Fréttablaðið - 08.04.2016, Blaðsíða 6
Handtökur í Kaupmannahöfn
Lögreglumaður stendur vaktina í Kaupmannahöfn eftir að fjórir grunaðir meðlimir Íslamska ríkisins voru
handteknir og hald var lagt á vopnabúr í íbúðarhúsi. Nordicphotos/AFp
skattagögn Listi með nöfnum
Íslendinga birtist, að því er virð-
ist, fyrir mistök í örskotsstund í
fréttaskýringaþættinum Uppdrag
Granskning í sænska ríkissjónvarp-
inu á miðvikudag. Þátturinn fjallaði
um í Panama-skjölin svokölluðu.
Um er að ræða minnispunkta sem
Jóhannes Kr. Kristjánsson, ritstjóri
Reykjavik Media, hafði útbúið. DV
greindi fyrst frá listanum. Ekki er
víst að öll nöfnin sem voru á list-
anum séu í Panama-skjölunum,
að sögn Aðalsteins Kjartanssonar,
blaðamanns Reykjavik Media.
Meðal annars birtust nöfn Finns
Ingólfssonar, fyrrverandi ráð-
herra, Róberts Wessman, forstjóra
Alvogen, Eggerts Skúlasonar, rit-
stjóra DV, viðskiptamannsins Boga
Pálssonar, Lofts Jóhannessonar,
sem starfaði sem vopnasali, Sindra
Sindrasonar, fyrrverandi stjórnar-
formanns Eimskips, og Sigþórs Sig-
marssonar, stjórnarmanns í Nova-
tor.
Finnur átti félagið Adair með
Helga S. Guðmundssyni, fyrrverandi
formanni bankaráðs Landsbankans.
Finnur segir fjárfestingar félagsins
hafa verið sáralitlar en engu að síður
haft í för með sér talsvert tap fyrir
þá Helga. Það tap hafi verið gert
upp við Landsbankann árið 2010 og
félaginu í kjölfarið lokað. „Félagið
var vistað í Landsbankanum í
Lúxemborg og öll okkar samskipti
út af félaginu voru við hann,“ sagði
Finnur við Vísi í gær.
Í svari Halldórs Kristmannssonar,
talsmanns Alvogen, segir að félag
Róberts Wessman, Aceway, hafi
verið skráð í Panama og haldið utan
um eignarhlut Róberts í Actavis.
Uppsetning félagsins hafi verið
samkvæmt ráðgjöf Landsbankans.
„Actavis var á þessum tíma skráð
í Kauphöll Íslands og eign Róberts
í gegnum áðurnefnt félag því ávallt
opinber í tilkynningum til Kaup-
hallar. Til skoðunar var á þessum
tíma að skrá Actavis í erlenda kaup-
höll og var því talið heppilegast að
Aceway væri sett upp með þessum
hætti,“ segir í svari Halldórs. Róbert
hafi ávallt tilkynnt eign sína í
félaginu til íslenskra skattayfirvalda.
Þá hafi tekjur félagsins verið skatt-
lagðar sem launatekjur hans en ekki
sem fjármagnstekjur hér á landi.
Eggert, ritstjóri DV, sagði í samtali
við blaðamann DV, að hann hefði
opinberað þetta í yfirlýsingu í fyrra.
„Það vekur hins vegar athygli
mína að í þessu skjali er ég tengdur
við félag sem ég átti ekki. Það vekur
upp spurningar. Ég greiddi skatta
og skyldur af tekjum og málið hefur
verið fullrannsakað af þar til bærum
yfirvöldum,“ sagði Eggert í DV.
Í yfirlýsingu í Eggerts í fyrra var
ekki tilgreint hvort félagið væri
skráð í skattaskjóli heldur talað um
félög erlendis. ingvar@frettabladid.is
Nöfn Íslendinga birtust
fyrir mistök í sjónvarpi
Minnispunktar ritstjóra Reykjavik Media með nöfnum forstjóra Alvogen, rit-
stjóra DV og fyrrverandi seðlabankastjóra voru birt í sænskum sjónvarpsþætti
um Panama-skjölin og skattaskjól. Viðkomandi vísa gjarnan á Landsbankann.
Ég greiddi skatta og
skyldur af tekjum
og málið hefur verið full-
rannsakað af þar til bærum
yfirvöldum.
Eggert Skúlason,
ritstjóri DV, í viðtali
við DV
8 . a p r í l 2 0 1 6 F ö s t U D a g U r6 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð
0
8
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:4
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
F
D
-4
C
4
4
1
8
F
D
-4
B
0
8
1
8
F
D
-4
9
C
C
1
8
F
D
-4
8
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
7
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K