Fréttablaðið - 08.04.2016, Side 18
Það er annasamur tími fram
undan hjá tónlistarmann-
inum og ólíkindatólinu Barða Jó-
hannssyni. Í síðustu viku kom út
fyrsta breiðskífa hljómsveitarinn-
ar Starwalker sem hann skipar
ásamt Jean-Benoît Dunckel, öðrum
meðlimi hljómsveitarinnar goð-
sagnarkenndu Air. Í vikunni tókst
hann líka á við algjörlega nýtt
verkefni í lífi sínu; að vinna hefð-
bundið skrifstofustarf er hann hóf
störf sem verkefnastjóri á mark-
aðssviði Íslands hótela. Frekari tón-
smíðar eru svo alltaf á dagskránni
tengdar ýmsum ólíkum verkefnum
og svo dýrmætar stundir með dótt-
urinni sem er sjö ára.
Fjölbreyttir dagar
Spurður um nýjan starfsvettvang
segist hann hafa fundið fyrir
nokkrum mánuðum þörf til að
gera eitthvað nýtt og spennandi,
þar sem hann gæti bæði notað að
hluta reynslu sína en á sama tíma
tekist á við ný og krefjandi við-
fangsefni. „Ég hef síðustu 18 árin
unnið óhefðbundna vinnu frá 11 á
morgnana til fjögur um nóttina.
Þetta voru oft fjölbreyttir dagar
enda sautján tíma vinnudagar.
Stundum vann ég sem listamað-
ur, stundum sem útgefandi en síð-
ustu ár hefur töluverður tími farið
í umsýslu og markaðsmál auk tón-
listarinnar sjálfrar. Ég hef verið
meira og minna að kynna tón-
list og Ísland hálfa ævina, verið
í mörgum stærstu blöðum heims
og unnið með markaðsfyrirtækj-
um víða. Mig langaði einfaldlega
að opna sjóndeildarhringinn og fá
víðtækari reynslu.“
Fengið góða dóma
Fyrsta breiðskífa Starwalker kom
út í síðustu viku og hefur nú þegar
fengið góða dóma víða um heim.
Nokkur ár eru síðan samstarf
þeirra JB (eins og Jean-Benoît
Dunckel er yfirleitt kallaður) hófst
sem í fyrstu átti bara að vera eitt
lag en endaði þremur árum síðar
með breiðskífu. „Það eru reyndar
mörg ár síðan við hittumst fyrst og
tókum spjall saman. Það var á tón-
listarhátíð sem við spiluðum báðir
á, ég með Bang Gang og hann með
Air. Síðar spilaði ég á undan þeim
á tónleikum í Salle Playel í París.
Eftir báða tónleikana áttum við
spjall og gerðum grín.“
Nokkru síðar stakk sameigin-
leg vinkona þeirra upp á því að
þeir myndum hittast í kaffi. „Við
ákváðum að prófa að semja saman
eitt lag og sjá hvað kæmi út úr því.
Fyrsta lagið sem við töldum í var
Bad Weather og við gáfum það út
á smáskífu í október 2013. Lagið
endaði líka á nýju plötunni þann-
ig að segja má að stóra platan sýni
Starwalker frá fæðingu til dags-
ins í dag.“
líður best í hljóðveri
Þrátt fyrir prýðilega dóma hafa
þeir félagar ekki ákveðið neina
tónleika á næstunni. Raunar segir
Barði þá ekki vera að leita eftir
því enda kunni þeir best við sig í
hljóðveri. „Einu tónleikarnir sem
Starwalker hefur haldið voru á
Sonar hátíðinni á Íslandi árið
2014. Það var frábærir tónleikar
og við vorum gríðarlega ánægð-
ir með útkomuna. Ef okkur verð-
ur boðið að spila á stórum tónleik-
um munum við líklega gera það en
við höfum ekki áhuga á að spila á
smærri stöðum.“
Meðlimir Starwalker eru auk
þess nokkuð uppteknir næstu mán-
uði. JB er á leið í stóra tónleika-
ferð með Air í sumar og Barði
mun m.a. spila með Bang Gang á
Secret Solstice hátíðinni sem fer
fram í Reykjavík í júní. „Svo á
að flytja tónlist mína við sænsku
kvikmyndina Häxan með sinfóníu-
hljómsveit á Transylvania Film-
festival í Rúmeníu en myndin er
frá árinu 1922.“
Frægur samstarFsmaður
Það er ekki á hverjum degi sem
íslenskur listamaður starfar með
jafn þekktum tónlistarmanni og
JB. Air hefur selt milljónir platna
og nýtur mikilla vinsælda og virð-
ingar víða um heim. Þrátt fyrir
það hefur verið furðu hljótt um
samstarf þeirra í fjölmiðlum hér-
lendis en Barði heldur sinni al-
