Fréttablaðið - 08.04.2016, Síða 14
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis
á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871
fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is
menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Halldór
Óli Kristján
Ármannsson
olikr@frettabladid.is
Fyrirmyndardagurinn –
atvinna fyrir alla
Vinnumálastofnun stendur í dag 8. apríl fyrir skipulagningu Fyrirmyndardagsins í þriðja skiptið. Fyrirmyndardagurinn er átak þar sem
leitað er til fyrirtækja og stofnana og þau beðin um
að opna vinnustaði sína í einn dag fyrir heimsóknum
atvinnuleitenda með skerta starfsgetu. Með því móti
geta einstaklingarnir kynnst vinnustöðum og verk-
lagi þar sem leitt getur til atvinnu síðar. Þetta hefur
orðið raunin í allmörgum tilvikum í kjölfar fyrir-
myndardaganna sem hafa verið haldnir og reynsla
stofnunarinnar af þessu átaki því verið afar góð.
Vinnumálastofnun tók nú um síðustu áramót
alfarið við yfirstjórn atvinnumála fatlaðs fólks og
endurskipulagning og mótun samskiptaleiða við
fyrirtækin í landinu, stofnanir ríkis og sveitarfélaga
stendur nú yfir. Það er von okkar að með þessu verði
þjónustan í málaflokknum skilvirkari og að fleiri
komist út á vinnumarkaðinn.
Ótvírætt er lykillinn að því að ná árangri í því að
auka atvinnuþátttöku þeirra, sem búa við skerta
starfsgetu, að eiga góðan aðgang að vinnustöðunum
í landinu. Fyrirmyndardagurinn hefur reynst góð
aðferð til að styrkja þetta samstarf og fyrirtækjum
sem taka þátt fer fjölgandi og framsýni þeirra og
samstarfsvilja ber að þakka.
Vinnumálastofnun á í víðtæku samstarfi við
systurstofnanir sínar á evrópskum vettvangi. Vikuna
sem nú er að líða þ.e. 4.-8. apríl eru opinberar vinnu-
miðlunarstofnanir í Evrópu að skipuleggja Atvinnu-
rekendadaga þar sem stofnanirnar skipuleggja
átaksverkefni sem miða að því styrkja samstarf sitt
og þjónustu við fyrirtækin í sínum löndum. Vinnu-
málastofnun leggur Fyrirmyndardaginn undir þetta
verkefni enda tilgangurinn sá sami.
Vinnumálastofnun telur að lykillinn að því að lifa
innihaldsríku lífi sé að vera virkur á vinnumarkaði.
Bætt atvinnuástand og aukin eftirspurn eftir
vinnuafli eru kjöraðstæður til að auka þátttöku allra
sem starfsgetu hafa til virkni. Þátttakendur í Fyrir-
myndardeginum í dag eru að stuðla að því.
Ótvírætt er
lykillinn
að því að
ná árangri í
því að auka
atvinnuþátt-
töku þeirra
sem búa við
skerta starfs-
getu að eiga
góðan aðgang
að vinnu-
stöðunum í
landinu.
Gissur Pétursson
forstjóri Vinnu-
málastofnunar
Lilja
„Þú verður að spyrja strákana
sem stjórna Framsókn,“ sagði
Vigdís Hauksdóttir við frétta-
menn í gær – innt eftir því
hvort Sigmundur Davíð yrði
skuggaráðherra í nýrri ríkis-
stjórn. Þetta er réttmætt skot
frá Vigdísi en konur hafa ekki
verið áberandi á taflborði
stjórnarflokkanna síðustu
daga. Með nýjasta ráðherra
ríkisstjórnarinnar, Lilju
Alfreðsdóttur, fjölgar konum í
ríkisstjórn um eina. Nú spá því
margir að Lilja sé næsta stelpa
til að stjórna Framsóknar-
flokknum. Hún væri þá önnur
konan í sögu Framsóknar til
að leiða flokkinn en Valgerður
Sverrisdóttir var einmitt utan-
ríkisráðherra áður en hún varð
formaður Framsóknar.
Betra seinn en aldrei
Fólk beið með öndina í háls-
inum eftir því að Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson mætti á
Bessastaði í gær til að skrifa
undir afsögn sína en hann lét
bíða eftir sér. Það hefði verið í
anda atburðarásar síðustu daga
ef Sigmundur hefði alls ekki
mætt. Jafnvel hætt við að hætta
við áður en það yrði of seint.
