Fréttablaðið - 08.04.2016, Síða 18

Fréttablaðið - 08.04.2016, Síða 18
Það er annasamur tími fram undan hjá tónlistarmann- inum og ólíkindatólinu Barða Jó- hannssyni. Í síðustu viku kom út fyrsta breiðskífa hljómsveitarinn- ar Starwalker sem hann skipar ásamt Jean-Benoît Dunckel, öðrum meðlimi hljómsveitarinnar goð- sagnarkenndu Air. Í vikunni tókst hann líka á við algjörlega nýtt verkefni í lífi sínu; að vinna hefð- bundið skrifstofustarf er hann hóf störf sem verkefnastjóri á mark- aðssviði Íslands hótela. Frekari tón- smíðar eru svo alltaf á dagskránni tengdar ýmsum ólíkum verkefnum og svo dýrmætar stundir með dótt- urinni sem er sjö ára. Fjölbreyttir dagar Spurður um nýjan starfsvettvang segist hann hafa fundið fyrir nokkrum mánuðum þörf til að gera eitthvað nýtt og spennandi, þar sem hann gæti bæði notað að hluta reynslu sína en á sama tíma tekist á við ný og krefjandi við- fangsefni. „Ég hef síðustu 18 árin unnið óhefðbundna vinnu frá 11 á morgnana til fjögur um nóttina. Þetta voru oft fjölbreyttir dagar enda sautján tíma vinnudagar. Stundum vann ég sem listamað- ur, stundum sem útgefandi en síð- ustu ár hefur töluverður tími farið í umsýslu og markaðsmál auk tón- listarinnar sjálfrar. Ég hef verið meira og minna að kynna tón- list og Ísland hálfa ævina, verið í mörgum stærstu blöðum heims og unnið með markaðsfyrirtækj- um víða. Mig langaði einfaldlega að opna sjóndeildarhringinn og fá víðtækari reynslu.“ Fengið góða dóma Fyrsta breiðskífa Starwalker kom út í síðustu viku og hefur nú þegar fengið góða dóma víða um heim. Nokkur ár eru síðan samstarf þeirra JB (eins og Jean-Benoît Dunckel er yfirleitt kallaður) hófst sem í fyrstu átti bara að vera eitt lag en endaði þremur árum síðar með breiðskífu. „Það eru reyndar mörg ár síðan við hittumst fyrst og tókum spjall saman. Það var á tón- listarhátíð sem við spiluðum báðir á, ég með Bang Gang og hann með Air. Síðar spilaði ég á undan þeim á tónleikum í Salle Playel í París. Eftir báða tónleikana áttum við spjall og gerðum grín.“ Nokkru síðar stakk sameigin- leg vinkona þeirra upp á því að þeir myndum hittast í kaffi. „Við ákváðum að prófa að semja saman eitt lag og sjá hvað kæmi út úr því. Fyrsta lagið sem við töldum í var Bad Weather og við gáfum það út á smáskífu í október 2013. Lagið endaði líka á nýju plötunni þann- ig að segja má að stóra platan sýni Starwalker frá fæðingu til dags- ins í dag.“ líður best í hljóðveri Þrátt fyrir prýðilega dóma hafa þeir félagar ekki ákveðið neina tónleika á næstunni. Raunar segir Barði þá ekki vera að leita eftir því enda kunni þeir best við sig í hljóðveri. „Einu tónleikarnir sem Starwalker hefur haldið voru á Sonar hátíðinni á Íslandi árið 2014. Það var frábærir tónleikar og við vorum gríðarlega ánægð- ir með útkomuna. Ef okkur verð- ur boðið að spila á stórum tónleik- um munum við líklega gera það en við höfum ekki áhuga á að spila á smærri stöðum.“ Meðlimir Starwalker eru auk þess nokkuð uppteknir næstu mán- uði. JB er á leið í stóra tónleika- ferð með Air í sumar og Barði mun m.a. spila með Bang Gang á Secret Solstice hátíðinni sem fer fram í Reykjavík í júní. „Svo á að flytja tónlist mína við sænsku kvikmyndina Häxan með sinfóníu- hljómsveit á Transylvania Film- festival í Rúmeníu en myndin er frá árinu 1922.