Fréttablaðið - 08.04.2016, Side 15

Fréttablaðið - 08.04.2016, Side 15
Í þeirri fullkomnu upplausn sem ríkt hefur í íslenskum stjórn-málum undanfarna daga hefur stjórnmálamönnum verið tíð- rætt um þau stóru mál sem þurfi að sinna. Ekki eru allir sammála um hvaða mál það séu og því full ástæða til að benda á hvaða mál þola ekki lengur bið, að mati BSRB, óháð því hvaða flokkar mynda hér ríkisstjórn. Þannig hafa nú litið dagsins ljós tillögur um mikilvægar breytingar á lögum um fæðingarorlof. BSRB leggur þunga áherslu á að unnið verði áfram að þessum málum af krafti, og frumvarp lagt fyrir Alþingi til samþykktar sem fyrst. Engin ástæða er til annars en að ætla að góð samstaða verði um það á Alþingi að bæta stöðu nýbakaðra foreldra. Bandalagið telur afar mikilvægt að tafarlaust verði fest í lög að greiðslur til foreldra í fæðingaror- lofi upp að 300 þúsund krónum á mánuði skerðist ekki. Þá þarf að hækka hámark á greiðslur í 600 þúsund krónur og lengja orlofið úr 9 mánuðum í 12. BSRB telur einnig mikilvægt að Alþingi ljúki umfjöllun um hús- næðisfrumvörp félags- og hús- næðismálaráðherra sem fyrst. Bandalagið bindur miklar vonir við að framboð af leiguhúsnæði fyrir launafólk aukist verulega samþykki Alþingi frumvörpin. Meira fé í heilbrigðismálin Bandalagið styður áform um þak á greiðslur sjúklinga fyrir þjónustu heilbrigðiskerfisins, þó ekki hafi verið tekin afstaða til frumvarps heilbrigðisráðherra sem hefur það að markmiði. BSRB leggst alfarið gegn gjaldtöku í heilbrigðiskerfinu og hvetur til þess að fallið verði frá henni sem fyrst. Hávær krafa hefur einnig verið uppi um að stjórnvöld verji meira fé til heilbrigðismálanna. Tafarlaust þarf að létta því fjársvelti sem heil- brigðisstofnanir um allt land hafa verið í undanfarin ár. Það ætti að vera forgangsmál stjórnmálamanna úr öllum flokkum. Þau eru víða stóru málin og von- andi að hverjir þeir sem sitja við völd hér næstu mánuði beri gæfu til að sinna þeim málum sem skipta fólkið í landinu miklu máli. Hver eru stóru málin? BSRB leggst alfarið gegn gjaldtöku í heilbrigðiskerf- inu og hvetur til þess að fallið verði frá henni sem fyrst. Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB Þórlindur Kjartansson Í dag Sem betur fer er það svo að þegar menn eru valdir til þess að gegna mikilvægum ábyrgðar- stöðum – eins og mark- mannsstöð- unni í ís- lenska landsliðinu – þá má treysta því að það sé vandað til verka. N 30 2016 Listahátíð í Reykjavík Lá ru ss o n H ö n n u n ar st o fa Stofnaðilar og bakhjarlar Listahátíðar Styrktaraðilar Tryggðu þér sæti tímanlega Miðasala er hafin á harpa.is & tix.is San Francisco ballettinn, undir stjórn Helga Tómas sonar, sýnir valda kafla úr nokkrum af dáðustu verkum flokksins ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands á Listahátíð vorið 2016. Sýningar verða 28.— 30. maí í Eldborgarsal Hörpu. Hátindar á ferli Helga San Francisco ballettinn Þegar karlmenn nálgast fertugt er hætt við því að síðustu dreggjar drauma þeirra um stórafrek í íþróttum séu smám saman að gufa upp. Örfá dæmi eru til um menn sem ná umtalsverðum árangri í íþróttum á fimmtugs- aldri, en þær undantekningar eru fáar. Hinn kaldi raunveruleiki er sá að tíminn leggur að velli jafnvel mestu íþróttahetjur löngu áður en þeim er sagt í tregablöndnum afmælisræðum að allt sé fertugum fært. Eins og flestir aðrir drengir átti ég mér þann draum að verða íþróttahetja. Í mínu tilviki var þetta aldrei mjög raunsær draumur og eftir því sem leið á „feril“ minn í íþróttum varð hann stöðugt fjarstæðukenndari og mætti frekar lýsa sem órum. Undir það síðasta ætti hugtakið firr- ing jafnvel best við. Engu að síður get ég játað að enn eimir ögn eftir af þessari firringu. Ég leyfi mér að eiga dagdrauma um að einhver ævintýraleg röð atburða leiði til þess að kannski bara í einn dag fái ég tækifæri til þess að upplifa þessa drauma bernsku minnar. Óvænt tækifæri Ein atburðarás gæti hafist með dularfullu sím- tali úr óþekktu númeri á miðjum degi þar sem ég sæti við vinnu: Ég: Halló. Óþekkt rödd: Já, halló. Er þetta Þórlindur Kjartansson? Ég: Já. Þetta er hann. Óþekkt rödd: Komdu sæll. Þetta er Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari og tannlæknir í Vestmannaeyjum. Ég (undrandi): Já... komdu sæll... Heldurðu að það sé eitthvað að tönnunum í mér? Heimir: Nei, nei. Alls ekki. Málið er að ég og Lars vorum að velta því fyrir okkur hvort þú sért nokkuð fáanlegur til þess að gefa kost á þér í landsliðið. Ég: Ha? Nei, ég var nú bara ekkert búinn að velta því fyrir mér og það hefur aldrei nokkur maður nefnt þetta við mig. Ég hef ekkert spilað síðan í þriðja flokki – fyrir 25 árum – og ég var nú satt best að segja frekar lélegur þá. Ég er nú alveg örugglega ekkert betri núna, sennilega lélegri... Er þetta eitthvert grín? Heimir: Nei, alls ekki. Við Lars erum nokkuð klárir á því að þetta geti bara verið mjög góð hugmynd. Ég: Og voruð þið búnir að spá eitthvað í hvaða stöðu ég ætti að spila? Ég var nú mest settur í vinstri bakvörð. Heimir: Já. Þú verður í marki. Ég: Í markinu... þú segir nokkuð. Ég hef aldrei verið í marki... og Heimir, þú veist að ég er bara tæplega 170 sm hár og er ekki einu sinni viss um að ég geti stokkið upp í slána. Heimir: Við vitum alveg nákvæmlega hvað við erum að gera. Kauptu þér markmanns- hanska og svo mætirðu á næstu æfingu. Áskorun tekið Þegar hér er komið sögu þyrfti ég að íhuga málið en fljótlega yrði þetta augljóst. Það slær enginn hendinni á móti því að fá að taka þátt í EM-ævintýri Íslands og finna loksins einhver not fyrir eiginhandaráritunina sem ég eyddi svo miklum tíma í að æfa þegar ég var krakki. Og hver segir að ég sé of gamall? Ég er bara tveimur árum eldri en Eiður Smári. Reyndar var hann að spila með Chelsea og Barcelona á meðan ég var að vinna sem blaðamaður og í markaðsmálum Icesave – störfum sem kröfð- ust ekki meira líkamlegs atgervis en þurfti til þess að slá á lyklaborð. En á móti kemur að ég hef meiðst miklu minna. Þar að auki er alls ekkert víst að það skipti máli hvort ég get eitthvað í marki. Ef vörnin er sæmileg þá þarf ég ekki að gera neitt annað en skokka um vítateiginn og hrópa hvatningar- orð til félaganna. Draumurinn rætist Ég hleyp út á völlinn í Frakklandi. Í extra- small landsliðstreyju númer eitt. Tugþúsundir áhorfenda fylgjast með. Sjónvarpsmyndavélar og blaðamenn umkringja völlinn til að skrá á spjöld sögunnar viðburð þar sem ég er allt í einu orðinn miðdepill. Það er flautað til leiks. Allt gerist einhvern veginn miklu hraðar en ég hélt. Boltinn fer hærra, leikmennirnir eru svakalega mikið að flýta sér, snertingarnar eru stuttar og fastar. Og hitt liðið er órólegt. Ekki að gefa okkur neinn séns, bara hjóla í mína menn og svo ger- ist það hræðilega... Þeir ná boltanum og gefa á þennan númer sjö – Cristiano Ronaldo. Fyrr en ég veit af er boltinn á háflugi yfir völlinn og stefnir eins og stjórnlaus raketta í áttina að mér. Ég reyni að hreyfa mig einhvern veginn til að vera fyrir boltanum. Stekk eins hátt og ég get en það eina sem ég finn er að ég togna í bakinu. Ég ligg svo á jörðinni. Helmingur áhorfenda fagnar óskaplega. Hitt liðið dansar stríðsdans. Félagar mínir horfa ásökunaraugum á mig; og svo á Lars og Heimi. Ég stend upp í örvæntingarfullri tilraun til þess að halda sjálfsvirðingu. Ég eys skömmum yfir varnarmennina. „Hvernig datt ykkur í hug að láta hann skjóta?“ Svo læt ég skipta mér út af meiddum. EM án mín Sem betur fer er það svo að þegar menn eru valdir til þess að gegna mikilvægum ábyrgð- arstöðum – eins og markmannsstöðunni í íslenska landsliðinu – þá má treysta því að það sé vandað til verka. Það er valið út frá því hversu líklegt það er að markmaðurinn ráði við hin örfáu erfiðu augnablik sem komið geta upp í leik hverjum, en ekki út frá því hvernig honum gengur að halda á sér hita þegar ekkert er að gera milli stanganna. Ég vil því koma því á framfæri við Heimi og Lars að eftir alvarlega íhugun hef ég ákveðið að gefa ekki kost á mér í íslenska landsliðið fyrir EM í sumar. Skilaboð til Heimis og Lars s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 15F Ö s T u d a g u R 8 . a p R Í L 2 0 1 6 0 8 -0 4 -2 0 1 6 0 4 :4 3 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 F D -3 D 7 4 1 8 F D -3 C 3 8 1 8 F D -3 A F C 1 8 F D -3 9 C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 8 s _ 7 _ 4 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.