En líklega hefur hann metið
það svo að betra væri að vera
of seinn en að vera of snemma,
eins og Höskuldur Þórhallsson
þingmaður í sjónvarpinu á
miðvikudagskvöld.
snaeros@frettabladid.is
Barnavörur
Bleyjur
Þrátt fyrir breytingar sem gerðar hafa verið á ráðherraskipan í ríkisstjórnarsamstarfi Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks er uppi hávær krafa um enn frekari breytingar og kosningar jafnskjótt og hægt er að koma þeim við. Sú krafa er um
margt skiljanleg.
Í því er engin mótsögn falin að aðhyllast viðskipta-
frelsi á milli landa og vera um leið á móti starfsemi
þeirri sem rekin er í svokölluðum aflandsfélögum. Eitt
er nefnilega að hafa umsvif í útlöndum og annað að
búa svo um hnúta að sem mest leynd hvíli yfir þeim.
Í umfjöllun Kastljóss á sunnudagskvöld, sem hluti
er af umfjöllun yfir hundrað fjölmiðla víða um heim
á svonefndum Panama-skjölum, kom mörgum á
óvart hversu langt er gengið til að leyna upplýsingum
í skattaskjólum heimsins. Lögfræðingar taka að sér
að vera skráðir fyrir félögum, en raunverulegt eignar-
hald er vandlega dulið í baksamningum sem aldrei
líta dagsins ljós.
Fátt hefur orðið um svör þegar spurt er um tilgang
þessarar leyndar yfir eignarhaldi félaganna og verður
ekki annað ráðið af en hún sé til að fela hluti sem
ekki þola dagsins ljós og komast hjá lögbundnum
skattgreiðslum. Uppspretta lekans, lögfræðistofan
Mossack Fonseca í Panama, hefur verið sökuð um að
koma að peningaþvætti, ólöglegri vopnasölu, stór-
felldum skattsvikum og skipulagðri glæpastarfsemi.
Því er áfallið mikið þegar upplýsist að nöfn Íslend-
inga og íslenskra stjórnmálamanna tengist stofunni.
Vandséð er að því dugi að bera fyrir sig van-
þekkingu um hvernig bankamenn hafi sýslað með
fjármuni þá sem um ræðir, enda kostar það eitt háar
fjárhæðir að láta fela peninga með þessum hætti.
Þessi skuggi hvílir enn yfir íslensku þjóðlífi og
stjórnmálum. Meira þarf til að koma en að Sig-
mundur Davíð Gunnlaugsson færi sig úr ráðherrasæti
út í þingsal og handvelji nýjan utanþingsráðherra til
að taka sæti í ríkisstjórn Sigurðar Inga Jóhannssonar,
eftirmanns hans í forsætisráðherrastól.
Forsvarsmönnum nýrrar ríkisstjórnar er tíðrætt
um að hún njóti ríflegs meirihluta á þingi, en sá
meirihluti er fenginn í kosningum áður en nokkurn
gat grunað hvers konar uppljóstranir væru í vændum.
Fullt tilefni er til að efast um getu nýrrar ríkis-
stjórnar til að taka á málum sem tengjast Panama-
skjölunum með trúverðugum hætti. Og raunar er
skuggi ósómans sem fyrirtækinu tengist slíkur að sú
staðreynd ein að stjórnmálamenn tengist þessum
furðurekstri á að næga til að þeir stígi til hliðar, í
það minnsta þar til þeir hafa gert hreint fyrir sínum
dyrum og sótt sér endurnýjað umboð til kjósenda
sinna.
Fyrir dyrum eru vissulega mikilvæg verkefni, svo
sem við losun hafta, en við úrlausn þeirra er enginn
ómissandi og engin ástæða til að ætla annað en
um þau geti verið sátt, annaðhvort í aðdraganda
kosninga á næstu vikum eða undir forræði nýrrar
ríkisstjórnar að kosningum afloknum.
Kosningar strax
Forsvars-
mönnum
nýrrar
ríkisstjórnar
er tíðrætt um
að hún njóti
ríflegs meiri-
hluta á þingi,
en sá meiri-
hluti er
fenginn í
kosningum
áður en
nokkurn gat
grunað hvers
konar upp-
ljóstranir
væru í vænd-
um.
8 . a p r í l 2 0 1 6 F Ö S T U D a G U r14 S k o ð U n ∙ F r É T T a B l a ð i ð
SKOÐUN
0
8
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:4
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
F
D
-2
E
A
4
1
8
F
D
-2
D
6
8
1
8
F
D
-2
C
2
C
1
8
F
D
-2
A
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
7
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K