Alþýðublaðið - 06.12.1919, Blaðsíða 2
2
alÞýðublaðið
Bjargað andan briksetningn.
Nýlega kom þaö fyrir í Berlín,
aö nærri var búið að grafa skin-
dauða konu, en hún bjargaðist þó
frá því af hreinni tilviljun. Konan
hafði fundist meðvitundarlaus sem
dauð væri í garði einum í útjaðri
borgarinnar. Læknir var þegar sótt-
ur, hann reyndi að lífga hana en
tókst ekki, og lýsti því yflr að hún
hefði dáið af morfíneitrun. Síðan
var líkið kistulagt og flutt í lík-
húsið í kirkjugarðinum. Þegar graf-
ararnir komu í líkhúsið næsta dag,
heyrðu þeir högg aftur og aftur
og aumlegt hljóð, sem líktist
mannsrödd. Gröfurunum fór ekki
að verða um sel. Þeir sóttu félaga
sína og komust þeir að því að
þetta hljóð kom úr einni kist-
unni. Var kistan síðan opnuð og
var konan þá með lífl, en féll
brátt aftur í dvala. Konan var flutt
á spítala og tókst þar að lífga
hana, en ekki hefir frézt hvernig
slysið hafl viljað til.
Má segja að þar hafi skollið
hurð nærri hælum.
Ný heimastjórnarlög.
Times segir að ný heimastjórn-
arlög muni vei ða lögð fyrir brezka
þingið fyrir jólin.
Fyrv. forseti daaðar.
Muller, sem þrisvar heflr verið
forseti í Sviss, er dauður, 71 árs.
Linað á friðarsamningnnnm.
Bandamenn hafa linað á frið-
arsamningunum við. Þjóðverja á
einu sviði. Þeir áttu samkv. samn-
ingunum að fá 140 þús. mjólk-
andi kýr (eða með kálfl) hjá Þjóð-
verjum, en hafa nú gengist undir
að fá aðeins 90 þús. kýr, enda
mega Þjóðverjar helzt engar kýr
missa.
Frá Denikin.
Denikin beið ósigur fyrir Bolsi-
víkum um miðjan mánuðinn sem
leið; brutust Bolsiv. gegnum her-
línu hans á nál. 100 km. svæði.
Denikin er eigi aðeins í stríði við
Bolsivíka, heldur einnig við Ukrai-
nebúa, sem sjálflr eiga í stríði við
Bolsivíka undir stjórn jafnaðar-
mannsins Petljura.
Max Klinger látinn.
í miðjum síðastliðnum mánuði
lézt frægasti listamaður Þýzka-
lands, Max Klinger, 62 ára gam-
all. Banamein hans var hjartaslag.
Max Klinger var mjög fjölhæfur
listamaður. Eftir hann eru til mál-
verk, teikningar, raderingar og
myndhöggvaraverk — auk þess
hefir hann ritað bækur um list og
listsögu.
160 þúsund atvinnnlaasir
menn eru nú í Berlínarhorg og fá
styrk af ríkinu.
Skatcar % af tekjannm.
Nýlega sagði Noske í ræðu sem
hann hélt í Ohemnitz, að fyrir
þýzka þingið muni bráðlega verða
lögð lög sem legðu 75% skatt á
tekjur allra stærri fyrirtækja. Eig-
endurnir yrðu í raun og veru ekki
annað en heldur vel launaðir starfs-
menn í sínum eigin fyrirtækjum.
fohuM í Rússbutði.
Viðtal við amerískan
biaðamann.
Ameríska blaðið, Chigago Daily
News, sendi fyrir fáum mánuð-
um síðan blaðamanninn, Mr. Don
Levine, til Rússlands, til að fá
sannar fregnir af ástandinu þar.
Hann talar rússnesku reiprenn-
andi og var því vel til ferðarinn-
ar fallinn. Hann komst til Rúss-
lands gegnum Lithá og var flutt-
ur með band fyrir augunum yfir
Dvínu, en þar tóku hermenn
Bolsewikka hann og fluttu til
Dvinsk. Þar var honum varpað í
fangelsi ásamt ýmsum trantara-
lýð. Þaðan var farið með hann
til Moskva, og var honum slept
þar. Þar var honum slept sökum
þess, að hann var hlutlaus blaða-
maður, og fékk meira að segja
leiðbeiningar og fylgd um borgina
hjá utanríkisráðaneytinu.
Hann dvaldi 6 vikur í Moskva
og ferðaðist víða um landið, með-
al annars til suðurvígstöðvanna,
og sá þar eina af hinum frægu
hersýningum Trotskys. Stórskota-
lið, brynvarðir vagnar og vélbyss-
ur óku fram fyrir Trotsky. 3 llug-
vélar svifu í loftinu fyrir ofan og
geysistórt Bolsevíkaloftskip sveif
yfir hernum.
Kveður hann rauðu hersveitirn-
ar heilsa honum með mikilli hrifn-
ingu, sem væri hann Napóieon.
Hann segir, að menn finni ekki
eins mikið til dýrtíðarinnar í Rúss-
landi, eins og ætla mætti, sökum
þess hve verkakaupið sé hátt.
Fjárhagslegir og hernaðarlegir
örðugleikar sóu fyrir hendi, en
engin ástæða sé til að ætla, að
Bolsevíkastjórnin muni falla.
Rauðu hermennirnir hafa rekið
her Kaltschaks 800 enskar mílur
aftur á bak og tekið 300,000 fanga.
Þeir hafa eyðilagt hvíta suður-
herinn og opnað leið til Thekestan.
Sigrar þessir hafa fylt þá sigur-
gleði og sigurvissu. Denikin væri
einnig áreiðanlega úr sögunni, ef
járnbrautir Bolsevika hefðu getað
flutt liðið nægilega fijótt yflr
Yolgu. Mín skoðun er, að ástand-
ið í Rússlandi sé alvarlegt, en
engan veginn hættulegt. Stjórnin
situr fastar í sessi en nokkru sinni
áður.
Frakkland heimtar íé það, er
það lánaði keisarastjórninni. Lenin
vill koma á jafnaðarparadís á jörð-
inni. Petta eru orsakirnar til þess,
að Rússlandi blæðir.
Enginn hlutlaus ferðamaður
kemst hjá því, að sjá, að rúss-
neska þjóðin kvíðir fyrir einum
stríðsvetri í viðbót.
Fregnir þær, sem breiddar hafa
verið út um hryðjuverk og mann-
dráp í Rússlandi, og einnig fregnin
um að Trotsky hafl látið fangelsa
Lenin, eru ósannindi frá rótum.
Maður finnur til þess, er maður
dvelur í Rússlandi, að stjórnin er
fullkomlega fær um að halda uppi
góðri reglu, og gerir það einnig.
Hið núverandi stjórnarfar í Rúss-
landi er svo langt frá því að vera
stjórnleysi, sem nokkuð getur
verið.
(Eftir danska stjórnarblaðinu
PoJitiken, 11. nóv. 1919).
X
Sléttubönd.
Slarkar sullið „Morgi'1 minn,
— markar gullið rauða, —
barka fullum orgar inn,
arkar bullið dauða.
Hrajn»