Fréttablaðið - 08.04.2016, Síða 15
Í þeirri fullkomnu upplausn sem ríkt hefur í íslenskum stjórn-málum undanfarna daga hefur
stjórnmálamönnum verið tíð-
rætt um þau stóru mál sem þurfi
að sinna. Ekki eru allir sammála
um hvaða mál það séu og því full
ástæða til að benda á hvaða mál
þola ekki lengur bið, að mati BSRB,
óháð því hvaða flokkar mynda hér
ríkisstjórn.
Þannig hafa nú litið dagsins ljós
tillögur um mikilvægar breytingar
á lögum um fæðingarorlof. BSRB
leggur þunga áherslu á að unnið
verði áfram að þessum málum
af krafti, og frumvarp lagt fyrir
Alþingi til samþykktar sem fyrst.
Engin ástæða er til annars en að
ætla að góð samstaða verði um það
á Alþingi að bæta stöðu nýbakaðra
foreldra.
Bandalagið telur afar mikilvægt
að tafarlaust verði fest í lög að
greiðslur til foreldra í fæðingaror-
lofi upp að 300 þúsund krónum á
mánuði skerðist ekki. Þá þarf að
hækka hámark á greiðslur í 600
þúsund krónur og lengja orlofið úr
9 mánuðum í 12.
BSRB telur einnig mikilvægt að
Alþingi ljúki umfjöllun um hús-
næðisfrumvörp félags- og hús-
næðismálaráðherra sem fyrst.
Bandalagið bindur miklar vonir við
að framboð af leiguhúsnæði fyrir
launafólk aukist verulega samþykki
Alþingi frumvörpin.
Meira fé í heilbrigðismálin
Bandalagið styður áform um þak á
greiðslur sjúklinga fyrir þjónustu
heilbrigðiskerfisins, þó ekki hafi
verið tekin afstaða til frumvarps
heilbrigðisráðherra sem hefur það
að markmiði. BSRB leggst alfarið
gegn gjaldtöku í heilbrigðiskerfinu
og hvetur til þess að fallið verði frá
henni sem fyrst.
Hávær krafa hefur einnig verið
uppi um að stjórnvöld verji meira
fé til heilbrigðismálanna. Tafarlaust
þarf að létta því fjársvelti sem heil-
brigðisstofnanir um allt land hafa
verið í undanfarin ár. Það ætti að
vera forgangsmál stjórnmálamanna
úr öllum flokkum.
Þau eru víða stóru málin og von-
andi að hverjir þeir sem sitja við
völd hér næstu mánuði beri gæfu
til að sinna þeim málum sem skipta
fólkið í landinu miklu máli.
Hver eru stóru málin?
BSRB leggst alfarið gegn
gjaldtöku í heilbrigðiskerf-
inu og hvetur til þess að fallið
verði frá henni sem fyrst.
Elín Björg
Jónsdóttir
formaður BSRB
Þórlindur
Kjartansson
Í dag
Sem betur fer
er það svo að
þegar menn
eru valdir til
þess að gegna
mikilvægum
ábyrgðar-
stöðum – eins
og mark-
mannsstöð-
unni í ís-
lenska
landsliðinu
– þá má
treysta því að
það sé vandað
til verka.
N 30
2016
Listahátíð
í Reykjavík
Lá
ru
ss
o
n
H
ö
n
n
u
n
ar
st
o
fa Stofnaðilar og bakhjarlar Listahátíðar
Styrktaraðilar
Tryggðu þér sæti tímanlega
Miðasala er hafin á harpa.is & tix.is
San Francisco ballettinn, undir stjórn
Helga Tómas sonar, sýnir valda kafla úr
nokkrum af dáðustu verkum flokksins
ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands
á Listahátíð vorið 2016.
Sýningar verða 28.— 30. maí
í Eldborgarsal Hörpu.
Hátindar
á ferli Helga
San Francisco
ballettinn
Þegar karlmenn nálgast fertugt er hætt við því að síðustu dreggjar drauma þeirra um stórafrek í íþróttum séu smám saman að
gufa upp. Örfá dæmi eru til um menn sem ná
umtalsverðum árangri í íþróttum á fimmtugs-
aldri, en þær undantekningar eru fáar. Hinn
kaldi raunveruleiki er sá að tíminn leggur að
velli jafnvel mestu íþróttahetjur löngu áður en
þeim er sagt í tregablöndnum afmælisræðum
að allt sé fertugum fært.
Eins og flestir aðrir drengir átti ég mér þann
draum að verða íþróttahetja. Í mínu tilviki var
þetta aldrei mjög raunsær draumur og eftir því
sem leið á „feril“ minn í íþróttum varð hann
stöðugt fjarstæðukenndari og mætti frekar lýsa
sem órum. Undir það síðasta ætti hugtakið firr-
ing jafnvel best við.
Engu að síður get ég játað að enn eimir ögn
eftir af þessari firringu. Ég leyfi mér að eiga
dagdrauma um að einhver ævintýraleg röð
atburða leiði til þess að kannski bara í einn dag
fái ég tækifæri til þess að upplifa þessa drauma
bernsku minnar.
Óvænt tækifæri
Ein atburðarás gæti hafist með dularfullu sím-
tali úr óþekktu númeri á miðjum degi þar sem
ég sæti við vinnu:
Ég: Halló.
Óþekkt rödd: Já, halló. Er þetta Þórlindur
Kjartansson?
Ég: Já. Þetta er hann.