þekktu ró. „Umfjöllun um tónlist
er almennt of lítil í fjölmiðlum hér
heima. Sem er skrýtið því ég held
að 99% landsmanna hlusti á tónlist
beint eða óbeint stóran hluta dags-
ins. Það er samt ekki mitt að segja
öðrum hvað þeir eigi að skrifa um,
frekar en þeir ættu að segja mér
hvernig ég ætti að semja tónlist.“
margt í pípunum
Það er sjaldnast lognmolla kring-
um Barða enda fjölmörg ólík verk-
efni sem liggja eftir hann. „Síðustu
árin hef ég náð að gera nær allt
sem mig langaði til. Gefið út undir
merkjum Bang Gang, samið óperu
og klassíska tónlist, samið tónlist
fyrir leikhús, kvikmyndir og sjón-
varpsþætti og gert bæði útvarps-
og sjónvarpsþætti. Þar að auki hef
unnið með mörgum þeirra lista-
manna sem mig hefur langað að
vinna með, listamönnum á borð við
JB úr Air, M83, Keren Ann, Helen
Marnie úr Ladytron og fleirum.“
Hann segist einnig vera vel á
veg kominn með verk sem bland-
ar saman ambient, raftónlist og
klassík sem kemur út á næstunni.
„Ég er búinn að koma útgáfumál-
um mínum þannig fyrir að það er
einfalt fyrir mig að gefa út nýtt
efni þegar það verður til. Ég get
alveg lofað því að nýjar plötur með
Bang Gang og Starwalker munu
koma en hvenær það verður, er
vandi að spá.“
vill vera á íslandi
Ólíkt því sem margir halda er
Barði búsettur hér á landi stærst-
an hluta ársins þrátt fyrir að starfa
með fjölda erlendra listamanna.
„Það hefði verið best fyrir ferilinn
að búa erlendis og stækka þannig
kökuna. Tónlistin mín hefur skilað
Íslendingum beinum og óbeinum
gjaldeyri í yfir 18 ár. Ég fæ hins
vegar alltaf mikla heimþrá eftir
1-2 mánaða dvöl erlendis. Svo á ég
dóttur hér heima þannig að það er
ekki í boði að flytja út eða ferðast
í lengri tíma því ég myndi aldrei
vilja missa af þeim dýrmæta tíma
sem ég fæ með henni.“
Auk þess elskar hann íslenska
náttúru. „Mér finnst gaman að
hafa bjart á sumrin og dimmt yfir
veturinn. Veðrið er fjölbreytilegt,
Íslendingar eru hressandi og 20
prósent af þeim eru jafnvel með
góðan húmor. Mér finnst gaman
að fá útlendinga í heimsókn og líka
að fara í stuttar ferðir til útlanda.
Mér finnst Evrópa fín, svo er frá-
bært að spila í Kína, fólkið þar er
frábært og líka í Bandaríkjunum.
Allt hefur sinn sjarma.“
Hægt er að hlusta á nýju
plötu Starwalker á Spotify og
Sound cloud. Nánari upplýsing-
ar og myndbönd má m.a. finna
á starwalkermusic.com, Face-
book (Starwalkermusic), Twitter
(Starwalker band) og YouTube-rás-
inni StarwalkerVEVO.
Einu tónleikar Starwalker hingað til voru á Sónar Reykjavík árið 2014. Barði var „gríðarlega ánægður“ með útkomuna.
MYND/ANTON ALBERT EGGERTSSON, SÓNAR REYKJAVÍK.
myndaalbúmið
JB (til vinstri) er annar meðlima frönsku hljómsveitarinnar Air sem nýtur
mikilla vinsælda og virðingar um allan heim. MYND/GETTY
Starwalker gaf út fyrstu plötu sína í síðustu viku sem hefur fengið góða dóma
víða um heim. MYND/TAki BiBElAS
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
s: 571-5464
Vertu einstök – eins og þú ert
stærðir 38-52
my styleStærðir 38-52
Netverslun á tiskuhus.is
Alltaf
eitthvað
nýtt og
spennandi
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin BelladonnaStærðir 38-58
Flott föt, fyrir flottar konur
8 . a p r í l 2 0 1 6 F Ö S T U D a G U r2 F ó l k ∙ k y n n i n G a r b l a ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ i ∙ l í F S S T í l l
0
8
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:4
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
F
D
-5
6
2
4
1
8
F
D
-5
4
E
8
1
8
F
D
-5
3
A
C
1
8
F
D
-5
2
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
7
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K