet Li eru náttúrlega tæpir
leikarar, að minnsta kosti á ensku,
og það á við um aðra kínverska
leikara myndarinnar. Kínverjarn-
ir hljóma fáránlega ósannfærandi
talandi enslcu enda greinilega ekJd
með tilfinningu fyrir málinu.
Af þessum sölcum og öðrum er
Forbidden Kingdom „Hvaða not ættu
ódauðlegir kung fu-meistarar Asíu að hafa
af veiklulegum bandarískum unglingi
með Rambóhár í tagli?"
FORBIDDEN KINGDOM
LEIKSTJÓRN:
Rob Minkoff
AÐALHLUTVERK:
JetLi, Jackie Chan,
Michael Angarano,
Collin Chou
BÍÓDÓMUR
myndin hundleiðinleg á köflum og
stóð maður sig að því að dotta yfir
henni. Maður vaknaði þó fljótlega
við kung fu-senurnar sem voru
stórar og mjög flott útfærðar. Þar
skorti ekki hugmyndaflugið sem
var talcmarkalaust eins og venja
er í myndum af þessu tagi. Nom
slæst með hárinu, menn fljúga
um, göldrum er beitt markvisst og
allt mögulegt kemur til greina sem
vopn í tilkomumiklum slagsmála-
senunum.
Myndin nær sínum hæstu hæð-
um í þessum senum og eru mynda-
taka og brellur óaðfinnanlegar í
þessum atriðum. En það er ekki
nóg til að halda uppi heilli mynd,
eitthvað meira þarf til og það er
ekki til staðar. Myndin vísar óbeint
í Crouching Tiger, Hidden Dragon,
Hero, House of the Flying Daggers
og fleiri myndir af svipuðum toga.
Það hiýtur að trufla mann enda
hálfgerð helgispjöll hér á ferð.
Menn sem sækja í þau snilldar-
kvikmyndastórvirki ættu að halda
sig í öruggri fjarlægð frá þessari.
Erpur Eyvindarson
í SKYNDI
STORKOSTLEGT SUSHI
Það eru ekki nema noklcrir mán-
uðir sfðan ég fékkst til að smalcka
sushi í fýrsta sldpti og eftir það hef
ég verið mikill aðdáandi þessarar
japönsku matargerðarlistar. Smátt
og smátt hef ég verið að prófa mig
áfram á sushi-stöðum Reykjavík-
urborgar og nýlega rataði ég inn á
Sushibarinn, Laugavegi 2. Eftir að
ég rataði þangað inn í fýrsta skipti
hef ég farið aftur og aftur og alltaf
verið jafn yfir mig ánægð.
Staðurinn er lítiil og indæll
og því flestir sem grípa með sér
bakka heim þó einnig sé hægt að
tylla sér við eitt borð inni á staðn-
um. Starfsfólldð tekur ávallt á móti
manni með bros á vör í japönskum
klæðnaði til að mynda réttu stemn-
inguna. Úrvalið á matseðlinum er
mildð og gott og er hægt að fá flest-
ar hugsanlegar sushi-tegundir á
viðráðanlegu verði. Þar sem ég er
nýgræðingur í sushi-bransanum er
ég enn ekld orðin neitt svakalega
djörf og hef því enn ekld treyst mér
í að smakka álinn en vinkona mín,
sem er sushi-sérfræðingur, segir
að þarna sé besti állinn á landinu
og ég trúi henni. Til að flækja ekk-
ert málin er hægt að láta fagmenn-
ina um að velja saman fyrir mann
á bakka sem kallast „það besta fyr-
ir einn eða tvo". Þá velja kokkamir
það ferskasta og besta sem í boði
er hvern daginn og kostar baldd
af því besta fyrir einn 1.650 krón-
ur með tólf sushi-bitum. Sex stykki
af hefðbundnum, gómsætum kali-
forníurúllum kosta 800 lcrónur og
tvö stykki af nigiri-bitum kosta 400
krónur. Verðið er því bara nokk-
uð sanngjarnt og er ég alveg til í
að borga rúmlega sextán hundr-
uð krónur fýrir svo góða máltíð.
Nú hef ég líka gerst svo stórborg-
arleg og sniðug að taka matseðil-
inn með mér heim og hengja upp
á ísskáp svo ég get hringt á undan
mér og pantað það sem mig langar
í og komið svo og sótt sushi-ið eftir
fimmtán mínútur. Það er betra því
ef maður er á hraðferð getur maður
oft lent í langri bið á háannatíma.
KRI5TA nALL fot pSushibarínn á I
HRAÐI: VEITINGAR: ★ ■* VIÐMÓT: ★★★■ ★
UMHVERFI: ★ ★★
^VERÐ: J