Óþekkt rödd: Komdu sæll. Þetta er Heimir
Hallgrímsson, landsliðsþjálfari og tannlæknir
í Vestmannaeyjum.
Ég (undrandi): Já... komdu sæll... Heldurðu að
það sé eitthvað að tönnunum í mér?
Heimir: Nei, nei. Alls ekki. Málið er að ég og
Lars vorum að velta því fyrir okkur hvort þú
sért nokkuð fáanlegur til þess að gefa kost á þér
í landsliðið.
Ég: Ha? Nei, ég var nú bara ekkert búinn að
velta því fyrir mér og það hefur aldrei nokkur
maður nefnt þetta við mig. Ég hef ekkert spilað
síðan í þriðja flokki – fyrir 25 árum – og ég var nú
satt best að segja frekar lélegur þá. Ég er nú alveg
örugglega ekkert betri núna, sennilega lélegri...
Er þetta eitthvert grín?
Heimir: Nei, alls ekki. Við Lars erum nokkuð
klárir á því að þetta geti bara verið mjög góð
hugmynd.
Ég: Og voruð þið búnir að spá eitthvað í hvaða
stöðu ég ætti að spila? Ég var nú mest settur í
vinstri bakvörð.
Heimir: Já. Þú verður í marki.
Ég: Í markinu... þú segir nokkuð. Ég hef aldrei
verið í marki... og Heimir, þú veist að ég er bara
tæplega 170 sm hár og er ekki einu sinni viss um
að ég geti stokkið upp í slána.
Heimir: Við vitum alveg nákvæmlega hvað
við erum að gera. Kauptu þér markmanns-
hanska og svo mætirðu á næstu æfingu.
Áskorun tekið
Þegar hér er komið sögu þyrfti ég að íhuga
málið en fljótlega yrði þetta augljóst. Það slær
enginn hendinni á móti því að fá að taka þátt í
EM-ævintýri Íslands og finna loksins einhver
not fyrir eiginhandaráritunina sem ég eyddi
svo miklum tíma í að æfa þegar ég var krakki.
Og hver segir að ég sé of gamall? Ég er bara
tveimur árum eldri en Eiður Smári. Reyndar
var hann að spila með Chelsea og Barcelona
á meðan ég var að vinna sem blaðamaður og í
markaðsmálum Icesave – störfum sem kröfð-
ust ekki meira líkamlegs atgervis en þurfti til
þess að slá á lyklaborð. En á móti kemur að ég
hef meiðst miklu minna.
Þar að auki er alls ekkert víst að það skipti
máli hvort ég get eitthvað í marki. Ef vörnin er
sæmileg þá þarf ég ekki að gera neitt annað en
skokka um vítateiginn og hrópa hvatningar-
orð til félaganna.
Draumurinn rætist
Ég hleyp út á völlinn í Frakklandi. Í extra-
small landsliðstreyju númer eitt. Tugþúsundir
áhorfenda fylgjast með. Sjónvarpsmyndavélar
og blaðamenn umkringja völlinn til að skrá á
spjöld sögunnar viðburð þar sem ég er allt í
einu orðinn miðdepill.
Það er flautað til leiks. Allt gerist einhvern
veginn miklu hraðar en ég hélt. Boltinn fer
hærra, leikmennirnir eru svakalega mikið að
flýta sér, snertingarnar eru stuttar og fastar.
Og hitt liðið er órólegt. Ekki að gefa okkur
neinn séns, bara hjóla í mína menn og svo ger-
ist það hræðilega... Þeir ná boltanum og gefa
á þennan númer sjö – Cristiano Ronaldo. Fyrr
en ég veit af er boltinn á háflugi yfir völlinn
og stefnir eins og stjórnlaus raketta í áttina að
mér. Ég reyni að hreyfa mig einhvern veginn
til að vera fyrir boltanum. Stekk eins hátt og
ég get en það eina sem ég finn er að ég togna
í bakinu.
Ég ligg svo á jörðinni. Helmingur áhorfenda
fagnar óskaplega. Hitt liðið dansar stríðsdans.
Félagar mínir horfa ásökunaraugum á mig; og
svo á Lars og Heimi.
Ég stend upp í örvæntingarfullri tilraun til
þess að halda sjálfsvirðingu. Ég eys skömmum
yfir varnarmennina. „Hvernig datt ykkur í hug
að láta hann skjóta?“ Svo læt ég skipta mér út
af meiddum.
EM án mín
Sem betur fer er það svo að þegar menn eru
valdir til þess að gegna mikilvægum ábyrgð-
arstöðum – eins og markmannsstöðunni í
íslenska landsliðinu – þá má treysta því að
það sé vandað til verka. Það er valið út frá því
hversu líklegt það er að markmaðurinn ráði
við hin örfáu erfiðu augnablik sem komið geta
upp í leik hverjum, en ekki út frá því hvernig
honum gengur að halda á sér hita þegar ekkert
er að gera milli stanganna.
Ég vil því koma því á framfæri við Heimi og
Lars að eftir alvarlega íhugun hef ég ákveðið
að gefa ekki kost á mér í íslenska landsliðið
fyrir EM í sumar.
Skilaboð til
Heimis og Lars
s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 15F Ö s T u d a g u R 8 . a p R Í L 2 0 1 6
0
8
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:4
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
F
D
-3
D
7
4
1
8
F
D
-3
C
3
8
1
8
F
D
-3
A
F
C
1
8
F
D
-3
9
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
7
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K