“ Frægur samstarFsmaður Það er ekki á hverjum degi sem íslenskur listamaður starfar með jafn þekktum tónlistarmanni og JB. Air hefur selt milljónir platna og nýtur mikilla vinsælda og virð- ingar víða um heim. Þrátt fyrir það hefur verið furðu hljótt um samstarf þeirra í fjölmiðlum hér- lendis en Barði heldur sinni al- þekktu ró. „Umfjöllun um tónlist er almennt of lítil í fjölmiðlum hér heima. Sem er skrýtið því ég held að 99% landsmanna hlusti á tónlist beint eða óbeint stóran hluta dags- ins. Það er samt ekki mitt að segja öðrum hvað þeir eigi að skrifa um, frekar en þeir ættu að segja mér hvernig ég ætti að semja tónlist.“ margt í pípunum Það er sjaldnast lognmolla kring- um Barða enda fjölmörg ólík verk- efni sem liggja eftir hann. „Síðustu árin hef ég náð að gera nær allt sem mig langaði til. Gefið út undir merkjum Bang Gang, samið óperu og klassíska tónlist, samið tónlist fyrir leikhús, kvikmyndir og sjón- varpsþætti og gert bæði útvarps- og sjónvarpsþætti. Þar að auki hef unnið með mörgum þeirra lista- manna sem mig hefur langað að vinna með, listamönnum á borð við JB úr Air, M83, Keren Ann, Helen Marnie úr Ladytron og fleirum.“ Hann segist einnig vera vel á veg kominn með verk sem bland- ar saman ambient, raftónlist og klassík sem kemur út á næstunni. „Ég er búinn að koma útgáfumál- um mínum þannig fyrir að það er einfalt fyrir mig að gefa út nýtt efni þegar það verður til. Ég get alveg lofað því að nýjar plötur með Bang Gang og Starwalker munu koma en hvenær það verður, er vandi að spá.“ vill vera á íslandi Ólíkt því sem margir halda er Barði búsettur hér á landi stærst- an hluta ársins þrátt fyrir að starfa með fjölda erlendra listamanna. „Það hefði verið best fyrir ferilinn að búa erlendis og stækka þannig kökuna. Tónlistin mín hefur skilað Íslendingum beinum og óbeinum gjaldeyri í yfir 18 ár. Ég fæ hins vegar alltaf mikla heimþrá eftir 1-2 mánaða dvöl erlendis. Svo á ég dóttur hér heima þannig að það er ekki í boði að flytja út eða ferðast í lengri tíma því ég myndi aldrei vilja missa af þeim dýrmæta tíma sem ég fæ með henni.“ Auk þess elskar hann íslenska náttúru. „Mér finnst gaman að hafa bjart á sumrin og dimmt yfir veturinn. Veðrið er fjölbreytilegt, Íslendingar eru hressandi og 20 prósent af þeim eru jafnvel með góðan húmor. Mér finnst gaman að fá útlendinga í heimsókn og líka að fara í stuttar ferðir til útlanda. Mér finnst Evrópa fín, svo er frá- bært að spila í Kína, fólkið þar er frábært og líka í Bandaríkjunum. Allt hefur sinn sjarma.“ Hægt er að hlusta á nýju plötu Starwalker á Spotify og Sound cloud. Nánari upplýsing- ar og myndbönd má m.a. finna á starwalkermusic.com, Face- book (Starwalkermusic), Twitter (Starwalker band) og YouTube-rás- inni StarwalkerVEVO. Einu tónleikar Starwalker hingað til voru á Sónar Reykjavík árið 2014. Barði var „gríðarlega ánægður“ með útkomuna. MYND/ANTON ALBERT EGGERTSSON, SÓNAR REYKJAVÍK. myndaalbúmið JB (til vinstri) er annar meðlima frönsku hljómsveitarinnar Air sem nýtur mikilla vinsælda og virðingar um allan heim. MYND/GETTY Starwalker gaf út fyrstu plötu sína í síðustu viku sem hefur fengið góða dóma víða um heim. MYND/TAki BiBElAS Bæjarlind 1-3 201 Kópavogur s: 571-5464 Vertu einstök – eins og þú ert stærðir 38-52 my styleStærðir 38-52 Netverslun á tiskuhus.is Alltaf eitthvað nýtt og spennandi Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin BelladonnaStærðir 38-58 Flott föt, fyrir flottar konur 8 . a p r í l 2 0 1 6 F Ö S T U D a G U r2 F ó l k ∙ k y n n i n G a r b l a ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ i ∙ l í F S S T í l l 0 8 -0 4 -2 0 1 6 0 4 :4 3 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 F D -5 6 2 4 1 8 F D -5 4 E 8 1 8 F D -5 3 A C 1 8 F D -5 2 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 7 _ 4 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.